Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

Fréttir

Kvennafrídagurinn 24. október

Kvennafrídagurinn fór fyrst fram þann 24. október 1975. Á heimasíðu Kvennasögusafns má finna sérvef um daginn með öllum helstu upplýsingum um aðdraganda hans, dagskrá, ræðum sem haldnar voru, ljósmyndir, sögur af deginum og fleira. Vefurinn er unninn út frá skjölum sem framkvæmdanefnd um kvennafrí afhenti Kvennasögusafni árið 1976. Aðgerðir á Kvennafrídaginn hafa verið endurteknar árin 1985,…

Lesa meira : Kvennafrídagurinn 24. október

Kjörgripur mánaðarins á Landsbókasafni

Kjörgripur mánaðarins á Landsbókasafni er að þessu sinni úr safnkosti Kvennasögusafns. Í safni Valgerðar Lárusdóttur Briem (1885-1924) má finna átta handskrifuð blöð af ritinu Húsmæðrablaðið sem hún setti saman árið 1916. Blöðin voru ætluð félagskonum í Húsmæðrafélagi Hrafnagilshrepps. Handritið má sjá á sýningunni Fortíðarraddir. Handrit, prent og persónulegar heimildir á 1. hæð Þjóðarbókhlöðunnar en það má einnig lesa á heimasíðu okkar. Valgerður Lárusdóttir Briem…

Lesa meira : Kjörgripur mánaðarins á Landsbókasafni

Fjórar nýjar afhendingar: Ein stór og þrjár smáar

Fjórar nýjar afhendingar rötuðu inn á Kvennasögusafn í vikunni og var skjalasafn Kvenfélagasamband Íslands langsamlega stærst þeirra. Hinar afhendingarnar innihéldu einstaka bréf og skjöl frá konum, það elsta símskeyti frá 1919 og það yngsta bréf frá 1972. Allt er þetta dýrmætt í okkar augum og við hvetjum fólk eindregið til að hafa samband ef það…

Lesa meira : Fjórar nýjar afhendingar: Ein stór og þrjár smáar

Nýskráð skjalasöfn

Við vekjum athygli á nýskráðum einkaskjalasöfnum hér á vef okkar. Eftirfarandi skjalaskrár hafa verið birtar á árinu, nýjustu skráningar efst: Við kappkostum að skrá einkaskjalasöfn í okkar varðveislu og miðla þeim á heimasíðu okkar. Töluvert af skjalasöfnum eru óskráð eða eiga eftir að rata á heimasíðu okkar. Við hvetjum því nemendur og rannsakendur til að…

Lesa meira : Nýskráð skjalasöfn

Sýningin „Fortíðarraddir. Handrit, prent og persónulegar heimildir“

Sýningin „Fortíðarraddir. Handrit, prent og persónulegar heimildir“ var opnuð í júní. Sýningin er samvinnuverkefni eininga af varðveislusviði Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns em eru staðsett á 1. hæð hússins: Íslandssafns, handritasafns, Kvennasögusafns og sérsafna. Þar má sjá fjölbreytta muni úr þeirra fórum: bækur, handrit, kort, skjöl og bréf, sem eru settir í samhengi við íslenska bóksögu,…

Lesa meira : Sýningin „Fortíðarraddir. Handrit, prent og persónulegar heimildir“

Kvenréttindadagurinn 19. júní

Til hamingju með kvenréttindadaginn 19. júní! Felix Bergsson, þáttastjórnandi Laugardagsmorgna á Rás 2, ræddi við Rakel Adolphsdóttur, fagstjóra Kvennasögusafns, um daginn og safnið. Hlusta má á viðtalið á heimasíðu RÚV en það byrjar á 01:54:00. Myndin við fréttina er af spólu úr skjalasafni Kvenréttindafélags Íslands [KSS 6, askja 24]. Jafnframt birtist mynd af dreifiriti C-listans frá árinu…

Lesa meira : Kvenréttindadagurinn 19. júní

Frumskjöl í almannarými: Rauðsokkahreyfingin – skjala- og upplýsingavefur

Kvennasögusafn á Landsbókasafni fékk í dag styrk frá Jafnréttissjóði til að vinna skjala- og upplýsingavef með og um Rauðsokkahreyfinguna. Áður hefur verkefnið verið styrkt af menntamálaráðuneytinu, Reykjavíkurborg og ASÍ. Stefnt er að því að opna vefinn í lok árs 2021. Nánar má lesa um úthlutunina á vef Rannís.  Á myndinni eru forsætisráðherra sem afhenti styrkinn,…

Lesa meira : Frumskjöl í almannarými: Rauðsokkahreyfingin – skjala- og upplýsingavefur

Nemendur flokkuðu skjalasöfn á vorönn

Á vorönn vorum við svo heppin á Kvennasögusafni að hafa tvo nemendur frá Háskóla Íslands hjá okkur að vinna að skráningu einkaskjalasafna sem hafa verið afhend nýlega. Ása Ester Sigurðardóttir flokkaði skjalasafn Félags íslenskra háskólakvenna sem einstaklingsverkefni í meistaranámi í sagnfræði [safnmark KSS 2018/10]. Skjalasafnið var ansi víðfeðmt. Það var afhent í bananakössum og IKEA-pokum en verður…

Lesa meira : Nemendur flokkuðu skjalasöfn á vorönn

Kjörgripur mánaðarins

Kvennasögusafn lagði til kjörgrip mánaðarins á vef Landsbókasafns í júní. Var tölublað fyrstu útgáfu tímaritsins 19. júní sem kom út fyrir akkúrat 100 árum fyrir valinu. Tímaritið 19. júní kom út í Reykjavík mánaðarlega á árunum 1917–1929. Það var kvenréttindablað. Til umfjöllunar í blaðinu voru baráttumál kvenna svo sem landsspítalamálið og notkun kosningarréttarins en auk þess voru umsagnir um bækur, húsráð,…

Lesa meira : Kjörgripur mánaðarins

Þjóðarbókhlaðan er opin!

Þjóðarbókhlaðan er nú opin en með takmörkunum. Hafið samband við okkur fyrir upplýsingar, aðstoð og afhendingu gagna, hér í gegnum vefsíðu okkar, samfélagsmiðla eða með tölvupósti á netfangið kvennasogusafn (hjá) landsbokasafn.is. Best er að hafa samband við okkur áður en komið er í heimsókn til að tryggja að starfsmaður sé á svæðinu en vegna ástandsins er…

Lesa meira : Þjóðarbókhlaðan er opin!