Skjalasöfn í stafrófsröð

Reykjanesangi Kvennalista (1983-1999). KSS 15.


Lýsandi samantekt

  • Varðveislustaður:

    Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.

  • Safnmark:

    KSS 15

  • Titill:

    Reykjanesangi Kvennalista

  • Tímabil:

    1983-1995

  • Umfang:

    10 öskjur

  • Tilvitnun:

    Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 15. Reykjanesangi Kvennalista. Skjalasafn.

Samhengi

  • Nöfn skjalamyndara:

    Reykjanesangi Kvennalista (1983-1999)

  • Lífshlaup og æviatriði:

    Reykjanesangi Kvennalista var hluti af Samtökum um kvennalista

  • Varðveislusaga:

    Gögnin voru í fórum Guðrúnar og Ingibjargar Guðmundsdætra. Ein fundagerðabók kom úr fórum Svölu Jónsdóttur.

  • Um afhendingu:

    1) 2. mars 2006 færði Svala Jónsdóttir á Kvennasögusafn fundagerðabók Reykjanesanga Kvennalista 1996-2000.

    2) 7. febrúar 2007 færðu Guðrún og Ingibjörg Guðmundsdætur á Kvennasögusafn skjöl frá Reykjanesanga í fyrsta sinn, og í tvö skipti síðar.

Innihald og uppbygging

  • Umfang og innihald:

    10 öskjur

  • Grisjun:

    Margtökum var eytt

  • Viðbætur:

    Óvíst

Um aðgengi og not

  • Um aðgengi og not:

    Safnið er opið

  • Skilyrði er stjórna endurgerð:

    Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd

  • Tungumál:

    Íslenska

Tengt efni

  • Tengt efni:

    KSS 10 Kvennaframboð og Kvennalisti í Reykjavík

    KSS 11 Samtök um Kvennalista

    KSS 80 Ingibjörg Sólrún Gísladóttir

    KSS 93 Eyrún Ingadóttir

    KSS 2018/15 Helga Sigurjónsdóttir

Um lýsinguna

  • Athugasemdir skjalavarðar:

    Auður Styrkársdóttir skráði.

  • Dagsetning lýsingar:

    3. september 2015


Skjalaskrá

Askja 1
Fundargerðabók Kvennalistans á Reykjanesi 1994-2000

Askja 2

  • Fundargerðabækur félagsfunda Kvennalistans í Reykjaneskjördæmi 1983-1985
  • Fundargerðabók Framkvæmdaráðs Reykjanesanga 1983-1985
  • Yfirlit yfir kaffisjóð Reykjanesanga 1983-1985
  • Fundargerðabók húshóps Reykjanesanga 1983-1985
  • Minnisbók fjáröflunarnefndar Reykjanesanga 1983
  • Skrá yfir konur sem borgað hafa félagsgjöld
  • Dagbækur Kvennalistans í Reykjanesanga 1984-1986
  • Fundargerðir kosninga- og kynningarfunda Kvennalistans í Reykjaneskjördæmi 1985
  • Listi yfir konur úr Reykjanesanga sem hafa borgað félagsgjöld

Askja 3

  • Vélritað ljóð eftir Finnboga Rút Guðmundsson, „Baráttu söngur kvenna”
  • Kvennalistinn í Hafnarfirði, ýmislegt varðandi bæjarstjórnarkosningarnar 1994
  • Ræður í Hafnarborg 9. apríl 1994:
    • Kristín Halldórsdóttir (einnig bréf frá henni til Bryndísar Guðmundsdóttur)
    • Andrea Guðmundsdóttir og Guðrún Margrét Ólafsdóttir
    • Ingibjörg Guðmundsdóttir
    • Friðbjörg H.
  • Fundir Kvennalistans í Hafnarfirði um málefni Kvennalistans og þátttökulistar fundanna 1993-1994
  • Blað Kvennalistans í Reykjanesi 1985: prófarkir og uppköst
  • Nafnalistar Kvennalistans í Reykjanesanga
  • Efnahagsreikningar

Askja 4

  • Nokkur bréf til kvennalistakvenna frá skrifstofunni, 1983-1994. Samtíningur
  • Fréttatilkynningar, fundarboð
  • Söngbækur og –textar:
    • Kerlinga-bók
    • 10. mars 1995
    • Ingibjörg Sólrún Gísladóttir 40 ára
  • Óskilgreint. Skipulag Kvennalistans
  • Plögg fyrir framboð í Reykjanesanga. listar, ræðuuppköst, myndir o.fl.
  • Stefnuskrár og stefnuskrárdrög:
    • Stefnuskrárdrög Samtaka um kvennalista 1987
    • Ljósrit af stefnuskrá Kvennalistans í Hafnarfirði í bæjarmálum vorið 1986
    • Bæklingar (A4 stærð) frá Hafnarfirði vegna kosninga 1994
    • Stefnuskrá Kvennalistans í Kópavogi 1994, prentuð

Askja 5
Ræður og erindi
Erindi flutt á vorþingum 199, 1992 og 1994 (sjá einnig í KSS 11)

  • Saman:
    •  Hanna María Pétursdóttir: Kvennaguðfræði (1990)
    •  Þórunn Friðriksdóttir: ræða á kynningarfundi Kvennalistans haldinn í Keflavík (án árs)
    •  Í svarabanka (án árs)

Askja 6
Kosningaáróður Reykjanesanga, þar á meðal frumgerðir listaverka sem hafa skreytt bæklinga eða veggspjöld

Askja 7

  • Undirbúningur prentunar á “Kaffikrásir”
  • Blaðaútburður 4. fl. Karla FH 1993-94
  • Stefnumál Kvennalistans í Hafnarfirði 1994
  • Nafnalistar og Kvennalistakonur í Reykjanesanga 1. sept. 1994
  • Úr bókhaldi Kvennalistans í Hafnarfirði 1994, bréf til framkvæmdaráðs Kvl.
  • Kvennalistinn í Hafnarfirði: Reynslan af sveitarstjórnarkosningunum 1994

- “Kvennakrásir”.  Uppskriftir að matréttum.  Teikningar gerði Ása Björk Snorradóttir, prentað var í

   Prentsmiðju Hafnarfjarðar

- “Húshópur 1994”, stílabók

Askja 8

  • Fundagerðabók framkvæmdanefndar Reykjanesanga, 18.2. 1995-3.4. 1995
  • Dagbók Ingunnar Stefánsdóttur, 1995
  • Listafundir 1995, stílabók
  • Auglýsingar, blaðaútgáfa 1995
  • Gestabók kosningaskrifstofu Kvennalistans í Reykjanesi 1995
  • Nokkur kvittanablöð með merki Kvennalistans

Askja 9

  • Happdrætti 1995 – skilagreinar
  • Skoðanakönnun meðal félagskvenna um áherslumál vegna kosninganna 1995
  • Ýmis útsend bréf
  • Ýmislegt vegna kosninganna 1995
  • Blaðaúrklippur 1995
  • Dreifirit til ljósritunar, 1995

Askja 10

  • Orkubankinn – útfyllt eyðublöð fyrir Reykjanes
  • Kosningar 1983, framboðslisti, meðmælendur, umboðsmenn
  • Kosningar 1987, framboðslisti í Reykjaneskjördæmi og ýmislegt honum tilheyrandi; framboðslistar Kvennalistans 1987, kosningaskrifstofur Kvennalistans 1987
  • Reikningar (sýnishorn); sjóðbók 1984
  • Nafnaskrár
  • Landsfundur 1995
  • Ýmislegt, bréf o.fl.

Fyrst birt 29.06.2020

Til baka