Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

SAGAN Í FJÖTRUM FORTÍÐAR // Vinnustofa fyrir fatlaðar konur

Hvernig segjum við sögu fatlaðra kvenna?

Fatlað fólk hefur verið falið frá örófi alda; í skúmaskotum, háaloftum og jafnvel bakvið rúmgafla — og sagan um þau er stráð niðrandi orðalagi og niðurlægjandi frásögnum. Saga sem er fyrst og fremst sögð af ófötluðu fólki.  

Hvaða áhrif hefur fortíðin á skilning okkar á nútímanum? Hvernig viljum við að sagan sé sögð og hvaða tækifæri höfum við til að segja söguna? Hver á að fá að segja söguna? 

Kvennasögusafn býður fötluðum konum og kvárum til vinnustofu sunnudaginn 8. nóvember kl. 13:00–15:30 í fyrirlestrarsal Landsbókasafns, Þjóðarbókhlöðu, Arngrímsgötu 3. Vinnustofan er fyrir fatlaðar konur (trans og sís) og fötluð kvár, sagnfræðinga og aðra sérfræðinga í GLAM-geiranum (Galleries, Libraries, Archives og Museums).

Inga Auðbjörg Straumland stýrir stofunni sem byrjar á kynningu frá Rakel Adolphsdóttur, verkefnastjóra Kvennasögusafns, og Sólveigu Ólafsdóttur, sagnfræðing.

Ef þú þarft á táknmálstúlk að halda, eða aðrar aðgengisþarfir, sendið tölvupóst á kvennasogusafn (hjá) landsbokasafn.is. 

Upplýsingar um aðgengi

Viðburður á facebook

***

AUÐLESIÐ MÁL

Saga fatlaðra kvenna

Fatlað fólk er oft falið. Líka í gamla daga. Sögur af fötluðum konum eru faldar og gleymdar. Orðin sem eru notuð í sögunum eru ekki falleg. Fólkið sem segir söguna er oft ekki fatlað. 

Kvenna·sögu·safn er safn sem safnar sögum um konur. Safnið vill fá fatlaðar konur til að tala um söguna og hvernig við söfnum sögum. 

Á sunnudaginn verður vinnu·stofa fyrir fatlaðar konur. Vinnu·stofa er viðburður þar sem fatlað fólk tekur þátt. Vinnu·stofan er í Lands·bóka·safninu á Arngrímsgötu 3 í Reykjavík. Lands·bóka·safnið er líka kallað Þjóðar·bók·hlaðan. 

Vinnu·stofan er 8. nóvember. Hún byrjar klukkan 1 eftir hádegi og endar klukkan 3:30. Það eru drykkir og matur. Allar fatlaðar konur og fötluð kvár mega koma. 

Þú mátt hafa samband ef þú þarft táknmáls·túlk eða aðra hjálp. Netfangið er kvennasogusafn (hjá) landsbokasafn.is og síminn er 823-9991. Rakel svarar í símann.

Meiri upplýsingar um aðgengi eru hér: https://landsbokasafn.is/adgengi-fyrir-fatlad-folk/

Viðburðurinn á facebook er hér: https://fb.me/e/c0XsULtkP

***

Laugardaginn 7. nóvember fara fram vinnustofur fyrir konur af erlendum uppruna og hinsegin fólk. Það er velkomið að mæta á fleiri en eina vinnustofu.

***