Við getum varla beðið eftir lokaþættinum um Vigdísi Finnbogadóttur sem verður frumsýndur á sunnudagskvöld kl. 19:45 á RÚV.
Það var sérstaklega ánægjulegt að sjá Perlu Fáfnisdóttur í upphafi þriðja þáttar ásamt ýmsu efni sem er varðveitt á Kvennasögusafni á bækistöðum Rauðsokkahreyfingarinnar. Það var mikill heiður að fá framleiðslulið þáttarins í rannsóknarheimsóknir á safnið.
Til að fræðast meira um lagabreytingar sem hreyfingin náði í gegn, oft í samstarfi við t.d. aðrar kvenna- og verkalýðshreyfingar með sterkum stuðningi frá Svövu Jakobsdóttur þingkonu – en einnig þrátt fyrir oft mikinn mótvind – bendum við á upplýsinga- og skjalavef okkar. Þar má líka skoða ljósmyndir hreyfingarinnar, veggspjöld hennar og myndbönd frá starfseminni.
En hvar eru heimildir um Vigdísi Finnbogadóttur að finna á Kvennasögusafni? Hér er lítill leiðarvísir:
Fyrir það fyrsta að þá gaf Vigdís sjálf safninu ýmislegt úr sínum fórum í tengslum við forsetaframboð sitt. Þá eru varðveittar þrjár stórar úrklippubækur um framboð hennar á safninu. Vigdís var þá í boði á safninu sem var staðsett á fjórðu hæð í blokk í vesturbænum, heima hjá einum stofnanda þess Önnu Sigurðardóttur.
Vigdís hefur stutt Kvennasögusafn í gegnum tíðina og sendi til að mynda heillaskeyti þegar Kvennasögusafn opnaði á Landsbókasafni. Hér má lesa nánar um þær gjafir.
Þá hafa ratað til okkur ýmis skjöl í gegnum tíðina sem tengjast Vigdísi með einum eða öðrum hætti:
- KSS 4. Anna Sigurðardóttir. Einkaskjalasafn.
- Sex bréf frá Vigdísi til Kvennasögusafns / Önnu, 1984-1996
- KSS 51. Kvennaslóðir, útgáfa. Einkaskjalasafn.
- Skrif Vigdísar í bókina
- KSS 63. Rauðsokkahreyfingin. Einkaskjalasafn.
- Askja 8, örk 3
- KSS 114. „Áður fyrr á árunum“. Einkaskjalasafn.
- Útvarpsþáttur um Reykjavík bernsku minnar í umsjón Guðjóns Friðrikssonar: Vigdís Finnbogadóttir forseti 17. júní 1984. Kasetta.
- KSS 152, 44
- KSS 170. Friðarhreyfing íslenskra kvenna. Einkaskjalasafn.
- Símskeyti frá Vigdísi Finnbogadóttur 27. maí 1983
- KSS 2023/20. Þórunn Hulda Sveinbjarnardóttir. Einkaskjalasafn.
- Ljósmyndir „íslenskt já takk“ og frá heimsókn ASÍ
Auk þess eru fleiri skjöl tengd Vigísi í söfnum sem á annars vegar eftir að skrá ítarlega og hins vegar eru í lokuðum aðgangi í bili.
Aðgengilegt á vefnum:
- Vigdís skrifaði inngang að bókinni Kvennaslóðir sem Kvennasögusafn gaf út, aðgengileg á vefnum bækur.is
- Ræða sem Vigdís hélt áður en hún varð forseti
- Í sögugöngu Kvennasögusafns er fjallað um Vigdísi
- Ræða sem Vigdís hélt á baráttufundi kvenna 19. júní 2005 á Þingvöllum
- Og hér er heillaskeyti sem Vigdís sendi Kvennasögusafni þegar það opnaði á Landsbókasafni 1996, það er frumskjal sem er varðveitt á safninu
Þá vekjum við sérstaka athygli á sérvef um Vigdísi Finnbogadóttur sem stofnun hennar heldur út og Kvennasögusafn aðstoðaði við heimildaöflun á sínum tíma.




