Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

Fréttir

Lokað til 19. júní

Lokað vegna sumarleyfis starfsmanns Kvennasögusafns 12.-18. júní. Vegna útláns á lestrarsal má athuga hvort Íslandssafn geti aðstoðað: islandssafn (hjá) landsbokasafn.is   ljósmynd úr safni Þorbjargar Árnadóttur (tilvísun: KSS 74, ljósmynd 30)

Lesa meira : Lokað til 19. júní

Hvítabandið 130 ára!

Kvennasögusafn óskar Hvítabandinu hjartanlega til hamingju með 130 ára afmælið í dag! Í tilefni þessa merkilega afmælis hefur Kvennasögusafn myndað fyrstu fundargerðarbók félagsins sem og þær ljósmyndir sem fylgdu skjalasafni þess, sjá sérstaka undirsíðu. Við varðveitum stolt þessar gersemar Hvítabandsins, og fleiri til. Rúmlega 80 samtök kvenna varðveita skjalasöfn sín hjá Kvennasögusafni, hafið gjarnan samband…

Lesa meira : Hvítabandið 130 ára!

Lesefni um ástarbréf

Í tilefni dagsins höfum við tekið saman dæmi um lesefni um ástarbréf sem er aðgengilegt á Landsbókasafni eða rafrænt.  Fyrst bendum við á svar á Vísindavefnum sem birtist í dag „Hvað eru ástarbréf og er fólk hætt að senda þau?“ sem Erla Hulda Halldórsdóttir svarar og við bendum á dæmi um ástarbréf í safnkosti Kvennasögusafns.

Lesa meira : Lesefni um ástarbréf

Dagur ástarbréfsins 14. febrúar

Dagur ástarbréfsins Kvennasögusafn Landsbókasafns boðar dag ástarbréfsins föstudaginn 14. febrúar frá kl. 15-18. Á dagskrá verður meðal annars örsýning, örerindi og smiðjur fyrir ástarsögu- og ástarbréfaskrif. Í samstarfi við Landsbókasafn, handritasafn, Nakano, Ástarsögufélagið, Ástarrannsóknarfélagið og fleiri. Dagskrá: Kl. 15 Torg ástarbréfsins opnar á 2. hæð Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns Kl. 15-18 Skoðið, skrifið og lesið ástarbréf…

Lesa meira : Dagur ástarbréfsins 14. febrúar

Sýningaropnun: Og kona hans

Sýningin Og kona hans er á vegum Jafnréttisdaga í Háskóla Íslands og Kvennasögusafns Íslands í Landsbókasafni Íslands – Háskólabóksafni. Sýningin verður opnuð í anddyri Þjóðarbókhlöðu  kl. 17:00 þann 10. febrúar og stendur til föstudags 14. febrúar. Þar eru ljósmyndir úr safni Kvennasögusafns ásamt textaverkum og úrklippum. Einnig verður flutt hljóðverkið Og kona hans eftir Eirík Stephensen…

Lesa meira : Sýningaropnun: Og kona hans

Vigdís á safninu

Við getum varla beðið eftir lokaþættinum um Vigdísi Finnbogadóttur sem verður frumsýndur á sunnudagskvöld kl. 19:45 á RÚV. Það var sérstaklega ánægjulegt að sjá Perlu Fáfnisdóttur í upphafi þriðja þáttar ásamt ýmsu efni sem er varðveitt á Kvennasögusafni á bækistöðum Rauðsokkahreyfingarinnar. Það var mikill heiður að fá framleiðslulið þáttarins í rannsóknarheimsóknir á safnið. Til að…

Lesa meira : Vigdís á safninu

Kvennaár 2025 – Dagbækur kvenna

Dagbækur kvenna eru fágæti á skjalasöfnum landsins. Til að vekja athygli á þeim dagbókum kvenna sem leynist á Kvennasögusafni höfum við tekið yfir instagram reikning Landsbókasafns og birt dagbókarbrot kvenna á hverjum degi í janúar.   Við vonum að verkefnið verði til þess að dagbækur kvenna – hvort sem er ykkar sjálfrar, mömmu, ömmu, langömmu,…

Lesa meira : Kvennaár 2025 – Dagbækur kvenna

Kvennasögusafn 50 ára!

Kvennasögusafn er fimmtugt í dag! Það var stofnað 1. janúar 1975 af þremur konum: Önnu Sigurðardóttur, Elsu Miu Einarsdóttur og Svanlaugu Baldursdóttur. Það var stofnað á heimili Önnu, á fjórðu hæð í blokk á Hjarðarhaga 26 í Reykjavík og starfaði hún þar sem forstöðukona Kvennasögusafns í 20 ár. Kvennasögusafn spratt upp sem andsvar við hefðbundinni…

Lesa meira : Kvennasögusafn 50 ára!

Þakkir

Anna Sigurðardóttir fæddist 5. desember 1908. Hún stofnaði Kvennasögusafn heima hjá sér, ásamt Elsu Miu Einarsdóttur og Svanlaugu Baldursdóttur. Safnið opnaði svo formlega á Landsbókasafni 5. desember 1996, skömmu eftir andlát Önnu. Við höldum áfram að heiðra minningu hennar sem og allra þeirra sem komu að stofnun og framgangi Kvennasögusafns með því að halda á…

Lesa meira : Þakkir

Nýjar skjalaskrár á vefnum

Skráning á innihaldi skjalasafna sem hafa verið gefin Kvennasögusafni heldur áfram jafnt og þétt. Markmiðið er að hafa gagnsæi í safnkostinum og greiða áhugasömum aðgang að honum til rannsókna og innblásturs. Á heimasíður okkar má sjá heildarlista yfir birtar skjalaskrár. Hér er listi yfir það sem hefur ratað á heimasíðu okkar frá því við sendum…

Lesa meira : Nýjar skjalaskrár á vefnum