Kvennasögusafn verður með á Kynjaþingi þann 3. mars!
Málstofa Kvennasögusafns verður frá kl. 12:00-12:45 í Tækniskólanum. Þar mun Rakel Adolphsdóttir kynna starfsemi safnsins, Íris Ellenberger kynnir verkefni sitt „Huldukonur“ og Kristín Jónsdóttir kynnir vef sinn www.kvennalistinn.is. Bæði verkefnin styðja m.a. við gögn sem Kvennasögusafn varðveitir.
Sjá nánar um Kvennaþing:
Við viljum bjóða ykkur hjartanlega velkomin á Kynjaþing 2018, þar sem fjöldi samtaka og hópa ræða um jafnrétti og femínisma.
Þingið er haldið laugardaginn 3. mars í Tækniskólanum á Skólavörðuholti og hefst dagskrá klukkan 12.
Kynjaþing er lýðræðislegur og femínískur vettvangur fyrir almenning. Dagskrá þingsins er skipulögð af félagasamtökum og grasrótarsamtökum og hugmyndin er sú að auka samræður milli okkar sem er annt um jafnrétti í heiminum og gefa almenningi tækifæri til að kynnast því helsta sem er að gerast í femíniskri umræðu.
Ókeypis aðgangur er að kynjaþingi og öll velkomin.
Dagskráin er fjölbreytt. Á þinginu er fjallað um #metoo byltinguna frá ýmsum vinklum, rætt um mansal, rætt um nýjustu rannsóknir í ofbeldi á Íslandi, fjallað um femínísk stjórnmál og kvennasögu, kynjuð fjármál, fatlaðar konur, kyn og hinsegin fræði, stöðu kvenna af erlendum uppruna, karla og jafnrétti, konur og fíkn og margt, margt fleira.
Á þinginu verða einnig sýndar kvikmyndir: Myndin af mér eftir Brynhildi Björnsdóttur og Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur, Munda eftir Tinnu Hrafnsdóttur og Regnbogapartý eftir Evu Sigurðardóttur sem vann Edduverðlaunin 2016. Femínískt kaffihús verður rekið í Tækniskólanum á meðan þinginu stendur þar sem þátttakendum gefst tækifæri á að spreyta sig á femínísku hannyrðapönki, og þinginu lýkur á Shirley Temple partíi fyrir þátttakendur og gesti!
Nánari dagskrá Kynjaþings er að finna á síðunni: http://kynjathing.is/dagskra.