Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

ÚT ÚR SKJALASKÁPNUM // Vinnustofa fyrir hinsegin fólk

Hvernig segjum við sögu hinsegin fólks? 

Hinsegin fólk hefur alltaf verið til, en sagan þeirra er týnd, gleymd og falin í brenndum ástarbréfum, óræðu orðalagi, afneitun afkomenda og ótta við að setja merkimiða á löngu látið fólk. 

Hvaða áhrif hefur fortíðin á skilning okkar á nútímanum? Hvernig viljum við að sagan sé sögð og hvaða tækifæri höfum við til að segja söguna? Hvaða hlutverki gegnir söguleg þekking á tímum bakslags? Er hægt að misnota sögunna?

Kvennasögusafn býður hinsegin fólki til vinnustofu laugardaginn 7. nóvember 2026, kl. 13:30–16:00, á Þjóðarbókhlöðunni, Arngrímsgötu 3. Vinnustofan er fyrir hinsegin fólk af öllum kynjum, sagnfræðinga og aðra sérfræðinga í GLAM-geiranum (Galleries, Libraries, Archives og Museums).

Inga Auðbjörg Straumland stýrir stofunni sem byrjar á kynningu frá Rakel Adolphsdóttur, verkefnastjóra Kvennasögusafns, og Hafdísi Erlu Hafsteinsdóttur, sagnfræðingi.

Drykkir og léttar veitingar. Vinsamlegast boðið komu ykkar á Facebook svo við getum áætlað veitingar.

Upplýsingar um aðgengi: https://landsbokasafn.is/adgengi-fyrir-fatlad-folk/

***

Sama dag fer fram vinnustofa fyrir konur af erlendum uppruna og daginn eftir vinnustofa fyrir fatlaðar konur. Það er velkomið að mæta á fleiri en eina vinnustofu.