Kvennasögusafn Íslands
KSS 2023/9
Samtök ritara
Sex skjalaöskjur.
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 2023/9. Samtök ritara. Einkaskjalasafn.
Samtök ritara (st. 29. apríl 1981)
Lífshlaup og æviatriði:
Klúbbur ritara var stofnaður 29. apríl 1981 og starfaði fyrst undir Stjórnunarfélagi Íslands. Var það síðar sjálfstætt og endurnefnt Samtök ritara í júní 1986. „Klúbbur ritara var stofnaður til að koma á samvinnu ritara hjá fyrirtækjum á Íslandi til að kynnast innbyrðis, til að bera saman bækur sínar faglega séð og til að halda námskeið vegna starfans.“ (Vilborg Bjarnadóttir, fylgiskjal með afhendingu).
European Associations of Professional Secretaries (EAPS) var stofnað af 16 riturum frá 9 löndum í Zurich í Sviss árið 1974 til að bæta samheldni og örva ritara til að nýta sem best hæfileika sína. EAPS á Íslandi var stofnað 9. nóvember 1983.
Úr fórum félaga Samtaka ritara, að mestu varðveitt af Vilborgu Bjarnardóttur (f. 1944)
Vilborg Bjarnadóttir afhenti fyrir hönd félaga Samtaka ritara á skrifstofu Kvennasögusafns þann 15. júní 2023.
Sex skjalaöskjur sem innihalda fundargerðir, ráðstefnugögn, skrár yfir meðlimi, bréf og ljósmyndir.
Viðbóta gæti verið von.
Er í þeirri röð sem það var afhent.
Aðgangur er öllum heimill
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
Íslenska, enska
Innihaldslýsing fylgdi.
Skjalasafnið var afhent í skjalaöskjum með innihaldslýsingum, unnið af Vilborgu Bjarnadóttir. Rakel Adolphsdóttir gerði lýsandi samantekt 15. júní 2023.
Skráningin byggir á ISAD(G) staðlinum.
15. júní 2023
askja 1
askja 2
askja 3
askja 4
askja 5
askja 6
Fyrst birt 07.12.2023