Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

Fréttir

Anna Sigurðardóttir á bækur.is

Það gleður okkur mjög að nú er hægt að lesa tvær bækur Önnu Sigurðardóttur, stofnanda Kvennasögusafns, á vefnum bækur.is ásamt riti sem var skrifað henni til heiðurs, en það var fyrsta fræðibókin sem gefin var út konu til heiðurs að okkur vitandi. „Sv.: Þú fluttir einu sinni erindi um íslenskar verkakonur í ellefu hundruð ár.…

Lesa meira : Anna Sigurðardóttir á bækur.is

Tímanna safn – 31. maí 2018

Glærur frá erindinu og erindið á youtube. Auglýsingin: Fimmtudaginn 31. maí mun Rakel Adolphsdóttir, sérfræðingur á Kvennasögusafni Íslands, flytja erindið „Þjóðararfur hverra? Kvennasögusafn sem hluti af Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni“ í fyrirlestraröðinni Tímanna safn sem haldin er í tilefni af 200 ára afmælis Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns. Í útdrætti erindisins segir: „Kvennasögusafn Ísland var stofnað…

Lesa meira : Tímanna safn – 31. maí 2018

Hugvísindaþing – 10. mars 2018

Útdráttur erindisins:  Dýrleif Árnadóttir (1897-1988) er þekktust fyrir þátttöku sína í Kommúnistaflokki Íslands (1930-1938) en hún var meðal stofnenda hans. Í þessu erindi verður varpað ljósi á líf hennar sem ungrar konu í Reykjavík árið 1918. Það ár stóð Dýrleif á tvítugu, las fyrir stúdentspróf og hugaði að framtíð sinni. Hvaða möguleika hafði hún til…

Lesa meira : Hugvísindaþing – 10. mars 2018

Kynjaþing – 3. mars 2018

Kvennasögusafn verður með á Kynjaþingi þann 3. mars! Málstofa Kvennasögusafns verður frá kl. 12:00-12:45 í Tækniskólanum. Þar mun Rakel Adolphsdóttir kynna starfsemi safnsins, Íris Ellenberger kynnir verkefni sitt „Huldukonur“ og Kristín Jónsdóttir kynnir vef sinn www.kvennalistinn.is. Bæði verkefnin styðja m.a. við gögn sem Kvennasögusafn varðveitir. Sjá nánar um Kvennaþing: Við viljum bjóða ykkur hjartanlega velkomin á Kynjaþing 2018,…

Lesa meira : Kynjaþing – 3. mars 2018

Fróðleiksmoli: Laufey Valdimarsdóttir og ástandsmálið svokallaða

#áÞessumDegi árið 1945 birtist grein eftir Laufeyju Valdimarsdóttir, þáverandi formanns Mæðrastyrksnefndar og Kvenréttindafélags Íslands, um ástandsmálið svokallaða. Þar gagnrýnir hún skýrslu um ríflega 500 konur sem áttu að hafa í verið í sambandi við erlenda hermenn, bendir á að einungis væri verið að fylgjast með siðferði kvenna en ekki karla og varar við því að…

Lesa meira : Fróðleiksmoli: Laufey Valdimarsdóttir og ástandsmálið svokallaða

Kvennasögusafn í Þjóðarbókhlöðunni í 20 ár

Kvennasögusafn Íslands var formlega opnað í Þjóðarbókhlöðunni þann 5. desember 1996. Safnið var stofnað 1. janúar 1975 af þeim Önnu Sigurðardóttur, Else Miu Einarsdóttur og Svanlaugu Baldursdóttur og var liður af Kvennaárinu 1975. Kvennaársnefndin lauk formlega störfum sínum í mars 1976 með því að gefa Kvennasögusafni þá fjármuni sem voru til afgangs eftir Kvennaárið. Kvennasögusafn…

Lesa meira : Kvennasögusafn í Þjóðarbókhlöðunni í 20 ár

Saga kvenna og femínisma á 20. öld kennd í menntaskóla

Áfangi um sögu kvenna og femínisma á 20. öld var kenndur í Kvennaskólanum í Reykjavík á haustönn 2016. Þeir nemendur sem sátu áfangan stóðu fyrir málþingi þann 22. nóvember í sal skólans undir yfirskriftinni „afhverju er mikilvægt fyrir ungmenni að þekkja sögu kvenna og femínisma?“ Þátttakendur í pallborði fyrir utan Rakel Adolphsdóttur, sérfræðings á Kvennasögusafni,…

Lesa meira : Saga kvenna og femínisma á 20. öld kennd í menntaskóla

Nýtt gagnasafn

Nýtt gagnasafn: Women and Social Movements, International 1840 to present Gagnasafnið má skoða í tölvum Landsbókasafns og í tölvum sem tengdar eru neti Háskóla Íslands.

Lesa meira : Nýtt gagnasafn

Litrófið afhent

Þann 8. mars afhentu þær Þórdís Elva Þorvaldsdóttir, Bára Jóhannes-Guðrúnardóttir og Lísbet Harðardóttir Ólafardóttir Kvennasögusafni til varðveislu málverkin sem konur víðs vegar í Reykjavík máluðu með snyrtivörum árið 2010. Hægt verður að skoða verkin í húsakynnum safnsins fram í apríl. Á myndinni má sjá forstöðukonu safnsins með þeim Báru og Lísbeti.

Lesa meira : Litrófið afhent

Framundan: 8. mars

Alþjóðlegur baráttudagur kvenna er haldinn 8. mars ár hvert.Hér eru allar upplýsingar um daginn: Uppruninn og sagan Dagskrá MFÍK Dagskrá Samtaka launamanna, Jafnréttisstofu og Jafnréttisráðs Dagskrá í Jónshúsi í Kaupmannahöfn Dagskrár um allan heim

Lesa meira : Framundan: 8. mars