Skjalasöfn einstaklinga

Ólöf Pétursdóttir Hraunfjörð (1932-2011). KSS 48.


Lýsandi samantekt

  • Varðveislustaður:

    Kvennasögusafn Íslands

  • Safnmark:

    KSS 48

  • Titill:

    Ólöf Pétursdóttir Hraunfjörð

  • Umfang:

    Fimm öskjur

  • Tilvitnun:

    Landsbókasafn Íslands ― Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 48. Ólöf Pétursdóttir Hraunfjörð. Einkaskjalasafn.

Samhengi

  • Nöfn skjalamyndara:

    Ólöf Pétursdóttir Hraunfjörð (1932-2011)

  • Lífshlaup og æviatriði:

    Fædd að Selbúðum í Reykjavík 10. júlí 1932, †í Reykjavík 6. des. 2011.
    For.: Kristjánsína Sigurást Kristjánsdóttir (Ásta), fiskverkakona, og Jóhann Pétur Jónsson Hraunfjörð, skipstjóri og verkamaður .
    Lauk gangfræðaprófi frá Gagnfræðaskóla Hveragerðis 1948 og var í Húsmæðraskólanum á Löngumýri 1949-1950. Lauk stúdentsprófi frá MH 1990. Lauk prófi sem bókavörður 1995.
    Vann m.a. í bókabúð KRON, hjá RARIK, og hjá Strætisvögnum Kópavogs. Hún var virk í félagsmálum, sat um tíma í stjórn Menningar og friðarsamtaka íslenskra kvenna og var varabæjarfulltrúi Alþýðubandalagsins í Kópavogi.

    Giftist 14. maí 1955 Karli Árnasyni, forstjóra Strætisvagna Kópavogs, og eignuðust þau 3 börn.

    Sjá minningargrein í Morgunblaðinu, 20. des. 2011.

  • Varðveislusaga:

    Skjölin voru í fórum Ólafar Pétursdóttur.

  • Um afhendingu:

    Skjöl bárust Kvennasögusafni Íslands um hendur Jóhannesar Hraunfjörð Karlssonar 7. febrúar 2013. Hann afhenti það fyrir hönd allra barna Ólafar: Petrína Rós Karlsdóttir, Jóhannes Hraunfjörð karlsson og Pétur Karlsson.

Innihald og uppbygging

  • Umfang og innihald:

    Safnið hefur að geyma ýmis konar samtíning frá Ólöfu, m.a. sendibréf og afrit af minningargreinum sem Ólöf skrifaði. Einnig ljósrit af lífsferli Jóhönnu Kristínar Yngvadóttur, listmálara, og ýmisleg handrit og bréf úr búi systur hennar, Huldu Pétursdóttur. Efnið er í 5 öskjum og þar af er efni úr búi Huldu ein askja.

  • Viðbætur:

    Ekki er von á viðbótum

Um aðgengi og not

  • Um aðgengi og not:

    Aðgangur er öllum heimill

  • Skilyrði er stjórna endurgerð:

    Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd

  • Tungumál:

    Íslenska

Tengt efni

Um lýsinguna

  • Athugasemdir skjalavarðar:

    Auður Styrkársdóttir skrifaði lýsingu í apríl 2013

  • Dagsetning lýsingar:

    apríl 2013


Skjalaskrá

Safnið telur fimm öskjur og er því skipt þannig:

 

A Ólöf P. Hraunfjörð

B Bréfasafn

C Annað efni (Hulda Pétursdóttir frá Útkoti)

 

 

A Ólöf P. Hraunfjörð

askja 1:

˖ Samtíningur úr möppu, saman  í örk

˖ Samtíningur úr möppu, saman í örk

˖ Viðvíkjandi: Ragnheiði Spence, Carl Jensen, Kristínu Eiríksdóttur

˖ Einar Axelsson

˖ Jóhanna Kristín Yngvadóttir, listmálari. Lífsferill (ljósrit af greinum)

˖ Teikningar (ljósrit); ljósmynd af bæjarstæði

˖ Niðjatal Ólafar Finnsdóttur og Jóns Þórarinssonar, Strýtu

˖ Úr umslagi merkt Sigurást og Pétur (Sigurást Kristjánsdóttir og Pétur Hraunfjörð, foreldrar Ólafar), aðallega vísur

 

askja 2:

˖ Minningargreinar e. Ólöfu (ljósrit og úrklippur)

˖ Ýmislegt efni vegna starfs Ólafar hjá Rarik og starfslok

˖ Húsmæðraskólinn á Löngumýri (ljósmyndir, bréf o.fl.)

˖ Eystrasaltsvikan: þátttakendalisti 1961-1975; dagskrá v. heimsóknar Marianne Loge 1987; erindi Ólafar P. Hraunfjörð 1972

˖ Ferðasaga úr Flatey (Ólöf)

˖ Lýsing á vinnu í Efnagerðinni Val, ágúst-sept. 1970 (Ólöf)

˖ Frásögn af fæðingu og sjóferð (Karl?) [ljósrit]

˖ MFÍK – fatasending til Angóla; námshringir

˖ Handskrifuð frásögn af óeirðum á borgarstjórnarfundi í Reykjavík 1932. Höf. Ókunnur

˖ Ljóð eftir Huga Hraunfjörð. Birtist í ljóðabók hans

˖ Umsókn Ólafar til Tryggingastofnunar um hárkollustyrk til eiginmanns, höfnun Tryggingastofnunar 1974

˖ Unnur Pétursdóttir. Afmæliskveðja

˖ Ásta María Skúladóttir. Ljóð ort á fermingardaginn,  Hugi Hraunfjörð

˖ Edgar Holger Cahill

˖ Sigríður Jónsdóttir, börn hennar

 

askja 3:

Nokkrar minnisbækur og dagbækur frá Ólöfu og börnum hennar

 

 

B Bréfasafn

askja 4:

Neðst í öskjunni liggja kort og umslög

Í örkum:

˖ Bréfslitur og pappírar, sundurlausir

˖ Bréf og kort frá Kvennasögusafni

˖ Frá Huldu Hraunfjörð 1949 og ódagsett

˖ Frá Pétri Hraunfjörð, föður Ólafar 1945 og 1949 og ódagsetti

˖ Frá Pétri Hraunfjörð, bróður Ólafar 1950 og 1985

˖ Frá Unni Hraunfjörð Magnússon, og til hennar 1938–1946

 

C Annað (Hulda Pétursdóttir frá Útkoti)

askja 5:

Neðst í öskjunni liggja kort og umslög, einnig  tölvudiskur

Í örkum:

˖ Gullkista þvottakvenna, ýmis handrit

˖ Gullkista þvottakvenna: fréttatilkynning frá RÚV, bókadómar, frétt í Þjóðviljanum

˖ Gullkista þvottakvenna: samskipti við borgarstjóra og Árbæjarsafn

˖ Minningar- og afmælisgreinar e. Huldu

˖ Hervör Baldursdóttir: „Fyrstu kynni mín af hernáminu“

˖ Nokkur bréf til Huldu

 


Fyrst birt 08.07.2022

Til baka