Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

Þuríður Jóna Árnadóttir (1920-2012), rithöfundur. KSS 181.

Lýsandi samantekt

Varðveislustaður
Kvennasögusafn Íslands
Safnmark
KSS 181
Titill
Þuríður Jóna Árnadóttir
Tímabil
1958-2010
Umfang

Átta öskjur

Tilvitnun

Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS  181. Þuríður Jóna Árnadóttir. Einkaskjalasafn.

Samhengi

Nöfn skjalamyndara

Þuríður Jóna Árnadóttir (1920-2012), rithöfundur

Lífshlaup og æviatriði

Þuríður Jóna Árnadóttir fæddist í Miðdölum, Dalasýslu, 8. september 1920. Hún lést á Dvalarheimilinu Grund 14. desember 2012. Foreldrar hennar voru Sigurjóna Jónsdóttir frá Arnarstapa, Snæfellsnesi (1894-1959) og Árni Jónasson ullarmatsmaður frá Stóra-Vatnshorni í Haukadal (1892-1968).

Þuríður var einkabarn foreldra sinna og ólst upp í foreldrahúsum í Skriðukoti í Haukadal. Fluttist hún þaðan með foreldrum sínum til Reykjavíkur árið 1934. Þuríður giftist Ingólfi Jónssyni, frá Stöðvarfirði, (1908-1998) árið 1941. Þau skildu. Þuríður og Ingólfur eignuðust eina dóttur, Steinunni, (f. 1943). Árið 1958 giftist Þuríður honum Einari Alberti Magnússyni leigubifreiðastjóra frá Leirubakka í Landsveit (1917-1992). Þuríður og Einar eignuðust Árna Kristin, (f. 1959).

„Þuríður tók barna- og gagnfræðaskólapróf í Reykjavík. Síðari á ævinni stundaði hún nám við öldungadeild Menntaskólans við Hamrahlíð. Hún vann lengi við verslunarstörf í Reykjavík, m.a. hjá kvenfataverslununum Ninon og Feldinum. Ljósmyndun var Þuríði mjög hugleikin og starfaði hún m.a. hjá ljósmyndastofu Vigfúsar Sigurgeirssonar og ljósmyndastofu Lofts. Á sjötta áratugnum fór Þuríður til Bandaríkjanna og starfaði þar við ýmis þjónustustörf. Eftir að heim kom starfaði hún í mörg ár hjá Sambandi íslenskra samvinnufélaga við verslunarstörf og kenndi þar m.a. á Singer-saumavélar eftir að hafa sótt nokkurra mánaða námskeið þar að lútandi í London.

Þuríður stundaði ritstörf, skrifaði sögur og ljóð. Auk þess sem hún tók fjölmörg viðtöl við alþýðuhetjur víða um land sem birtust í Lesbók Morgunblaðsins undir stjórn Gísla Sigurðssonar ritstjóra. Þuríður var vel hagmælt og ættingjar hennar gáfu út ljóðasafn hennar „Hvaðan og hvert“ á nýræðisafmæli hennar 2010. Þuríður og Einar bjuggu í Reykjavík, lengst af á Háaleitisbraut og síðar í Mávahlíð. Eftir lát Einars bjó Þuríður áfram í Mávahlíð en flutti á Dvalarheimilið Grund haustið 2011.“

Heimild: Morgunblaðið 21. desember 2012 https://www.mbl.is/greinasafn/grein/1448649/

Um afhendingu

Þann 4. apríl 2016 barst um hendur Hákons Arnars Árnasonar ýmislegt efni úr fórum ömmu hans Þuríðar Jónu Árnadóttur (1920-2012).

Innihald og uppbygging

Umfang og innihald

24 dagbækur ritaðar á árunum 1958, 1986 og svo 1993-2010. Handrit að smásögum, ljóðum, æviminningum og ritgerðum. 

Um aðgengi og not

Um aðgengi og not
Aðgangur er öllum heimill
Skilyrði er stjórna endurgerð
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
Tungumál
Íslenska

Um lýsinguna

Athugasemdir skjalavarðar

Rakel Adolphsdóttir flokkaði og skráði 

Reglur eða aðferð

Skráningin byggir á ISAD(G) staðlinum 

Dagsetning lýsingar
18. mars 2025

Skjalaskrá

A. Dagbækur

askja 1 

  • Skrifbók barna
  • 1958
  • 1986
  • 1993
  • 1994-1995
  • 1995
  • 1996
  • 1997
  • 1998
  • 2000
  • 2000-2001

Askja 2

  • 2001
  • 2001-2002
  • 2002
  • 2002
  • 2003

Askja 3

  • 2004
  • 2005
  • 2005-2006
  • 2006-2007
  • 2007-2008
  • 2008-2009
  • 2009
  • 2010
  • 2010

B. Handrit

Askja 4

Mappa: Blá mappa

Askja 5

Handrit eins og þau voru í bláu möppunni: T.d. „Konur og jafnrétti“

Askja 6

Handrit, ljóð

Askja 7

Handrit, smásögur, og skólaverkefni

Askja 8

Handrit: „Kona á 20. öld. Sigríður Ingimundardóttir rekur hér æviminningar sínar, eins og hún mundi þær best á sínum síðustu æviárum. Hún lést 1989 á 94. aldursári.“