Skjalasöfn í stafrófsröð

Samtök um kvennaathvarf (st. 1982). KSS 138.


Lýsandi samantekt

  • Varðveislustaður:

    Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.

  • Safnmark:

    KSS 138

  • Titill:

    Kvennaathvarf

  • Tímabil:

    1981–2010

  • Umfang:

    Ein askja

  • Tilvitnun:

    Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 138. Samtök um kvennaathvarf.

Samhengi

  • Nöfn skjalamyndara:

    Samtök um kvennaathvarf (st. 1982)

  • Lífshlaup og æviatriði:

    Stofnfundur Samtaka um kvennaathvarf var haldinn 2. júní 1982. Þar var ákveðið að opna athvarf fyrir konur sem ekki gætu búið heima hjá sér vegna ofbeldis og 6. desember sama ár var Kvennaathvarfið opnað. Samtök um kvennaathvarf voru í upphafi grasrótarsamtök en árið 1995 var horfið frá því fyrirkomulagi og mynduð formleg samtök. Árið 2010 var stofnuð sjálfseignarstofnun um húseign Kvennaathvarfsins en rekstur athvarfsins hélst óbreyttur. Heimild: Af vef Kvennaathvarfs https://www.kvennaathvarf.is/sagan/

  • Varðveislusaga:

    Úr fórum ýmissa aðila

  • Um afhendingu:

    Líklega samtíningur úr mörgum afhendingum. M.a. Guðrún Hallgrímsdóttir 16. desember 2014. Einnig úr fórum Önnu Sigurðardóttur.

Innihald og uppbygging

Um aðgengi og not

  • Um aðgengi og not:

    Aðgangur er öllum heimill

  • Skilyrði er stjórna endurgerð:

    Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd

  • Tungumál:

    Íslenska

Tengt efni

  • Tengt efni:

    KSS 4. Anna Sigurðardóttir. Einkaskjalasafn.

    KSS 11. Kvennalistinn. Einkaskjalasafn.

    KSS 17. Kvenfélag Sósíalista. Einkaskjalasafn.

    KSS 62. Guðrún Hallgrímsdóttir. Einkaskjalasafn.

    Barmerki Kvennaathvarfs eru einnig varðveitt á Kvennasögusafni.

     

Um lýsinguna

  • Athugasemdir skjalavarðar:

    Var áður í öskju 139. Rakel Adolphsdóttir setti á KSS safnmark og skrifaði lýsandi samantekt 18. ágúst 2020. Kvennaathvarf gaf út fréttabréfið Tilvera sem Kvennasögusafn safnaði og gaf svo Landsbókasafni við sameiningu.

  • Dagsetning lýsingar:

    18. ágúst 2020


Skjalaskrá

askja 1

  • Grundvöllur að starfi; lög frá 1982, 1985, 1995 og 2009; samstarfsgrundvöllur; tillögur laganefndar 1984
  • Ýmis fundarboð
  • Ýmislegt tengt Önnu Sigurðardóttur
  • Hugleiðingar fjármálahóps um grundvöll kvennaathvarfs, 1981-1982; hugleiðingar skipulagshóps
  • Nokkur bréf til félaga 1982-1988
  • Reikningar 1982-1983; fjárhagsáætlun 1983; fjárlagabeiðni; bréf til Húsnæðisstofnunar 1983
  • Bréf til sveitarstjórna 10. jan. 1983
  • Bréfasamskipti við borgarstjórn 1983
  • Fjármál 1992, 1993 og 1994 [úr fórum Guðrúnar Hallgrímsdóttur, afhent 16. desember 2014]
  • Skipulagsskrá 2010

Fyrst birt 18.08.2020

Til baka