Jan 2, 2025

Kvennasögusafn 50 ára!


Kvennasögusafn er fimmtugt í dag! Það var stofnað 1. janúar 1975 af þremur konum: Önnu Sigurðardóttur, Elsu Miu Einarsdóttur og Svanlaugu Baldursdóttur. Það var stofnað á heimili Önnu, á fjórðu hæð í blokk á Hjarðarhaga 26 í Reykjavík og starfaði hún þar sem forstöðukona Kvennasögusafns í 20 ár.

Kvennasögusafn spratt upp sem andsvar við hefðbundinni söguskoðun, sem lagði mesta áherslu á afrek karla. Markmiðið var að draga fram sögu kvenna og framlag þeirra til samfélagsins í gegnum aldirnar, svo ekki verði áfram hægt að falsa söguna með þögninni.

Frá upphafi var markmið þess að það fengi skjól hjá stóru opinberu safni, helst í Þjóðarbókhlöðunni sem þá var í byggingu. Eftir þrotlausa baráttu kvenna og félagasamtaka þeirra varð sá draumur að veruleika. Þegar Bókhlaðan opnaði dyr sínar 1. desember 1994 var frátekið pláss fyrir Kvennasögusafn á 4. hæð. Kvennasögusafn hefur starfað innan Landsbókasafnsins síðan, sem séreining í stærra safni, með einn starfsmann á launum og þrjár manneskjur í stjórn. Safnið vinnur áfram í anda þeirrar stefnu frá 1975 að auka sýnileika kvenna á Íslandi í þjóðarsögunni með upplýsingagjöf, sérstökum verkefnum og söfnun einkaskjala.

Allt árið 2025 verður haldið upp á 50 ára afmæli safnsins sem jafnframt er 50 ára afmæli kvennaársins 1975 og hins afdrifaríka kvennafrídags. Þá verður blásið í seglin og fjölmargir viðburðir munu eiga sér stað með hátindi ársins í haust þegar sögusýning opnar í Þjóðarbókhlöðunni. Við hlökkum til að halda upp á afmælisárið með ykkur, gleðilegt nýtt ár!

{Gallery dir='Kvennasogusafn-50-ara/Stofnun-1975'}

KSS003

KSS003-00017 KSS003-00026

Stofnun 1975 Kvennaár 2025 2.png