Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
KSS 20
Landssamtök heimavinnandi fólks
1984-1989
Ein skjalaaskja
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 20. Heimavinnandi fólk. Einkaskjalasafn.
Hagsmunasamtök heimavinnandi fólks, og Landssamtök heimavinnandi fólks
Hagsmunanefnd heimavinnandi húsmæðra starfaði innan Bandalags kvenna í Reykjavík á árunum 1984-1989. Nefndin var stofnuð 26. febr. 1984 og barðist fyrir því að húsmóðurstarfið yrði metið til jafns við önnur störf í landinu, einkum á sviði almannatrygginga. Þann 21. jan. 1989 voru stofnuð Landssamtök heimavinnandi fólks.
Gögnin fylgdu formanni nefndarinnar, (Jósefínu) Helgu Guðmundsdóttur, sem færði þau á Kvennasögusafn Íslands.
Afhending var 14. september 2015.
Tvítökum var eytt
Safnið er opið
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
Íslenska
Auður Styrkársdóttir skráði og sett á safnmarkið KSS 20 í september 2015
29. september 2015
Askja 1
Arkir:
∙ Greinar, debatt
∙ Ályktun aðalfundar Bandalags kvenna í Reykjavík 1989. – Óljós nafnalisti
∙ Nokkrar fundagerðir starfshóps um réttarstöðu heimavinnandi fólks, 1989
∙ Fulltrúaráð: listi og 1 fundarboð
∙ Tvö fréttabréf
∙ Stofnfundur Landssamtaka heimavinnandi fólks, 14. okt. 1989: Dagskrá – Tillögur að samþykktum-
Fundargerð – Markmið
∙ Landssamtök heimavinnandi fólks: Stofnfélagar
∙ Um stofnun Landssamtaka heimavinnandi fólks
∙ Bæklingur: Húsmóðirin (nokkur eintök, á eitt þeirra ritað: Sýning í Seðlabankanum 24.10. 1985. Afhent 5.000 eintök á staðnum og víðar)
∙ Drög að skýrslu um réttarstöðu heimavinnandi fólks
∙ Skýrsla um réttarstöðu heimavinnandi fólks, okt. 1989
∙ Heimavinnandi fólk: Samskipti við þingið
∙ Erindi flutt á ráðstefnu Hagsmunanefndar heimavinnandi húsmæðra, haldin á Hótel Loftleiðum 21.2.1989 (2 prentuð eintök)
∙ Ráðstefna um hagsmuna- og réttindamál heimavinnandi fólks, haldin á Hótel Loftleiðum 21.1. 1989: Drög að dagskrá – Þátttakendalisti – Fundargerð
∙ Bandalag kvenna í Reykjavík: Boð á ráðstefnu 1989 – Skýrsla Hagsmunanefndar á aðalfundi BKR 1984 – Vinnuplagg Hagsmunanefndar – Ódagsett grein um starf Hagsmunanefndar (sennilega frá 1987)
Efst liggur kasetta með upptöku frá ráðstefnu Hagsmunanefndar, janúar 1989
Fyrst birt 29.06.2020