Skjalasöfn í stafrófsröð

Gunnlaugur Finnsson (1928–2010). KSS 91.


Lýsandi samantekt

  • Varðveislustaður:

    Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.

  • Safnmark:

    KSS 91

  • Titill:

    Gunnlaugur Finnsson

  • Tímabil:

    1892-1980

  • Umfang:

    Fimm öskjur í opnun aðgangi.

  • Tilvitnun:

    Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 91. Gunnlaugur Finnsson. Bréfasafn.

Samhengi

  • Nöfn skjalamyndara:

    Gunnlaugur Finnsson (1928–2010), bóndi og alþingismaður. Foreldrar: Finnur Finnsson (1876-1956) og Guðlaug Sveinsdóttir (1885-1981).

    Maki (14. júní 1952): Sigríður Jóhanna Bjarnadóttir (fædd 19. mars 1926) húsmóðir. Börn: Sigurlaug (1953), Halldóra Valgerður (1955), María (1956), Finnur Magnús (1958), Bergljót (1960), Birna (1961), Einar Þór (1964).

    Stúdentspróf MA 1949. Bóndi á Hvilft síðan 1950. Kennari við Héraðsskólann á Núpi 1953–1954 og við barna- og unglingaskóla á Flateyri 1959–1974. Kaupfélagsstjóri á Flateyri 1980–1988. Alþingismaður Vestfirðinga 1974–1978 (Framsóknarflokkur).

    Heimild: Alþingi.is 

  • Lífshlaup og æviatriði:

    Fæddur á Hvilft í Önundarfirði 11. maí 1928, dáinn 13. janúar 2010. 

  • Varðveislusaga:

    Úr fórum afkomenda.

  • Um afhendingu:

    Gögnin afhentu Kvennasögusafni Halldóra og Sigurlaug Gunnlaugsdætur 3. mars 2011.

Innihald og uppbygging

  • Umfang og innihald:

    Safnið hefur að geyma bréfasafn Gunnlaugs Finnssonar (1928-2010), bónda að Hvilft í Önundarfirði og alþingismanns. Bréfin eru frá foreldrum hans og systkinum er hann dvaldi að Menntaskólanum á Akureyri, bréf frá skólasystkinum og öðrum vinum, nokkur bréf frá stuðningsmönnum og kjósendum.

  • Grisjun:

    Engu var eytt

  • Viðbætur:

    Ekki er von á viðbótum

Um aðgengi og not

  • Um aðgengi og not:

    Aðgangur er takmarkaður að hluta

  • Skilyrði er stjórna endurgerð:

    Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd

  • Tungumál:

    Íslenska

Tengt efni

Um lýsinguna

  • Athugasemdir skjalavarðar:

    Skjölin komu í öskjum sem Kvennasögusafn lagði til. Auður Styrkársdóttir endurraðaði að nokkru. Hún skrifaði einnig lýsingu í mars 2011 og setti á safnmark.

    Askja 1 var í opnum aðgangi við afhendingu. Öskjur 2-5 voru í lokuðu aðgengi þar til 3. mars 2018. Allt safnið verður aðgengilegt 3. mars 2041.

  • Dagsetning lýsingar:

    23. mars 2011


Skjalaskrá

Askja 1:

Bréf Sigríðar Þórarinsdóttur (föðurömmu Gunnlaugs) til bróður (1892) og sonar (1906–1908) og dagbækur sonarins (1904–1910), Finns Finnssonar.

Askja 2:

Bréf til Gunnlaugs Finnssonar frá foreldrum, ca. 1946–1965. Efst liggja passamyndir af Gunnlaugi

Askja 3:

Bréf til Gunnlaugs Finnssonar frá systkinum: Hjálmar Finnsson – Jóhann Finnsson – Kristín Finnsdóttir – María Finnsdóttir – Málfríður Finnsdóttir - Ragnheiður Finnsdóttir – Sigríður Finnsdóttir - Sveinbjörn Finnsson – Sveinn Finnsson

Askja 4:

Bréf frá öðrum ættingjum: Árni Matthíasson – Gunnar Sveinbjörnsson (Canada) – Þórunn G. Jenson (Danmörku) – Sigrid – Svein – Ellen May Nilsen - Árni Matthíasson. Bréf frá Leifi Guðjónssyni. – Bréf frá Eysteini G. Gíslasyni, Skáleyjum

Askja 5:

Í örkum: Bréf frá skólafélögum o.fl.: Ólöf Jónsdóttir, Skólavörðustíg 17b - Vilborg Guðjónsdóttir, Skólavörðustíg 17b – Björg Ólafsdóttir, Akureyri – “Siva” – Jón Ármann Héðinsson – Jón Arngrímsson – Lesley Rogers - Einar Pálsson – Böðvar, Gautlöndum – Bragi Erlendsson – Ólafur Kristjánsson, skólastjóri Reykjum – Halldór Kristjánsson, Kirkjubóli – Danskir vinnumenn - .

Örk: Ýmsir bréfritarar: “Alla” – Sigrún, Sólvöllum – Lilja Bergþórsdóttir – Anna María, Selfossi – Helgi Ágústsson – Ragnar Árnason – Jólakort

Örk: Bréf frá árunum 1970-1980

Örk:Bréf frá árunum1964-1969

Örk: Bréf frá árunum 1950-1956


Fyrst birt 05.08.2020

Til baka