Skjalasöfn í stafrófsröð

Guðný Jónsdóttir (1885–1967). KSS 144.


Lýsandi samantekt

  • Varðveislustaður:

    Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.

  • Safnmark:

    KSS 144

  • Titill:

    Guðný Jónsdóttir

  • Tímabil:

    1900-1920

  • Umfang:

    Tvær einingar

  • Tilvitnun:

    Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 144. Guðný Jónsdóttir frá Múla. Einkaskjalasafn.

Samhengi

  • Nöfn skjalamyndara:

    Guðný Jónsdóttir (1885–1967), húsfreyja

  • Lífshlaup og æviatriði:

    Guðný Jónsdóttir var fædd að Kambsseli í Álftafirði 25. september 1885, dóttir hjónanna Jóns Árnasonar og Katrínar Antoníusdóttur. Árið 1927 giftist Guðný eiginmanni sínum Þorfinni Jóhannssyni (1900-1981) frá Geithellum. Guðný lést 15. ágúst 1967.

    Tíminn, 23. september 1967, bls. 7 og 15

  • Varðveislusaga:

    Óvíst

  • Um afhendingu:

    Óvíst en líklega gaf Helga Björg Jónsdóttir þessi ítem en hún hafði verið í samskiptum við Önnu Sigurðardóttir árið 1987. Helga Björg var seinni eiginkona Þórfinns Jóhannssonar.

Innihald og uppbygging

  • Umfang og innihald:

    Ein handskrifuð póesíbók og ein handskrifuð matreiðslubók frá ca. 1900-1920.

  • Grisjun:

    Óvíst

  • Viðbætur:

    Viðbóta er ekki von

Um aðgengi og not

  • Um aðgengi og not:

    Aðgangur er öllum heimill

  • Skilyrði er stjórna endurgerð:

    Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd

  • Tungumál:

    Íslenska

Tengt efni

  • Tengt efni:

    KSS 30. Helga Björg Jónsdóttir. Einkaskjalasafn.

    https://www.ismus.is/i/person/uid-d015db39-baac-43ba-aa33-c02e43c1614b

Um lýsinguna

  • Athugasemdir skjalavarðar:

    Rakel Adolphsdóttir sett á KSS safnmark og skráði rafrænt í ágúst 2018.

  • Dagsetning lýsingar:

    24. ágúst 2018


Skjalaskrá

  1. Handskrifuð póesíbók frá ca. 1900–1920.
  2. Handskrifuð matreiðslubók frá ca. 1900–1920.

Fyrst birt 19.08.2020

Til baka