Jun 14, 2023

Á rauðum sokkum í hálfa öld. Málþing um Rauðsokkahreyfinguna


Þann 24. apríl 1970 hittust konur fyrst á rauðum sokkum og tóku þátt í undirbúningi fyrir kröfugöngu 1. maí þar sem þær kröfðust jafnréttis kynjanna. Á baráttuspjöldum þeirra stóð meðal annars „vaknaðu kona“ og „konur nýtum mannréttindin“. Þá báru þær á herðum sér Venusarstyttu með borða sem á stóð „manneskja en ekki markaðsvara“, eins og frægt er orðið. Með þessari aðgerð var tónninn sleginn og við tók rúmlega áratuga barátta Rauðsokkahreyfingarinnar fyrir bættum kjörum kvenna í íslensku samfélagi. Þann 7. september sama ár fundaði 20 kvenna framkvæmdanefnd hreyfingarinnar í fyrsta sinn og ákváðu skipulag og stefnu hennar.

Þann 7. september á þessu ári, rúmlega hálfri öld frá þessum fyrstu skipulögðu skrefum kvenna á rauðum sokkum, verður haldið málþing sem beinir sjónum að arfleifð Rauðsokkahreyfingarinnar. Málþingið er haldið í samstarfi Kvennasögusafns á Landsbókasafni og RIKK – Rannsóknastofnunar í jafnréttisfræðum við Háskóla Íslands. Staðsetning verður tilkynnt síðar.

Í undirbúningi fyrir 50 ára afmæli Rauðsokkahreyfingarinnar komu fulltrúar hennar á fund Kvennasögusafns og Landsbókasafns með það í huga að gera skjala- og upplýsingavef um störf hennar. Úr varð rúmlega 30.000 orða vefur með 1.000 stafrænum skjölum sem var opnaður formlega þann 24. október 2022, á sjálfan kvennafrídaginn en hreyfingin átti kveikjuna að honum á sínum tíma. Vefurinn var settur fram með áherslum og í orðum fulltrúa Rauðsokkahreyfingarinnar undir leiðsögn fagstjóra Kvennasögusafns. Vefnum er ætlað að auka söguvitund almennings um þetta umbrotatímabil, nýtast í kennslu á nokkrum skólastigum sem og að vera hvatning fyrir fræðilegar rannsóknir. Á málþinginu eru slíkar rannsóknir í forgrunni og fræðifólk hvatt til að nýta vefinn til að varpa nýju ljósi á baráttu hreyfingarinnar.

Meðal umfjöllunarefna á málþinginu eru áhrif Rauðsokkahreyfingarinnar á íslenskt jafnréttissamfélag, jafnréttisbaráttu kynjanna, menningarlegt landslag og framsetning sögulegs efnis sem snýr að jafnréttisbaráttunni.

 

Staðsetning og dagskrá verða tilkynnt síðar

raudirsokkar_minnispjold_1juni3-scaled.jpg