Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

Kvenfélagið Edda (st. 1948), eiginkonur prentara. KSS 188.

Lýsandi samantekt

Varðveislustaður
Kvennasögusafn Íslands
Safnmark
KSS 188
Titill
Kvenfélagið Edda, eiginkonur prentara
Tímabil
1948-1988
Umfang

Ein askja

Tilvitnun

Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS  188þ Kvenfélagið Edda, eiginkonur prentara. Einkaskjalasafn.

Samhengi

Nöfn skjalamyndara

Kvenfélagið Edda (st. 1948), eiginkonur prentara

Lífshlaup og æviatriði

Eiginkonur prentara stofnuðu Kvenfélagið Eddu 7. apríl 1948. Tilgangur félagsins var „að auka kynni og félagslíf meðal prentarakvenna og vinna að framfara- og menningarmálum prentara og fjölskyldna þeirra“. Félagið lét sér meðal annars annt um starfsemi félagsheimilis prentara við Hverfisgötu 21 og var að ýmsu leyti bakhjarl Hins íslenzka prentarafélags. Félagið stóð fyrir ýmiss konar skemmtifundum, ferðalögum, basörum og fjáröflunum og sá um kaffiveitingar á viðburðum í félagsheimili prentara. Formaður Kvenfélagsins Eddu fyrstu 20 árin var Elín Guðmundsdóttir (1912–2003). Félagið starfaði fram á níunda áratug 20. aldar.

Um afhendingu

 Óvíst hvenær skjölin bárust en að öllum líkindum á svipuðum tima og skjöl Elínar Guðmundsdóttur bárust fyrst árið 2007.

Um aðgengi og not

Um aðgengi og not
Aðgangur er öllum heimill
Skilyrði er stjórna endurgerð
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
Tungumál
Íslenska

Tengt efni

Tengt efni

KSS 75. Elín Guðmundsdóttir.

KSS 6. Kvenréttindafélag Íslands.

Um lýsinguna

Athugasemdir skjalavarðar

Kristín Svava Tómasdóttir skráði innihald í september 2025

Rakel Adolphsdóttir tók saman lýsandi samantekt í nóvember 2025

Reglur eða aðferð

Skráningin byggir á ISAD(G) staðlinum 

Dagsetning lýsingar
21. nóvember 2025

Skjalaskrá

askja 1 

  • örk 1
    • Lög Kvenfélagsins Eddu í þremur eintökum
    • Lagabreytingartillaga
    • Minnispunktar um aukin kynni prentarakvenna, ódagsett
    • Samþykkt stjórnar um að stofna sumarheimilissjóð félagsins
  • örk 2
    • Nafnalistar félagskvenna frá sjöunda áratugnum, meðlimaskrá og listar fyrir basar
  • örk 3
    • Boðskort á fundi og viðburði
  • örk 4
    • Þakkarkort, jólakort, minningarkort
  • örk 5
    • Símskeyti
  • örk 6, sendibréf:
    • Erindisbréf fyrir kvenréttindanefndir KRFÍ
    • Formaður Kvenréttindafélags Íslands til Eddu í júlí 1956 með hvatningu um að ganga í félagið
    • Kvennadeild MÍR til Eddu 5. apríl 1958 með boði um að vera aðili að heimboði sovéskrar kvennanefndar til Íslands
    • Loftleiðir til Eddu 18. nóvember 1957, með fyrirspurn um hvort félagið hyggist efna til hópferðalags til útlanda á næsta ári
    • Pétur Pétursson til Eddu 1. október 1960 með boði um að útvega innlenda og erlenda skemmtikrafta
  • örk 7
    • Gögn varðandi happdrætti félagsins
  • örk 8
    • Gögn varðandi styrktarsjóð félagsins, svo sem lög og lagabreytingartillögur og listar yfir konur sem hann styrkti
  • örk 9
    • Gögn varðandi fána sem eiginkonur prentara gáfu Hinu íslenzka prentarafélagi á 50 ára afmæli þess
  • örk 10
    • Ýmsir reikningar
  • Mappa sem skjalasafnið var í, merkt Dokumenter