Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

Laufey Björg Magnúsdóttir Engilberts (1908-1996). KSS 178.

Lýsandi samantekt

Varðveislustaður
Kvennasögusafn Íslands
Safnmark
KSS 178
Titill
Laufey Björg Magnúsdóttir Engilberts
Tímabil
1956
Umfang

Ein askja, þunn.

Tilvitnun

Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 179. Laufey Björg Magnúsdóttir Engilberts. Einkaskjalasafn.  

Samhengi

Nöfn skjalamyndara

Laufey Björg Magnúsdóttir Engilberts (1908-1996)

Lífshlaup og æviatriði

Laufey Björg Magnúsdóttir Engilberts fæddist í Reykjavík 26. júlí 1908. Hún lést 9. apríl síðastliðinn. Laufey var dóttir Margrétar Magnúsdóttur frá Horni i Skorradal og Magnúsar Magnússonar frá Beitistöðum í Leirársveit, verkamanns í Reykjavík. Systkini Laufeyjar voru Magnea Ingileif húsfreyja, 1905-1958, Þórunn Elfa rithöfundur, 1910-1995, og Gunnar Aðalsteinn, klæðskeri og kaupmaður, 1913-1990. Árið 1944 giftist hún Grími Alfreð Engilberts Sigurjónssyni, prentara og síðar ritstjóra Æskunnar, 1912-1988, og eignuðust þau soninn Sigurjón Birgi. Útför Laufeyjar hefur farið fram í kyrrþey.

 

Var í Kvenfélagi sósíalista og Prentarakvennafélaginu Eddu – og í stjórn beggja um tíma.

Bjó lengi á Njálsgötu.

 

Heimild: Morgunblaðið 19. apríl 1996: https://timarit.is/page/1852207?iabr=on

Um afhendingu

 3. maí 1984 Laufey Magnúsdóttir Engilberts gaf plögg og bréf frá Japan m.a. frá konu í Esperantófélaginu þar í landi  - eru a.m.k. minni esperanto safnsins Laufey undirskriftum að bréfi gegn kjarnorku og irefnisprengjum sjá þakkarbréfið.

Um aðgengi og not

Um aðgengi og not
Aðgangur er öllum heimill
Skilyrði er stjórna endurgerð
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
Tungumál
Íslenska, esperanto, japanska

Tengt efni

Tengt efni

Kvennasögusafn:

KSS 17. Kvenfélag sósíalista.

KSS 188. Prentarakvennafélagið Edda.

 

Handritasafn: Lbs 811 NF Grímur og Laufey Engilberts (sjö öskjur)

Um lýsinguna

Athugasemdir skjalavarðar

Rakel Adolphsdóttir vann lýsandi samantekt og setti á safnmark, nóvember 2025.

Skjölin voru áður skráð í öskju með samtíminingi.

Reglur eða aðferð

Skráningin byggir á ISAD(G) staðlinum 

Dagsetning lýsingar
21. nóvember 2025

Skjalaskrá

Nokkur bréf og kort: japan, esperanto, kjarnorka, Þorsteinn Finnbjarnarson, Esperantófélag kvenna Japan, 1956