Kvennasögusafn Íslands
KSS 2021/3
Arndís Steingrímsdóttir
1932–1946
Tvær öskjur
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 2021/3. Arndís Steingrímsdóttir. Einkaskjalasafn.
Arndís Steingrímsdóttir (1933–2021)
Arndís Steingrímsdóttir var fædd 24. september 1933. Hún lést 13. janúar 2021. Foreldrar hennar voru Steingrímur Jónsson (1890–1975) rafmagnsstjóri í Reykjavík og Lára Árnadóttir (1892–1973) húsmóðir. Systkini Arndísar voru Guðrún Sigríður (1920–2006), Sigríður Ólöf (1922–2004), Þóra (1924–2014), og Jón (1928–2011). Arndís ólst upp á Laufásvegi 73 í Reykjavík. Hún bjó bróðurpart ævinnar miðsvæðis í Reykjavík, en flutti á Strikið 8 í Garðabæ árið 2007. Arndís lauk prófi frá Gagnfræðaskóla Vesturbæjar árið 1950 og lærði svo píanóleik í Tónlistarskóla Reykjavíkur (1950–1956) og Royal Academy of Music í London (1962–1963). Hún var kennari við Tónlistarskóla Reykjavíkur 1960–1990 og svo Tónlistarskóla Hafnarfjarðar fram að starfslokum. Hún var formaður Félags Tónlistarkennara 1976–1977 og stofnfélagi Gigtarfélags Íslands. Arndís fékk heiðursverðlaun Evrópusambands píanókennara á 40 ára afmæli sambandsins 2019.
Heimild: Morgunblaðið 26. janúar 2021.
Úr dánarbúi Arndísar
Þóra Jónsdóttir (f. 1955) afhenti Kvennasögusafni skjalasafnið í febrúar 2021.
Tvær öskjur sem innihalda 13 skólabækur, möppur með teikningum og stílum, auk nokkurra lausra teikninga frá námi Arndísar við barnaskóla mest frá árunum 1940–1946.
Safninu var skipt í tvo skjalaflokka: A. Námbækur og B. Námsmöppur. Námbókunum var raðað í tímaröð og námsmöppum var raðað í tímaröð eftir bestu getu. Allt efni er í númeruðum örkum.
Aðgangur er öllum heimill
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
Íslenska
Mest llt efni er handskrifað eða handteiknað.
Rakel Adolphsdóttir flokkaði og skráði 22. júní 2021.
Skráningin byggir á ISAD(G) staðlinum
22. júní 2021
askja 1
A. Námsbækur
Askja 2
B. Námsmöppur og lausar teikningar
Fyrst birt 22.06.2021