Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

Fréttir

Þjóðarbókhlaðan lokuð en safnið starfar enn

Þrátt fyrir að Þjóðarbókhlaðan sé lokuð vegna samkomutakmarkanna næstu þrjár vikur starfar safnið enn. Hafið samband við okkur fyrir upplýsingar, aðstoð og afhendingu gagna, hér í gegnum vefsíðu okkar, samfélagsmiðla eða með tölvupósti á netfangið kvennasogusafn (hjá) landsbokasafn.is. Safnið verður lokað yfir páskana.  Þetta á einnig við um aðrar einingar innan Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns, sjá…

Lesa meira : Þjóðarbókhlaðan lokuð en safnið starfar enn

Kvennasögusafn á Kynjaþingi 2020

Kynjaþing hófst í dag, 9. nóvember, og er rafrænt að þessu sinni. Í ár tekur Kvennasögusafn þátt í viðburði ásamt Sögufélagi og ræðir við höfunda bókarinnar Konur sem kjósa: aldarsaga, þær Erlu Huldu Halldórsdóttur, Kristínu Svövu Tómasdóttur og Ragnheiði Kristjánsdóttur. Fjórði höfundur bókarinnar, Þorgerður H. Þorvaldsdóttir, lést fyrr á árinu. Viðburðurinn fer fram á morgun þriðjudag…

Lesa meira : Kvennasögusafn á Kynjaþingi 2020

Þjóðarbókhlaða lokuð gestum í bili

Vegna aðstæðna í samfélaginu er Þjóðarbókhlaðan lokuð gestum í bili. Vegna þessa getur Kvennasögusafn ekki tekið við skjalasöfnum eða lánað út gögn fyrr en Landsbókasafn opnar aftur. Starfsemi safnsins er þó enn í gangi og um að gera að heyra í okkur varðandi undirbúning skjala til afhendingar, til að fá upplýsingar um gögn eða fyrir…

Lesa meira : Þjóðarbókhlaða lokuð gestum í bili

Munir kvennabaráttunnar

Kvennasögusafn varðveitir mikið af skjölum tengda kvennabaráttu en einnig, og alls ekki síður, munum á borð við nælur og hálsmen eins og sjást hér í mynd. Í sumar fór fram skráningarvinna á barmnælum og öðrum álíka munum sem Emma Björk, sumarstarfsmaður á vegum átaks ríkissjóðs, vann. Með því fæst betra yfirlit yfir hvaða barmmerki eru…

Lesa meira : Munir kvennabaráttunnar

Nýjar afhendingar: Langt ástarbréf

Í desember árið 1900 bað Guðrún Lárusdóttir heitmann sinn, Sigurbjörn Á Gíslason, að senda sér langt bréf næst. Hann svaraði kallinu og sendi henni bréf sem hann hafði límt saman svo það spannaði marga metra. Þau gengu í hjónaband árið 1902. Síðastliðinn maí bárust safninu bréfaskipti þeirra sem spanna þrjá áratugi. Sjá nánar um bréfasafnið.…

Lesa meira : Nýjar afhendingar: Langt ástarbréf

Skert starfsemi vegna sumarfrís

Skert starfsemi verður á Kvennasögusafni vegna sumarfrís fram yfir verslunarmannahelgi. Fyrirspurnum verður svarað eftir sumarfrí. Hægt verður að panta gögn í gegnum síma og verða þau aðgengileg á afgreiðslu Íslandssafn á 1. hæð Þjóðarbókhlöðunnar ef staðfesting á pöntuninni hefur verið fengin. Gleðilegt sumar! Eigandi ljósmyndar: Hólmfríður Pétursdóttir

Lesa meira : Skert starfsemi vegna sumarfrís