Skjalasöfn í stafrófsröð

Guðrún Jónasson (1877–1958) og Gunnþórunn Halldórsdóttir (1872–1959). KSS 2021/19.


Lýsandi samantekt

  • Varðveislustaður:

    Kvennasögusafn Íslands

  • Safnmark:

    KSS 2021/19

  • Titill:

    Guðrún Jónasson og Gunnþórunn Halldórsdóttir

  • Tímabil:

    1923–1952

  • Umfang:

    Í einni stórri öskju eru fimm arkir sem innihalda: eitt stórt heiðursskjal frá Félagi íslenzkra leikara til Gunnþórunnar 1952, tvö bréf frá Vesturheimi 1923–1924 til Guðrúnar og föður hennar Péturs, ein ljósmynd og orðsending til Gunnþórunnar Jónasdóttur sem og ættartala Guðrúnar.

  • Tilvitnun:

    Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 2021/19. Guðrún Jónasson og Gunnþórunn Halldórsdóttir. Einkaskjalasafn.

Samhengi

  • Nöfn skjalamyndara:

    Guðrún Jónasson (1877–1958), bæjarfulltrúi og verslunareigandi.

    Gunnþórunn Halldórsdóttir (1872–1959), leikkona og verslunareigandi.

  • Lífshlaup og æviatriði:

    Guðrún: 8.2. 1877 að Felli í Biskupstungum, d. 5.10. 1958 í Reykjavík

    Flutti ung til Vesturheims með foreldrum sínum en sneri til baka um aldamótin 1900. Stofnaði og rak vefnaðarvöruverslun með Gunnþórunni Halldórsdóttur  að Amtmannsstíg 5 og 5a í Reykjavík. Guðrún var félagi í Góðtemplarareglunni, formaður kvennadeildar Slysavarnarfélags Íslands frá stofnun 1930 til dauðadags, formaður Sjálfstæðiskvennafélagsins Hvatar frá stofnun 1937-1955. Þá var hún lengi formaður fjáröflunarnefndar Kvennaheimilisins Hallveigarstaðir. Guðrún var fulltrúi í bæjarstjórn Reykjavíkur 1928-1946. (Heimild: Morgunblaðið 14. október 1958, bls. 8 og 21. október 1958 bls. 2)

     

    Gunnþórunn: Fædd 9. janúar 1872. Lést 15. febrúar 1959. Leikkona og meðal stofnanda Leikfélags Reykjavíkur 1897. Hún rak vefnaðarvöruverslun á Amtmannsstíg ásamt Guðrúnu Jónasson (1877–1958). Gunnþórunn var kjörin heiðursfélagi Leikfélags Reykjavíkur 1938 og var sæmd stórriddarakrossi fálkaorðunnar (Heimild: Morgunblaðið 24. febrúar 1959, bls. 12).

  • Varðveislusaga:

    Úr fórum Gunnþórunnar Jónasdóttur (1946–2008). Gunnþórunn var dóttir Ástu Guðrúnar Pjetursdóttur (1919–2006) sem Guðrún Jónasson og Gunnþórunn Halldórsdóttur ólu upp.

  • Um afhendingu:

    Einar S. Ingólfsson (f. 1946) afhenti gögnin á skrifstofu Kvennasögusafns 14. og 15. september 2021. Hann var kvæntur Gunnþórunni Jónasdóttur.

Innihald og uppbygging

  • Umfang og innihald:

    Í einni stórri öskju eru fimm arkir sem innihalda: eitt stórt heiðursskjal frá Félagi íslenzkra leikara til Gunnþórunnar 1952, tvö bréf frá Vesturheimi 1923–1924 til Guðrúnar og föður hennar Péturs, ein ljósmynd og orðsending til Gunnþórunnar Jónasdóttur sem og ættartala Guðrúnar.

    Einnig er þar að finna USB lykil með stafrænni endurgerð af heimilismyndbandi sem sýnir Guðrúnu og Gunnþórunni með niðjum sínum, myndbandið er líka til afritað á varðveisludrifi Kvennasögusafns.

  • Viðbætur:

    Ekki er von á frekari viðbótum og ekki er talið að fleiri gögn sem hafa tengst þeim Guðrúnu og Gunnþórunni hafi varðveist, nema mögulega bréf sem þær hafa skrifað öðrum. Leit stendur yfir og öllum viðbótum sem kunna að berast verður fagnað.

  • Frágangur og skipulag:

    Gögnum var raðað í ca. tíma og efnisröð en ekki í skjalaflokka vegna smæðar safnsins

Um aðgengi og not

  • Um aðgengi og not:

    Aðgangur er öllum heimill

  • Skilyrði er stjórna endurgerð:

    Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd

  • Tungumál:

    Íslenska

Tengt efni

Um lýsinguna

  • Athugasemdir skjalavarðar:

    Rakel Adolphsdóttir skráði

  • Reglur eða aðferð:

    Skráningin byggir á ISAD(G) staðlinum

  • Dagsetning lýsingar:

    15. september 2021


Skjalaskrá

askja 1

  • örk 1: Bréf frá Guðrúnu Pétursdóttur til Péturs Einarssonar, Kanada 16. desember 1923. [Tvö handskrifuð blöð. Umslag með tveimur frímerkjum.]
  • örk 2: Bréf frá Guðrúnu Pétursdóttir til systur sinnar Guðrúnar Jónasson, Kanada 10. janúar 1924. [Tvö handskrifuð blöð. Umslag með einu frímerki.]
  • örk 3:
    • Orðsending frá Guðrúnu og Gunnþórunni til lillu [Gunnþórunn Jónasdóttir], Reykjavík 11. júní. [Ártal óþekkt, líklega um 1950.]
    • Ljósmynd af Gunnþórunni Jónasdóttur frá svipuðum tíma.
  • örk 4: Heiðursskjal Gunnþórunnar Halldórsdóttur frá Félagi íslenzkra leikara, 9. janúar 1952
  • örk 5: Ættartala Péturs Einarssonar og Höllu Magnúsdóttur [Ljósrit af handskrifaðri ættartölu]
  • örk 6: USB lykill sem inniheldur fjölskyldumyndband frá 1956 [uþb 30 mín, líka til stafrænt] 

Fyrst birt 15.09.2021

Til baka