Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

Fréttir

SAGAN Í FJÖTRUM FORTÍÐAR // Vinnustofa fyrir fatlaðar konur

Hvernig segjum við sögu fatlaðra kvenna? Fatlað fólk hefur verið falið frá örófi alda; í skúmaskotum, háaloftum og jafnvel bakvið rúmgafla — og sagan um þau er stráð niðrandi orðalagi og niðurlægjandi frásögnum. Saga sem er fyrst og fremst sögð af ófötluðu fólki.   Hvaða áhrif hefur fortíðin á skilning okkar á nútímanum? Hvernig viljum við…

Lesa meira : SAGAN Í FJÖTRUM FORTÍÐAR // Vinnustofa fyrir fatlaðar konur

ÚT ÚR SKJALASKÁPNUM // Vinnustofa fyrir hinsegin fólk

Hvernig segjum við sögu hinsegin fólks?  Hinsegin fólk hefur alltaf verið til, en sagan þeirra er týnd, gleymd og falin í brenndum ástarbréfum, óræðu orðalagi, afneitun afkomenda og ótta við að setja merkimiða á löngu látið fólk.  Hvaða áhrif hefur fortíðin á skilning okkar á nútímanum? Hvernig viljum við að sagan sé sögð og hvaða…

Lesa meira : ÚT ÚR SKJALASKÁPNUM // Vinnustofa fyrir hinsegin fólk

SAGAN MENNDURTEKUR SIG // Vinnustofa fyrir konur af erlendum uppruna

Hvernig segjum við sögu kvenna af erlendum uppruna? Kvennasögusafn býður konum af erlendum uppruna til vinnustofu laugardaginn 7. nóvember 2026, kl. 10:00-12:30 á Landsbókasafni, Þjóðarbókhlöðu, Arngrímsgötu 3.  Mannkynssagan er einmitt það; hún snýst mestmegnis í kringum „mennina“ í „mannkyninu“. Þetta á sérstaklega við sögu kvenna af erlendum uppruna sem búa á Íslandi. Þær týnast oft,…

Lesa meira : SAGAN MENNDURTEKUR SIG // Vinnustofa fyrir konur af erlendum uppruna

Nýjar skjalaskrár á vefnum, október 2026

(Tilvísun ljósmyndar: KSS 2018/16. Menningar- og friðarfélag íslenskra kvenna. Ljósmynd 68.) Skráning á innihaldi skjalasafna sem hafa verið gefin Kvennasögusafni heldur áfram jafnt og þétt. Markmiðið er að hafa gagnsæi í safnkostinum og greiða áhugasömum aðgang að honum til rannsókna og innblásturs. Á heimasíður okkar má sjá heildarlista yfir birtar skjalaskrár. Hér er listi yfir…

Lesa meira : Nýjar skjalaskrár á vefnum, október 2026

Sumarfrí 1. júlí – 4. ágúst 2026

Kvennasögusafn er lokað vegna sumarfrís starfsmanns þess frá miðvikudeginum 1. júlí og fram yfir verslunarmannahelgi.  Gögn sem hafa verið pöntuð til afnota á lessal Landsbókasafns verða aðgengileg þar til Landsbókasafn lokar 20. júlí og fram yfir verslunarmannahelgi. Íslandssafn getur afgreitt flest gögn Kvennasögusafns á lessal eftir tilvikum, sendið tölvupóst á netfangið islandssafn (hjá) landsbokasafn.is til að…

Lesa meira : Sumarfrí 1. júlí – 4. ágúst 2026

Leiðsagnir um sýninguna VIÐ ERUM MARGAR

Verið velkomin í leiðsögn um 50 ára afmælissýningu Kvennasögusafns á lokadögum hennar í Þjóðarbókhlöðunni. Rakel Adolphsdóttir sýningarstjóri og Kristín Svava Tómasdóttir, textahöfundur sýningarinnar, segja frá fjölbreyttum hópi kvenna sem unnu ýmis konar störf á fyrri hluta 20. aldar, stofnuðu félagasamtök, buðu sig fram til þings og forseta ásamt því að taka þátt í kvennaverkföllum. Leiðsagnirnar…

Lesa meira : Leiðsagnir um sýninguna VIÐ ERUM MARGAR

KVENNASÖGU barsvar 9. mars!

Verið hjartanlega velkomin á KVENNASÖGU barsvar! Mánudaginn 9. mars kl. 20:00 á Stúdentakjallaranum. Kamilla Einarsdóttir og Kristín Svava Tómasdóttir munu athuga hversu mikið þú veist um mikilvægar konur, um spennandi leyndarmál og merkisverða atburði! Hristið kvennasögu staðreyndirnar fram úr ermunum til að vinna sögulega vinninga! 9. mars er einnig síðasti dagur afmælissýningar Kvennasögusafns VIÐ ERUM…

Lesa meira : KVENNASÖGU barsvar 9. mars!

Kvennaskólastúlkurnar. Nemendatal Kvennaskóla Húnvetninga 1879–1901.

Þórhildur Ísberg (f. 1925) hefur tekið saman upplýsingar um nemendur í Kvennaskóla Húnvetninga 1879-1901 og fjölskyldan hennar hefur tekið upplýsingarnar saman í bók sem er aðgengileg á Kvennasögusafni bæði rafrænt sem og í bókaformi. Þá hefur fjölskyldan einnig sett upp heimasíðu þar sem upplýsingar um nemendurna eru aðgengilegar. Elín Briem sá um aðalkennslu í skólanum…

Lesa meira : Kvennaskólastúlkurnar. Nemendatal Kvennaskóla Húnvetninga 1879–1901.