Skjalasöfn í stafrófsröð

Menningar- og friðarsamtök íslenskra kvenna (MFÍK) (st. 1951). KSS 31.


Lýsandi samantekt

  • Varðveislustaður:

    Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.

  • Safnmark:

    KSS 31

  • Titill:

    Menningar- og friðarsamtök íslenskra kvenna

  • Tímabil:

    1951-2000

  • Umfang:

    14 öskjur

  • Tilvitnun:

    Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 31. Menningar- og friðarsamtök íslenskra kvenna. Einkaskjalasafn.

Samhengi

  • Nöfn skjalamyndara:

    Menningar- og friðarsamtök íslenskra kvenna (MFÍK)

  • Lífshlaup og æviatriði:

    Menningar- og friðarsamtök íslenskra kvenna voru stofnuð 5. júlí og á framhaldsstofnfundi 9. desember 1951. Samtökin áttu rætur að rekja til Friðarnefndar kvenna sem stofnuð var 1950. Friðarnefndin var starfsnefnd róttækra kvenna í Reykjavík ásamt aðildarfélögum sem kusu friðarnefndir úr sínum hópi. Aðild að nefndinni áttu Félag starfsstúlkna í brauð- og mjólkursölubúðum (ASB), Nót, Félag netagerðarmanna, Mæðrafélagið, Kvenfélag Sósíalista, Sókn og Verkakvennafélagið Snót. Frumkvöðull að stofnun Friðarnefndarinnar var Þóra Vigfúsdóttir. Á undirbúningsfundi að stofnun Menningar- og friðarsamtaka íslenskra kvenna, 5. júlí 1951, var Viktoría Halldórsdóttir sjálfkjörin fyrsti formaður samtakanna. í aðalstjórn voru kosnar þær Guðrún Gísladóttir, Ásthildur Jósefsdóttir, Erla Egilsson, María Þorsteinsdóttir og til vara þær Guðrún Guðjónsdóttir og Ása Ottesen. Samtökin áttu aðild að Women's International Democratic Federation og sendu iðulega fulltrúa fyrir Íslands hönd á þing þess. Á fundi samtakanna 5. febrúar 1952 voru lög þess samþykkt.

    Í 3. grein laganna segir: „Markmið félagsins er að sameina allar íslenzkar konur, án tillits til stjórnmálaskoðana, til baráttu
    a. fyrir alheimsfriði
    b. fyrir öryggi og framtíð barnanna
    c. fyrir vináttu og samvinnu kvenna í öllum löndum
    d. fyrir hernaðarlegu hlutleysi Íslands
    e. gegn hverskonar hernámi og þeim hættulegu áhrifum, sem seta erlends herliðs hefur á æskulýð landsins, og menningu og tungu þjóðarinnar.
    Einnig segir að markmiðum félagsins skuli náð „með fundahöldum og víðtækri fræðslustarfsemi meðal kvenna landsins“.

    Heimild: Ártöl og áfangar í sögu íslenskra kvenna

  • Varðveislusaga:

    Skjölin í KSS 31 voru í fórum stjórnarkvenna MFÍK en viðbót barst í janúar 2009 og úr fórum Þórunnar Magnúsdóttur (1920-2009) sagnfræðings og var þar um að ræða einkum bréf frá árunum 1958-1966.

  • Um afhendingu:

    Flest skjölin voru afhent Kvennasögusafni 9 apríl 2001 (sjá aðfangabók, árið 2001). María S. Gunnarsdóttir, bókasafnsfræðingur og formaður MFÍK, afhenti gögnin ásamt fleiri stjórnarkonum. Fyrir í Kvennasögusafni voru fundargerðabækur og fleiri gögn MFÍK og voru þau flest sameinuð í þetta safn. Börn Þórunnar Magnúsdóttur sagnfræðings, er var nýlátin, afhentu Kvennasögusafni nokkuð af skjölum 9 janúar 2009 og reyndist hluti þeirra vera bréf MFÍK frá árunum 1958-1966 auk fáeinna annarra skjala sem eru flest í öskju 13 (sjá aðfangabók, árið 2009).

Innihald og uppbygging

  • Umfang og innihald:

    Í skjalasafni Menningar- og friðarsamtaka íslenskra kvenna eru nokkrir efnisflokkar: fundagerðabækur, starfsskýrslur, bréf, innlend og erlend, erindi flutt á vegum samtakanna, og erlend samskipti.

  • Grisjun:

    Tvítökum var eytt að mestu leyti

  • Viðbætur:

    Safnið nær fram til 2000 og er ekki alveg heilt. Von er á viðbótum.

Um aðgengi og not

  • Um aðgengi og not:

    Safnið er opið

  • Skilyrði er stjórna endurgerð:

    Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd

  • Tungumál:

    Íslenska, franska, þýska og enska.

Tengt efni

  • Tengt efni:

    KSS 76. Þórunn Magnúsdóttir. Einkaskjalasafn.

    KSS 2018/16: viðbót fannst í kjallara á Hjarðhaga þar sem Kvennasögusafn var til húsa, óskráð.

Um lýsinguna

  • Athugasemdir skjalavarðar:

    Skjölin frá MFÍK komu í möppum þar sem haldið var utanum starfsemina eftir árum. Auður Styrkársdóttir fínraðaði. Hún skrifaði einnig lýsingu í janúar 2009.

  • Dagsetning lýsingar:

    janúar 2009


Skjalaskrá

askja 1
Fundargerðabækur stjórnarfunda MFÍK
1951-1956, 1956-1965, 1965-1973, 1973-1985
askja 2 
Fundargerðir MFÍK 1951-1972
askja 3 
- Félagsfundagerðir 1982-1995
- Bók um Eugénie Cotton, einn stofnanda og forseta Women´s International Democratic Federation (ALK) 1945-1967
- Bók útgefin af World Congress of Women, Moskvu 1987
- Þátttakendur á World Congress of Women í Prag 1981
Ýmis kort til MFÍK, dreifimiðar o.fl.
askja 4 
- Starfsskýrslur stjórnar, 1955-1964 (1958 handskrifuð)
- Starfsskýrslur stjórnar 1966-1980
- Starfsskýrslur stjórnar 1981-1988
- Starfsskýrslur stjórnar 1993-1999
- Heimsþing kvenna í Kaupmannahöfn 1953
- Fjársöfnun MFÍK 1967 til kaupa á lyfjum og matvælum handa börnum í S-Víetnam. Bréf vegna komu Sara Lidman ásamt listum með nöfnum þeirra sem gáfu fé. Ræða frá fundi með Söru (vantar aftan á)
- Aðstöðunefnd íslenskra kvenna 1970. Gögn nefndarinnar
- 8. mars á vegum MFÍK. Erindi og fundarboð ásamt ávörpum og bréfum (sjá einnig nr. 157, 348 og 415, einnig A1 í úrklippum)
askja 5 
Gögn frá 1951 - 1985. Raðað eftir árum
(Vantar gögn frá árunum 1954, 1962, 1963, 1964, 1971 og 1977)
askja 6
Gögn frá 1988 - 2000. Raðað eftir árum
(Vantar gögn frá 1986, 1987, 1989 og 1990)
askja 7 

Bréf innlend 1954 - 1975. Raðað eftir árum
askja 8 

Bréf innlend 1976 - 2000. Raðað eftir árum
(Vantar árin 1989 og 1990)
askja 9 
Erlend bréfasamskipti. Raðað eftir árum
(Vantar árin 1958, 1971-1974 og 1981
- Nokkrar skýrslur erlendra bréfritara
askja 10 
Erindi, ávörp o.fl.:
- ,,Gegn vígbúnaði og tortímingu fyrir friði". Bæklingur Iðnnemasambands Íslands, Íslensku friðarnefndarinnar, MFÍK, Rauðsokkahreyfingarinnar, Sambands íslenskra námsmanna erlendis og Samtaka herstöðvaandstæðinga 1980
- Gögn frá Þórunni Magnúsdóttur í sept. 2000: ,,Vitrænt líf-vistvænt umhverfi" (námsstefna 1995), ,,Námsstefna um málefni Evrópubandalagsins og EES (1995?), samþykkt félagsfundar 10. apríl 1992 vegna mengunar frá herliðinu (1992), ,,Þorláksmessuganga 1994", fundarsamþykktir 1994, ræður og erindi Þ.M. frá Nordisk kvinnoforum 1994
- Lög MFÍK frá ýmsum tímum
- Ávarp gegn undirbúningi kjarnorkustyrjaldar og Ávarp fyrir heimsþing mæðra (ljósrit úr Melkorku
1955)
- Friðarbarátta kvenna: Brautryðjendur (erindi um Alþjóðasambandið)
Saman í örk:
- Starfsreglur ALK 1950, og Kvinnenes Demokratiske Verdensforbund - Program (úr fórum
Kvenfélags Sósíalista)
- Greinargerð um Alþjóðasambandið og MFÍK (1980)
- Greinargerð um MFÍK (sennilega eftir Þórunni Magnúsdóttur 1994)
- ALK 50 ára afmæli 1995
Saman í örk (ýmis erindi, skýrslur og ávörp):
- Erindi - Guðrún Þórsdóttir, á fundi 2000 (?)
- Erindi - Guðrún Ebba Ólafsdóttir, á fundi 1999
- Erindi - Pétrína Ó. Þórsdóttir, á fundi 1999
- Erindi - Bjarney Friðriksdóttir, á fundi 1999
- Erindi - Guðrún Ólafsdóttir, á fundi 1999
- Erindi - Guðrún Friðgeirsdóttir, á fundi 1998
- Erindi - Þórunn Magnúsdóttir, á fundi 1995
- Erindi - Valgerður K. Jónsdóttir, á fundi 1995
- Ræða- Steinunn Harðardóttir, flutt á heimsfriðarþingi í Khöfn 1986
- Ræða S-Anna María Edelstein á fundi 1974
- Alþjóðlegt starf MFÍK, framsöguræða Maríu Þorsteinsdóttur á fulltrúaráðsfundi 1967
- Ávarp flutt 27. okt. 1965 á ráðstefnu ALK í Salzburg - á íslensku
- Greinargerð frá þingi ALK, líklega frá 1965
- Heimsþing kvenna í Moskvu dagana 24.-29. júní 1963
- Vélrituð grein um MFÍK (1956)
- Skýrsla á ensku um starfsemi MFÍK 1955 og 1956
- Nokkur ódagsett erindi og ódagsett viðtal Berit Ås og Eva Norland við Helen og Bill Caldicott
- Greinargerð um MFÍK (frá 1978). Örstutt ágrip af sögu félagsins birt í 8. mars-hefti
- Kveðja til Halldóru B. Björnsson (1968)
- Hlutabréf MFÍK í útvarpsstöðinni Rót (1988)
- Akureyrardeild MFÍK. Starfsskýrslur 1956 og 1958. Lög deildarinnar (ódagsett)
- Kvennaársnefnd MFÍK - kvennaárið 1975
askja 11 
Heimsfriðarganga kvenna 2000. Gögn tengd Heimsfriðargöngu kvenna gegn örbirgð og ofbeldi árið 2000: - béf innlend og erlend, erlent efni, undirskriftarlistar, blaðaúrklippur
askja 12 
Alþjóðasamband lýðræðissinnaðra kvenna (ALK). Ýmislegt efni tengt ALK, aðallega ársskýrslur og skýrslur tengdar heimsþingum kvenna. Íslenskt efni efst
askja 13 

  • Þrjár meðlimaskrár MFÍK 1972, 1974 og án árs
  • Ýmsar úrklippur
  • Ódagsett gögn (úr fórum Þórunnar Magnúsdóttur)
  • Kvennaársnefndin 1975 (úr fórum ÞM)
  • Erlend samskipti 1975 (úr fórum ÞM) [ath. 8 ljósmyndir]
  • „Kvinnans arbete“: ráðstefna í Kungalq 1975 (úr fórum ÞM)
  • Gögn frá árunum 1974-1976 (úr fórum ÞM)
  • Gögn frá árunum 1959-1964 (úr fórum ÞM)

 

askja 14

- Ræður og greinar eftir félagskonur og formenn, m.a. María Þorsteindóttir, Rannveig Haraldsdóttir
- Fréttatilkynning um Angóla og ýmis brot
- MFÍK og Alþjóðasamband lýðræðissinnaðra kvenna (ALK - saga samtakanna að e-u leyti).
- Gögn frá friðarþingum - heimsráðstefnum. Eitt blað frá íslenskum þátttakanda á Kvennaþingi í Kaupmannahöfn 1953, vantar framhald


Fyrst birt 06.07.2020

Til baka