Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
KSS 96
Bríet, félag ungra feminista
1997–2001
Ein askja
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 96. Bríet, félag ungra feminista. Einkaskjalasafn.
Bríet, félag ungra feminista. (st. 1997)
Félagið stofnuðu nokkrar vinkonur haustið 1997 en formlegur stofnfundur var haldinn í húsnæði Kvennalistans við Austurvöll í janúar 1998. Stofnendur voru meðal annarra Hugrún R. Hjaltadóttir, Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir, Fríða Rós Valdimarsdóttir, Kristbjörg Kristjánsdóttir og Guðrún Margrét Guðmundsdóttir.
„Bríet eru sjálfstæð, óflokksbundin félagasamtök sem starfa utan allra pólitískra hreyfinga. Meginmarkmið félagsins er að vekja konur til meðvitundar um stöðu sína í samfélaginu og undirstrika það að áunnum réttindum kvenna fylgir sú ábyrgð að nýta sér þau. Bríet vill einnig stuðla að hugarfarsbreytingu með því að vekja athygli á ójafnrétti kynjanna og fræða fólk um feminisma.“ (Af upplýsingablaði).
Gögnin komu í Kvennasögusafn um hendur Hugrúnar Hjaltadóttur og Fríðu Rósar Valdimarsdóttur árið 2006 og höfðu verið í fórum þeirra.
Hugrún Hjaltadóttir og Fríða Rós Valdimarsdóttir afhentu árið 2006.
Engu var eytt
Ekki er vitað um viðbætur
Aðgangur er öllum heimill
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
Íslenska og enska.
Auður Styrkársdóttir skráði 17. maí 2016
17. maí 2016
Askja 1
Fundagerðabók, 25.8.1998-22.10.2001
Stefnuskrá-Lög og reglur Bríetar-Fyrirtækjaskráning-Upplýsingar um félagið-Upplýsingabæklingur um félagið-Upplýsingabæklingur um félagið á ensku-Galtroppa, 1. tbl., 1. árg.-Upplýsingablað um félagið með helstu afrekum
Efst liggja póstkort frá félaginu merkt Embla, nafnspjald félagans Brynhildar Heiðar- og Ómarsdóttur og dreifiblað vegna 8. mars
Sýningargripir: blár stuttermabolur með bleiku merki og stöfunum Bríet, og hvítur síðermabolur með áletruninni Píkutorfan, eru geymdir á Kvennasögusafni
Fyrst birt 06.08.2020