Nov 27, 2023

Fræðakaffi 27. nóvember, Borgarbókasafnið Spönginni: Ástarbréfin í Kvennasögusafni.


„Ég vona að þú gefir eldinum þetta bréf, hitaðu ofninn með því.“

Rakel Adolphsdóttir sagnfræðingur og fagstjóri Kvennasögusafns á Landsbókasafni segir frá ástarbréfum sem leynast á safninu í fræðakaffi Borgarbókasafnsins Spönginni kl. 16:30 þann 27. nóvember 2023.

Ástarbréf eru vitnisburður um ástarjátningu. Þau eru efnislegur hlutur sem hægt er að halda á, faðma að sér og lesa aftur og aftur. Bréfin geta breyst með tímanum og átt framhaldslíf, en það er líka hægt að eyða þeim.

Það er fágætt að ástarbréf endi á skjalasafni þar sem þau eru gerð aðgengileg öðrum, enda innihalda þau oftast tilfinningarík og persónuleg einkamál. Sum ástarbréf eru þó skrifuð með það í huga að þau verði varðveitt á Landsbókasafni.

Í fyrirlestrinum verður fjallað um hvers konar ástarbréf eru afhent Kvennasögusafni til varðveislu, hver skrifaði þau og fyrir hvern, hvernig aðgengi er að þeim sem og hvernig er að kafa ofan í einkalíf annarra í fræðilegum tilgangi.

Vísir.is tók viðtal við Rakel fyrir erindið. Ljósmyndina tók Vilhelm.

RakelVisirVilhelm261123.jpg