May 3, 2019

Við tökum vel á móti þér - Ljósmæðrafélag Íslands 100 ára


Í tilefni af 100 ára afmæli Ljósmæðrafélags Íslands verður opnuð sýning í Þjóðarbókhlöðu á degi ljósmæðra, sunnudaginn 5. maí. Ljósmæðrafélag Íslands stendur að sýningunni í samstarfi við Kvennasögusafn Íslands og Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn.

Þann 2. maí árið 1919 komu 20 ljósmæður saman á heimili Þórdísar Elínar Jónsdóttur Carlquist ljósmóður og eiginmanns hennar, Alex Wilhelm Carlquist vindlagerðarmanns, á Laugavegi 20 í Reykjavík í þeim tilgangi að stofna félag ljósmæðra. Tilgangur með stofnun félagsins var að efla hag ljósmæðrastéttarinnar og standa vörð um kjör þeirra. Einnig að glæða áhuga þeirra og þekkingu fyrir öllu því er að ljósmæðrastarfi þeirra laut. Í þessum 20 kvenna hópi voru 10 nýútskrifaðar ljósmæður frá Yfirsetukvennaskólanum. Aðeins fæddist eitt stúlkubarn í Reykjavík daginn sem félagið var stofnað og því hafa flestar starfandi ljósmæður í Reykjavík átt þess kost að mæta á stofnfund félagsins. Hlaut félagið nafnið „Ljósmæðrafélag Íslands“ og er fyrsta stéttarfélag faglærðra kvenna á Íslandi. Í fyrstu stjórn Ljósmæðrafélags Íslands voru ljósmæðurnar, Þuríður Bárðardóttir, formaður, Þórdís Elín Jónsdóttir Carlquist ritari, Þórunn Ástríður Björnsdóttir gjaldkeri. Í dag skipa stjórn félagsins sjö ljósmæður og núverandi formaður er sú sextánda í röð formanna.

Dagskrá við opnun sýningarinnar:
Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir landsbókavörður býður gesti velkomna.
Jan Bakke fyrsti ljósfaðir Noregs flytur ávarp.
Áslaug Valsdóttir formaður Ljósmæðrafélagsins afhendir Kvennasögusafni gögn frá félaginu.
Ólöf Ásta Ólafsdóttir prófessor í ljósmóðurfræði segir frá sýningunni.
Fundarstjóri verður Rakel Adolphsdóttir sérfræðingur á Kvennasögusafni Íslands.
Gestum boðið að skoða sýninguna á 1. hæð Þjóðarbókhlöðu.
Boðið verður upp á léttar veitingar á 2. hæð Þjóðarbókhlöðu.


ris Valsdóttir, formaður Ljósmæðrafélagsins afhendir Rakel Adolphsdóttur, frá Kvennasögusafni, skjalasafn félagsins 20192019 Ljósmæðrafélagið sýning gestir

Ljosmaedrafelagid2019.jpg