Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

Fréttir

Kvennafrí – upplýsingagjöf til erlendra fjölmiðla og rannsakenda

Árlega aðstoðar Kvennasögusafn tugi erlendra fjölmiðla og rannsakenda í heimildaöflun um kynjajafnrétti á Íslandi og kvennafrídagana. Nú var að birtast grein í femíníska vefritinu Ilda frá Suður-Kóreu: https://ildaro.com/9989 Það er mikilvægt að hægt sé að leita til traustrar stofnunnar og sérhæfðs starfsfólks sem hefur getu og þekkingu til að miðla sögu kvenna- og kynjajafnréttisbaráttu Íslands. Það…

Lesa meira : Kvennafrí – upplýsingagjöf til erlendra fjölmiðla og rannsakenda

Þjóðbúningar

Sigurlaug Gunnarsdóttir var fædd 29. mars 1828. Hún var meðal stofnenda fyrsta kvenfélags Íslands 1869 (formlega 1871) er konur í Rípurhreppi í Skagafirði komu saman að heimili Sigurlaugar í Ási í Hegranesi. Hún kom einnig að stofnun kvennaskóla í Ási 1877. Þá var Sigurlaug yfirsetukona (ljósmóðir) sveitarinnar. Sigurlaug saumaði hátíðarbúning fyrir konur í samstarfi við…

Lesa meira : Þjóðbúningar

Vinurnar

Rakel Adolphsdóttir á Kvennasögusafni og Sigríður Jónsdóttir á Leikminjasafni skrifuðu um vinurnar Guðrúnu Jónasson og Gunnþórunni Halldórsdóttur fyrir tímarit Hinsegin daga. Það er margt sem leynist á Landsbókasafni og tengist þeim stöllum eins og kemur fram í greininni.

Lesa meira : Vinurnar

Sumarleyfi

Kvennasögusafn verður lokað frá 8.-19. júlí vegna sumarleyfis starfsmanns þess. Landsbókasafn (Þjóðarbókhlaðan) verður svo lokað frá 22. júlí og opnar aftur þriðjudaginn 6. ágúst. Sjáumst þá! Ljósmynd úr safni Kvennalistans.

Lesa meira : Sumarleyfi

Ólafía Jóhannsdóttir: Minningarathöfn 21. júní

Á morgun, 21. júní, verða liðin 100 ár frá því hin stórmerka Ólafía Jóhannsdóttir féll frá. Af því tilefni efna fjölmörg kvenfélög til minningarathafnar sem við hvetjum öll til að kynna sér. Ólafía Jóhannsdóttir (1863–1924) einn af stofnendum Hins íslenska kvenfélags 1894 og Hvítabandsins 1895. Hún var fulltrúi kvenna á Þingvallafundinum 1895. Þar var henni ætlað að ræða fjögur mál:…

Lesa meira : Ólafía Jóhannsdóttir: Minningarathöfn 21. júní

KATRÍN málsvari mæðra – Erindi Sigurrósar Þorgrímsdóttur og afhending skjalasafns Katrínar Pálsdóttur

Þriðjudaginn 7. maí kl. 12:00 mun Sigurrós Þorgrímsdóttir fjalla um bók sína „KATRÍN málsvari mæðra“ í fyrirlestrarsal Landsbókasafns. Í framhaldinu mun Sigurrós gefa Kvennasögusafni sendibréf, ræður, minnisblöð og önnur skjöl Katrínar, ömmu sinnar, til framtíðar varðveislu. Verið öll hjartanlega velkomin!—Katrín Pálsdóttir (1889–1952) missti eiginmann sinn árið 1925 frá níu börnum og vilji yfirvalda stóð til…

Lesa meira : KATRÍN málsvari mæðra – Erindi Sigurrósar Þorgrímsdóttur og afhending skjalasafns Katrínar Pálsdóttur

Þátttaka Kvennasögusafns á viðburðum 8. mars

Á morgun 8. mars, á Alþjóðlegum baráttudegi kvenna fyrir friði og jafnrétti, tekur Kvennasögusafn þátt í þremur viðburðum. Fyrst á dagskrá verður erindi Rakelar Adolphsdóttur, fagstjóra safnsins, á málstofunni „Sjálfstæðiskonur og saga 20. aldar“ á Hugvísindaþingi um hvaða skjalasöfn Sjálfstæðiskvenna er þar að finna og svarar spurningunni um hvort það sé vinstri slagsíða í skjölum…

Lesa meira : Þátttaka Kvennasögusafns á viðburðum 8. mars

Kjörgripur mánaðarins: Póesíbók Kristínar Vídalín Jacobson

Nú í febrúar eru liðin 160 ár frá fæðingu Kristínar Vídalín Jacobson (1864–1943), stofnanda og fyrsta formanns Hringsins sem fagnaði einmitt 120 ára stofnafmæli sínu í janúar síðastliðnum. Þá átti hún hlut í stofnun Bandalags kvenna í Reykjavík 1917 og sat um tíma í stjórn þess. Kristín var lærð myndlistarkona en hún var við Kvennakademíuna…

Lesa meira : Kjörgripur mánaðarins: Póesíbók Kristínar Vídalín Jacobson

Kjörgripur mánaðarins: Hringurinn í 120 ár

Kvennasögusafn óskar Hringnum hjartanlega til hamingju með 120 ára stofnafmæli sitt í dag! Skjalasafn félagsins var afhent Kvennasögusafni til varðveislu árið 2004 í kjölfar glæsilegrar útgáfu á starfssögu þess sem Björg Einarsdóttur ritaði og Hið íslenska bókmenntafélag gaf út í samstarfi við Hringinn árið 2002. Skjalasafnið er kjörgripur janúarmánaðar Landsbókasafns og upp hefur verið settur…

Lesa meira : Kjörgripur mánaðarins: Hringurinn í 120 ár

Fræðakaffi 27. nóvember, Borgarbókasafnið Spönginni: Ástarbréfin í Kvennasögusafni.

„Ég vona að þú gefir eldinum þetta bréf, hitaðu ofninn með því.“ Rakel Adolphsdóttir sagnfræðingur og fagstjóri Kvennasögusafns á Landsbókasafni segir frá ástarbréfum sem leynast á safninu í fræðakaffi Borgarbókasafnsins Spönginni kl. 16:30 þann 27. nóvember 2023. Ástarbréf eru vitnisburður um ástarjátningu. Þau eru efnislegur hlutur sem hægt er að halda á, faðma að sér…

Lesa meira : Fræðakaffi 27. nóvember, Borgarbókasafnið Spönginni: Ástarbréfin í Kvennasögusafni.