Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

Fjórar nýjar afhendingar: Ein stór og þrjár smáar

Fjórar nýjar afhendingar rötuðu inn á Kvennasögusafn í vikunni og var skjalasafn Kvenfélagasamband Íslands langsamlega stærst þeirra. Hinar afhendingarnar innihéldu einstaka bréf og skjöl frá konum, það elsta símskeyti frá 1919 og það yngsta bréf frá 1972. Allt er þetta dýrmætt í okkar augum og við hvetjum fólk eindregið til að hafa samband ef það hefur efni í fórum sínum sem það vil afhenda.

KSS_2021.15
Afhending Kvenfélagasambands Íslands komst fyrir á nokkrum vörubrettum. Rakel Adolphsdóttir, fagstjóri safnsins, tók á móti afhendingunni. [Sjá líka safn KSS 103. Tilvísun: KSS 2021/15]
KSS_2021.16
Elsta skjalið sem afhent var í vikunni var símskeyti frá 1919 í safni Sveinsínu Narfadóttur (1900–1988). [Tilvísun: KSS 2021/16]

 

KSS_2021.18
Þá fylgdi safni Önnu Sigríðar Pétursdóttur (1845–1921) húskveðja við jarðaför hennar. [Tilvísun: KSS 2021/18]

 

KSS_2021.14
Einnig bárust bréf Maríu Hugrúnar Ólafsdóttur (1921–1979) til Vilhjálms sonar síns 1972 sem teljast til yngstu skjala vikunnar. [Sjá einnig KSS 2017/2. Tilvísun: KSS 2021/14]