Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður
- Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
- Safnmark
- KSS 2025/16
- Titill
- Bryndís Dóra Þorleifsdóttir
- Umfang
Fimm öskjur: dagbækur, ljósmyndir og fleiri skjöl.
- Tilvitnun
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 2025/16. Bryndís Dóra Þórhallsdóttir. Einkaskjalasafn.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara
Bryndís Dóra Þorleifsdóttir (1935-2016), húsmóðir
- Lífshlaup og æviatriði
Bryndís Dóra Þorleifsdóttir fæddist í Reykjavík 20. nóvember 1935. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni 20. ágúst 2016.
Foreldrar hennar voru Þorleifur Sigurbrandsson frá Ólafsvík, verkstjóri hjá ESSO (1890-1971) og Halla Einarsdóttur frá Fossi í Mýrdal, (1903–1998). Bryndís giftist 30. júní 1956 Jóni Þór Jóhannssyni (f. 1930) sem starfaði lengst af hjá Sambandi íslenskra samvinnufélaga. Börn þeirra: 1) Þorleifur Þór Jónsson f. 1958. 2) Stefanía Gyða Jónsdóttir, f. 1963. 3) Jóhann Þór Jónsson, f. 1969. 4) Bergrún Svava Jónsdóttir, f. 1969.
Bryndís lauk prófi frá Kvennaskólanum í Reykjavík 1953. Hún vann skrifstofustörf hjá Sambandinu í Reykjavík ásamt húsmóðurstörfum. Eftir hjónaband helgaði Bryndís sig uppeldi barna sinna og umsjón stórrar fjölskyldu. Hún tók virkan þátt í starfi Odfellowreglunnar í Rebekkustúkunni Bergþóru.
Heimild: Morgunblaðið 29. ágúst 2016.
- Varðveislusaga
Úr fórum dóttur Bryndísar, Bergrúnar Svövu Jónsdóttur.
- Um afhendingu
Gefið Kvennasögusafni þann 24. mars 2025
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not
- Aðgangur er öllum heimill
- Skilyrði er stjórna endurgerð
- Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
Athugasemdir
- Athugasemdir
Miðar í dagbók frá 2005 eru eftir barnabarn Bryndísar sem var að skoða handskrift ömmu sinnar til að hafa í húðflúri.
Bréfasafni hennar hafði verið fargað af öðrum ættingja.
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar
Rakel Adolphsdóttir skráði
- Reglur eða aðferð
Skráningin byggir á ISAD(G) staðlinum
- Dagsetning lýsingar
- 24. mars 2025
Skjalaskrá
askja 1
Dagbækur 2002, 2003, 2004, 2005
askja 2
Dagbækur 2006, 2007, 2008, 2009
askja 3
Dagbækur 2010, 2011, 2012, 2013
askja 4
Ljósmyndir, ca. 15
askja 5
Dagbók 2004, gorma
Önnur smáleg skjöl