Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

Uncategorized

Kvennafrí – upplýsingagjöf til erlendra fjölmiðla og rannsakenda

Árlega aðstoðar Kvennasögusafn tugi erlendra fjölmiðla og rannsakenda í heimildaöflun um kynjajafnrétti á Íslandi og kvennafrídagana. Nú var að birtast grein í femíníska vefritinu Ilda frá Suður-Kóreu: https://ildaro.com/9989 Það er mikilvægt að hægt sé að leita til traustrar stofnunnar og sérhæfðs starfsfólks sem hefur getu og þekkingu til að miðla sögu kvenna- og kynjajafnréttisbaráttu Íslands. Það…

Lesa meira : Kvennafrí – upplýsingagjöf til erlendra fjölmiðla og rannsakenda

Þjóðbúningar

Sigurlaug Gunnarsdóttir var fædd 29. mars 1828. Hún var meðal stofnenda fyrsta kvenfélags Íslands 1869 (formlega 1871) er konur í Rípurhreppi í Skagafirði komu saman að heimili Sigurlaugar í Ási í Hegranesi. Hún kom einnig að stofnun kvennaskóla í Ási 1877. Þá var Sigurlaug yfirsetukona (ljósmóðir) sveitarinnar. Sigurlaug saumaði hátíðarbúning fyrir konur í samstarfi við…

Lesa meira : Þjóðbúningar

Minning: Stefanía María Pétursdóttir

Stefanía M. Pétursdóttir, fyrsti stjórnarformaður Kvennasögusafns Íslands, er fallin frá. Stefanía María var fædd 16. ágúst 1931. Hún lauk verslunarprófi frá Verslunarskólanum árið 1951. Hún var fulltrúi Kvenfélagasambands Íslands í áhugahóp um varðveislu og framgang Kvennasögusafn Íslands sem var stofnað árið 1989. Áhugahópurinn var í lykilhlutverki að ná Kvennasögusafni í öruggt og varanlegt skjól í…

Lesa meira : Minning: Stefanía María Pétursdóttir

Minning: Björg Einarsdóttir

Í dag er borin til grafar Björg Einarsdóttir og við á Kvennasögusafni minnumst hennar með þakklæti og virðingu. Vinna Bjargar í þágu sögu íslenskra kvenna verður seint þakkað. Björg Einarsdóttir var fædd árið 1925. Hún var mikilvirk í félagsstarfi og tók þátt í starfi Sjálfstæðisflokknum og Hvatar, kvenfélags flokksins. Þá var hún félagi í Rauðsokkahreyfingunni,…

Lesa meira : Minning: Björg Einarsdóttir

Minning: Sigríður Th. Erlendsdóttir

Við minnumst Sigríðar Th. Erlendsdóttur, sem féll frá fyrr í september, með hlýju og þakklæti. „Sigríður hóf rannsóknir í kvennasögu upp úr 1970, þá rúmlega fertug að aldri, og lauk BA-prófi í sagnfræði árið 1976. Hún lauk svo kandídatsnámi í sagnfræði frá Háskóla Íslands árið 1981 með ítarlegri frumrannsókn á atvinnuþátttöku reykvískra kvenna á árunum…

Lesa meira : Minning: Sigríður Th. Erlendsdóttir

Kvennasögusafn hluti af Landsbókasafni í 25 ár

Þann 5. desember 1996 opnaði Kvennasögusafn formlega í Þjóðarbókhlöðunni. Í ræðu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, þáverandi borgarstjóra Reykjavíkurborgar, við opnunina sagði hún:  „Í dag fögnum við því að langþráður draumur Önnu Sigurðardóttur er loksins að rætast – þjóðararfurinn og kvennafræðin orðin eitt. Ég óska íslenskum konum og öllum þeim sem unna góðum fræðum til hamingju og segi Kvennasögusafn…

Lesa meira : Kvennasögusafn hluti af Landsbókasafni í 25 ár

Kvennafrídagurinn 24. október

Kvennafrídagurinn fór fyrst fram þann 24. október 1975. Á heimasíðu Kvennasögusafns má finna sérvef um daginn með öllum helstu upplýsingum um aðdraganda hans, dagskrá, ræðum sem haldnar voru, ljósmyndir, sögur af deginum og fleira. Vefurinn er unninn út frá skjölum sem framkvæmdanefnd um kvennafrí afhenti Kvennasögusafni árið 1976. Aðgerðir á Kvennafrídaginn hafa verið endurteknar árin 1985,…

Lesa meira : Kvennafrídagurinn 24. október

Fjórar nýjar afhendingar: Ein stór og þrjár smáar

Fjórar nýjar afhendingar rötuðu inn á Kvennasögusafn í vikunni og var skjalasafn Kvenfélagasamband Íslands langsamlega stærst þeirra. Hinar afhendingarnar innihéldu einstaka bréf og skjöl frá konum, það elsta símskeyti frá 1919 og það yngsta bréf frá 1972. Allt er þetta dýrmætt í okkar augum og við hvetjum fólk eindregið til að hafa samband ef það…

Lesa meira : Fjórar nýjar afhendingar: Ein stór og þrjár smáar

Kvenréttindadagurinn 19. júní

Til hamingju með kvenréttindadaginn 19. júní! Felix Bergsson, þáttastjórnandi Laugardagsmorgna á Rás 2, ræddi við Rakel Adolphsdóttur, fagstjóra Kvennasögusafns, um daginn og safnið. Hlusta má á viðtalið á heimasíðu RÚV en það byrjar á 01:54:00. Myndin við fréttina er af spólu úr skjalasafni Kvenréttindafélags Íslands [KSS 6, askja 24]. Jafnframt birtist mynd af dreifiriti C-listans frá árinu…

Lesa meira : Kvenréttindadagurinn 19. júní

Frumskjöl í almannarými: Rauðsokkahreyfingin – skjala- og upplýsingavefur

Kvennasögusafn á Landsbókasafni fékk í dag styrk frá Jafnréttissjóði til að vinna skjala- og upplýsingavef með og um Rauðsokkahreyfinguna. Áður hefur verkefnið verið styrkt af menntamálaráðuneytinu, Reykjavíkurborg og ASÍ. Stefnt er að því að opna vefinn í lok árs 2021. Nánar má lesa um úthlutunina á vef Rannís.  Á myndinni eru forsætisráðherra sem afhenti styrkinn,…

Lesa meira : Frumskjöl í almannarými: Rauðsokkahreyfingin – skjala- og upplýsingavefur