Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

Ingibjörg Guðlaugsdóttir (1887-1971), vinnukona. KSS 2025/2.

Lýsandi samantekt

Varðveislustaður
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
Safnmark
KSS 2025/2
Titill
Ingibjörg Guðlaugsdóttir
Tímabil
1911-1947
Umfang

Lítill kistil sem tilheyrði Ingibjörgu Guðlaugsdóttur (1887-1971) vinnukonu. Í kistlinum var bréf frá Ragnhildi Guðmundsdóttur móður hennar ásamt ljósmynd af henni, önnur ljósmynd af ónafngreindu barni, leyfisblað fyrir lausamennskju 1918 og gleraugu Ingibjargar.

Tilvitnun

Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 2025/2. Ingibjörg Guðlaugsdóttir. Einkaskjalasafn.

Samhengi

Nöfn skjalamyndara

Ingibjörg Guðlaugsdóttir (1887-1971), vinnukona

Lífshlaup og æviatriði

Upplýsingar fylgdu afhendingu:

„Ingibjörg var fædd árið 1887 að Sogni í Kjósarhreppi. Foreldrar hennar voru Guðlaugur Jakobsson og Ragnhildur Guðmundsdóttir (1855-1944). Guðlaugur og Ragnhildur einguðust alls 11 börn, 10 þeirra komust á legg: Margrét (182-1954), Jakob (f. 1885), Guðmundur (f. 1886), Ingibjörg f. 1887, Guðbjörg 1890-1958, Sesselja 1891-1954, Gróa 1892, Valdimar 1894, Ólafur R 1895-1918, Guðný 1896.

 

Ingibjörg var vinnukona á Bæ í Kjós, hún er titluð verkakona en síðar vinnukona og þjónustustúlka í pappírum eftir að hún kom á Blönduós.

 

Amma gefanda, Guðbjörg Guðmundsdóttir Kolka, var frænka Ingibjargar, þær voru systkinabörn, og eftir fæðingu sonar hennar bað hún Ingibjörgu að koma í vist til sín, en hún bjó þá í Reykjavík. Til þess þurfti Ingibjörg leyfi frá sýslumanni. Ingibjörg flutti með ömmu minni og manni hennar Páli V.G. Kolka til Vestmannaeyja árið 1920 og síðan með þeim á Blönduós 12 árum seinna. Hún sá um ýmislegt í heimilishalidnu, m.a. alla þvotta og ræstingar á heimilinu og apótekinu. En auk þess hjálpaði híun afa mínum á skurðstofunni, hún svæfði alla sjúklinga sem fóru í aðgerðir hjá honum á spítalanum, m.a. undirritaða. Aldrei hlaut hún þó titilinn svæfingalæknir eða neitt í þá átt.“

[…]

 

Ingibjörg var góð saumakona, suamaðu og prjónaði föt og orkeraði fegurstu blúndur og milliverk. Einnig hafði hún góða söngrödd og kunni ótal af textum.

 

Ingibjörg lést í desember 1971 og var jarðsett að Reynivöllum í Kjós.“

Um afhendingu

Margrét Kolka Haraldsdóttir (f. 1948) kom færandi hendi á Kvennasögusafn fyrir hönd Baldurs Inga  Ísberg en sá síðarnefndi hafði erft lítinn kistil sem tilheyrði Ingibjörgu Guðlaugsdóttur (1887-1971) vinnukonu. Í kistlinum var bréf frá Ragnhildi Guðmundsdóttur móður hennar ásamt ljósmynd af henni, önnur ljósmynd af ónafngreindu barni,  leyfisblað fyrir lausamennskju og gleraugu Ingibjargar. Ingibjörg þessi var frænka ömmu Margrétar Kolku og með afhendingunni fylgdu upplýsingar um Ingibjörgu. Skjalasafnið smáa verður í opnum aðgangi að beiðni gefanda.

Um aðgengi og not

Um aðgengi og not
Aðgangur er öllum heimill
Skilyrði er stjórna endurgerð
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
Tungumál
Íslenska

Um lýsinguna

Athugasemdir skjalavarðar

Rakel Adolphsdóttir skráði

Dagsetning lýsingar
10. júlí 2025

Skjalaskrá

askja 1

Kistill og gleraugu

 

askja 2

örk 1: Upplýsingar um Ingibjörgu sem fylgdu afhendingu, Ræða Halldóru Kolka Ísberg frá Kolkaættarmóti að Hólum í Hjaltadal júní 1995

 

örk 2:

Innihald kistils:

  • Bréf frá Ragnhildi Guðmundsdóttur móður hennar ásamt ljósmynd af henni og önnur ljósmynd af ónafngreindu barni
  • Vottor um heimild til að vera í lausamennsku útgefið 1918
  • Tryggingarskírteini fyrir árið 1947
  • Nafnskírteini 1947
  • Póstkort afmælisóskri frá góðvini hennar Oddi 3. mars 1911
  • Vísur, höfundur ókunnur