Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
KSS 2019/1
Sigrún Guðbrandsdóttir
1925–2019
Ein askja
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 2019/1. Sigrún Guðbrandsdóttir. Einkaskjalasafn.
Sigrún Guðbrandsdóttir (1912–2002), kennari
Guðfinna Guðbrandsdóttir (1909–1965), kennari
Sigrún Guðbrandsdóttir fædd 13. júlí 1912, látinn 27. mars 2002. Lauk kennaraprófi 1932. Hélt smábarnaskóla á Akranesi 1932–1933. Kenndi við barnaskólann á Patreksfirði 1933–1938 og 1939–1940. Stundaði tónlistarnám og kenndi við Skildinganesskóla 1938–1939. Kenndi við Miðbæjarskólann í Reykjavík 1941–1942 og 1944–1945. Melaskólann 1956–1961, Vogaskóla 1961–1982 og Ölduselsskóla 1983–1985. Hún giftist Ármanni Halldórssyni skólastjóra 1941. Þau eignuðust 5 börn. Hann lést 1954.
Guðfinna Guðbrandsdóttir fædd 19. júní 1909 í Viðvík í Skagafirði, látinn 7. ágúst 1965. Kennari. Lauk kennaraprófi 1933. Kennaranámskeið Askov 1937. Handiðnaðarskóli 1949. Kenndi á Akranesi, Ólafsvík, Reykholtsdal, Seltjarnarnesskóla, Vestmannaeyjum, Reykjavík, Hveragerði og víðar (sjá nánar í Kennaratali). Organisti við dómkirkjuna á Hólum 1930–1931. Ógift og barnslaus.
Foreldrar þeirra voru Guðbrandur Björnsson (f. 15. júlí 1884) kennari og Anna Sigurðardóttir.
Sigrún fékk bréfin úr dánarbúi Guðfinnu og varðveitti þau.
Dóttir Sigrúnar, Áslaug Ármannsdóttir, afhenti bréfin og ritgerðirnar þann 15. janúar 2019.
Bréf (54) og tvær ritgerðir, ásamt tveimur öðrum skjölum.
Á ekki við.
Viðbóta er ekki von, þó eru til fleiri bréf á milli systranna í varðveislu fjölskyldunnar.
Aðgangur er öllum heimill
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
Íslenska
Rakel Adolphsdóttir skráði. Hluti bréfanna er til á tölvutæku formi, vélrituð af Áslaugu Ármannsdóttur.
16. janúar 2019
askja 1
A Bréf frá Sigrúnu til Guðfinnu
B Aðrir bréfritarar
C Ritgerðir og annað
Fyrst birt 20.08.2020