Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

Nýjar skjalaskrár á vefnum, október 2026

(Tilvísun ljósmyndar: KSS 2018/16. Menningar- og friðarfélag íslenskra kvenna. Ljósmynd 68.)

Skráning á innihaldi skjalasafna sem hafa verið gefin Kvennasögusafni heldur áfram jafnt og þétt. Markmiðið er að hafa gagnsæi í safnkostinum og greiða áhugasömum aðgang að honum til rannsókna og innblásturs. Á heimasíður okkar má sjá heildarlista yfir birtar skjalaskrár.

Hér er listi yfir það sem hefur ratað á heimasíðu okkar frá því birtur var listi síðast yfir nýjar skjalaskrár:

  1. Arnheiður Sigurðardóttir (1921–2001), þýðandi. KSS 2022/15.
  2. Dagný Kristjánsdóttir, prófessor. KSS 2022/5.
  3. Laufey Björg Magnúsdóttir Engilberts (1908-1996). KSS 178.
  4. Rannveig Tómasdóttir (1911–2005), ferðabókahöfundur. KSS 2019/13.
  5. Theodóra Thoroddsen (1863–1954), skáld. KSS 173.
  6. Sigríður Sigurðardóttir (1911–1990), kennari. KSS 193.
  7. Kvenfélagið Edda (st. 1948), eiginkonur prentara. KSS 188.
  8. Halldóra Valgerður Steinsdóttir (f. 1939), dagmóðir, Kvenfélag Árbæjarsóknar. KSS 2021/12.
  9. Friðarömmur (st. 1988). KSS 2022/18.
  10. Gallerí Langbrók (1978–1986). KSS 2024/4.
  11. Þóra Matthíasdóttir (1879–1970), kaupkona. KSS 2025/21.
  12. Guðrún Ágústsdóttir (f. 1947), bæjarfulltrúi. KSS 2021/29.
  13. Ingibjörg Guðlaugsdóttir (1887–1971), vinnukona. KSS 2025/2.
  14. Sigríður Guðmundsdóttir (1917–1997), húsmóðir og ritari. KSS 2025/15.
  15. Netið – samskiptanet kvenna (st. 1986). KSS 2021/5.
  16. Sigríður Árnadóttir (1907–1998), kennari, og fjölskylda. KSS 2025/18.
  17. Bryndís Dóra Þorleifsdóttir (1935–2016), húsmóðir. KSS 2025/16.
  18. Þórunn Hulda Sveinbjörnsdóttir (f. 1945), formaður stéttarfélags. KSS 2023/20.
  19. Anna Pjetursson (1845–1921), píanókennari. KSS 2021/18.
  20. Menningar- og friðarsamtök íslenskra kvenna (MFÍK) (st. 1951). KSS 2018/16.
  21. Kristín Jónsdóttir, Delta Kappa Gamma (2010–2012). KSS 2017/5.
  22. Sigurlaug Einarsdóttir (f. 1951), fóstra. KSS 2018/11.
  23. Kvenfélagasamband Gullbringu- og Kjósarsýslu (st. 1937). KSS 2019/8.
  24. Unnur Ágústsdóttir (1915–2001), framkvæmdastjóri. KSS 2018/8.
  25. Zontaklúbbur Reykjavíkur (st. 1941). KSS 2019/2.
  26. Þuríður Jóna Árnadóttir (1920–2012), rithöfundur. KSS 181.
  27. Guðrún Guðmundsdóttir (1880–1952), húsmóðir. KSS 2022/22.
  28. Sigurveig Guðmundsdóttir (1909–2010) kennari og húsmóðir. KSS 2022/21.

Hafið samband við safnið til að fá lánuð gögnin á lessal eða til að gefa dagbækur, sendibréf, fundargerðir, ræður og fleira sem kann að vera í ykkar fórum.