Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

Fréttir

Sumarstarfsmaður Kvennasögusafns

Við bjóðum Emmu Björk Hjálmarsdóttur sumarstarfsmann Kvennasögusafns velkomna til starfa! Emma er með BA-próf í listfræði, diplómu í hagnýtri jafnréttisfræði og stundar nú meistaranám í menningarfræði við Háskóla Íslands. Emma er ráðin í gegnum átak stjórnvalda „Sumarstörf 2020“. Starfstöð Emmu á Kvennasögusafni er undir málverki af Bríeti Bjarnhéðinsdóttur sem Gunnlaugur Blöndal málaði árið 1934 og…

Lesa meira : Sumarstarfsmaður Kvennasögusafns

Ragnhildi Hólmgeirsdóttur þakkað

Kvennasögusafn þakkar Ragnhildi Hólmgeirsdóttur kærlega fyrir vel unnin störf á safninu í vetur þar sem hún leysti af vegna fæðingarorlofs. Ragnhildur kvaddi safnið með birtingu á eftirminnilegri grein í nýútkominni Sögu þar sem hún skrifar um skjalasafn Elínar Briem. Í greininni „Frá kommóðu til Kvennasögusafns“ fjallar hún um oft torfæra leið einkabréfa kvenna á skjalasöfn…

Lesa meira : Ragnhildi Hólmgeirsdóttur þakkað

Nýr vefur Kvennasögusafns

Vefur Kvennasögusafns Íslands hefur verið uppfærður og fengið nýtt útlit. Flest allt efni af eldri vefsíðunni má finna á þeirri nýju en ef eitthvað efni vantar á að vera hægt að finna það á vefsafni Landsbókasafns (www.vefsafn.is). Verið er að setja inn skjalaskrár safnkosts Kvennasögusafns en ef það vantar skjalaskrá á vefinn má finna hana…

Lesa meira : Nýr vefur Kvennasögusafns

Kvennalistakonur leggja Kvennasögusafni lið

Þann 28. febrúar 2020 hélt Kvennasögusafn Íslands viðburð í samstarfi við Sæunni Ólafsdóttur, meistaranema í safnafræði við Háskóla Íslands. Sæunn hefur unnið mikið starf í flokkun ljósmynda sem fylgdu skjalasafni Samtaka um kvennalista þegar það var afhent á Kvennasögusafn Íslands árið 1999. Flokkun myndanna er fyrsti liður í lokaverkefni Sæunnar en þær eru á annað…

Lesa meira : Kvennalistakonur leggja Kvennasögusafni lið

Opnun vefsíðunnar Huldukonur

Huldukonur – vefur um hinsegin kynverund kvenna fyrir 1960 opnaði formlega þann 10. janúar 2020. Vefurinn er afrakstur heimildasöfnunar sem hófst árið 2017. Honum er ætlað að vera upplýsingasíða fyrir áhugasaman almenning, upphafspunktur fyrir fræðimenn og nemendur og efnisveita fyrir sögukennara. Að baki verkefninu standa Ásta Kristín Benediktsdóttir, Hafdís Erla Hafsteinsdóttir og Íris Ellenberger. Verkefnið…

Lesa meira : Opnun vefsíðunnar Huldukonur

Kjörgripur mánaðarins

Kjörgripur mánaðarins hjá Þjóðarbókhlöðu í janúar 2020 kom úr safnkosti Kvennasögusafns Íslands. Um er að ræða elsta skjalið sem varðveitt er á Kvennasögusafni. Það er undirritað af Benedikt Vigfússyni á Hólum þann 31. janúar 1838 og í því gefur hann jörðina Utanverðarnes í Rípurhreppi til góðgerðarmála í minningu dóttur sinnar, hinnar þrettán ára gömlu Hólmfríðar.…

Lesa meira : Kjörgripur mánaðarins

5. desember kaffi Kvennasögusafns

Þann 5. desember 2019 hélt Kvennasögusafn Íslands hið tvíárlega morgunkaffi sitt í samvinnu við Kvenréttindafélag Íslands. Fundurinn hófst klukkan átta og fór fram í fyrirlestrarsal Þjóðarbókhlöðunnar. Ragnhildur Hólmgeirsdóttir frá Kvennasögusafni Íslands opnaði fundinn. Arnheiður Steinþórsdóttir, MA-nemi í sagnfræði, kynnti lokaritgerð sína úr grunnnámi: Þegar konur lögðu undir sig útvarpið. Ritgerðin fjallar um útvarpsþætti Kvenréttindafélags Íslands…

Lesa meira : 5. desember kaffi Kvennasögusafns

Hvenær verða baráttumál að baráttusögu? – Kvennasögusafn á Kynjaþingi

Laugardaginn 2. nóvember kl. 13-17:30 verður Kvennasögusafn Íslands með örsýningu á Kynjaþingi í Norræna húsinu. Kvennasögusafn sýnir þar brot úr þeim gögnum sem safnið varðveitir frá jafnréttisbaráttu síðastliðinna 50 ára. Sögu, sem ekki væri til staðar nema vegna þess að einstaklingar og félagasamtök héldu utan um gögn frá starfi sínu og afhentu þau til varðveislu.

Lesa meira : Hvenær verða baráttumál að baráttusögu? – Kvennasögusafn á Kynjaþingi

Árlegur fundur NING-hópsins í Þjóðarbókhlöðu

NING-hópurinn (Nordic Information Network Gender) hittist á árlegum fundi sínum í Þjóðarbókhlöðunni 21. maí síðastliðinn. Norðurlöndin skiptast á að halda fundinn og skipulögðu Kvennasögusafn Íslands og Jafnréttisstofa fundinn í ár. Fundurinn fór síðasta fram á Íslandi árið 2011, þá einnig í Þjóðarbókhlöðunni.  NIKK – Norræna þekkingar- og upplýsingamiðstöðin um jafnréttismál (Nordisk Information för Kunskap om Kön)…

Lesa meira : Árlegur fundur NING-hópsins í Þjóðarbókhlöðu

Við tökum vel á móti þér – Ljósmæðrafélag Íslands 100 ára

Í tilefni af 100 ára afmæli Ljósmæðrafélags Íslands verður opnuð sýning í Þjóðarbókhlöðu á degi ljósmæðra, sunnudaginn 5. maí. Ljósmæðrafélag Íslands stendur að sýningunni í samstarfi við Kvennasögusafn Íslands og Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Þann 2. maí árið 1919 komu 20 ljósmæður saman á heimili Þórdísar Elínar Jónsdóttur Carlquist ljósmóður og eiginmanns hennar, Alex Wilhelm…

Lesa meira : Við tökum vel á móti þér – Ljósmæðrafélag Íslands 100 ára