(Tilvísun ljósmyndar: KSS 2018/16. Menningar- og friðarfélag íslenskra kvenna. Ljósmynd 68.)
Skráning á innihaldi skjalasafna sem hafa verið gefin Kvennasögusafni heldur áfram jafnt og þétt. Markmiðið er að hafa gagnsæi í safnkostinum og greiða áhugasömum aðgang að honum til rannsókna og innblásturs. Á heimasíður okkar má sjá heildarlista yfir birtar skjalaskrár.
Hér er listi yfir það sem hefur ratað á heimasíðu okkar frá því birtur var listi síðast yfir nýjar skjalaskrár:
- Arnheiður Sigurðardóttir (1921–2001), þýðandi. KSS 2022/15.
- Dagný Kristjánsdóttir, prófessor. KSS 2022/5.
- Laufey Björg Magnúsdóttir Engilberts (1908-1996). KSS 178.
- Rannveig Tómasdóttir (1911–2005), ferðabókahöfundur. KSS 2019/13.
- Theodóra Thoroddsen (1863–1954), skáld. KSS 173.
- Sigríður Sigurðardóttir (1911–1990), kennari. KSS 193.
- Kvenfélagið Edda (st. 1948), eiginkonur prentara. KSS 188.
- Halldóra Valgerður Steinsdóttir (f. 1939), dagmóðir, Kvenfélag Árbæjarsóknar. KSS 2021/12.
- Friðarömmur (st. 1988). KSS 2022/18.
- Gallerí Langbrók (1978–1986). KSS 2024/4.
- Þóra Matthíasdóttir (1879–1970), kaupkona. KSS 2025/21.
- Guðrún Ágústsdóttir (f. 1947), bæjarfulltrúi. KSS 2021/29.
- Ingibjörg Guðlaugsdóttir (1887–1971), vinnukona. KSS 2025/2.
- Sigríður Guðmundsdóttir (1917–1997), húsmóðir og ritari. KSS 2025/15.
- Netið – samskiptanet kvenna (st. 1986). KSS 2021/5.
- Sigríður Árnadóttir (1907–1998), kennari, og fjölskylda. KSS 2025/18.
- Bryndís Dóra Þorleifsdóttir (1935–2016), húsmóðir. KSS 2025/16.
- Þórunn Hulda Sveinbjörnsdóttir (f. 1945), formaður stéttarfélags. KSS 2023/20.
- Anna Pjetursson (1845–1921), píanókennari. KSS 2021/18.
- Menningar- og friðarsamtök íslenskra kvenna (MFÍK) (st. 1951). KSS 2018/16.
- Kristín Jónsdóttir, Delta Kappa Gamma (2010–2012). KSS 2017/5.
- Sigurlaug Einarsdóttir (f. 1951), fóstra. KSS 2018/11.
- Kvenfélagasamband Gullbringu- og Kjósarsýslu (st. 1937). KSS 2019/8.
- Unnur Ágústsdóttir (1915–2001), framkvæmdastjóri. KSS 2018/8.
- Zontaklúbbur Reykjavíkur (st. 1941). KSS 2019/2.
- Þuríður Jóna Árnadóttir (1920–2012), rithöfundur. KSS 181.
- Guðrún Guðmundsdóttir (1880–1952), húsmóðir. KSS 2022/22.
- Sigurveig Guðmundsdóttir (1909–2010) kennari og húsmóðir. KSS 2022/21.
Hafið samband við safnið til að fá lánuð gögnin á lessal eða til að gefa dagbækur, sendibréf, fundargerðir, ræður og fleira sem kann að vera í ykkar fórum.
