Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

Uncategorized

Sýningaropnun: Og kona hans

Sýningin Og kona hans er á vegum Jafnréttisdaga í Háskóla Íslands og Kvennasögusafns Íslands í Landsbókasafni Íslands – Háskólabóksafni. Sýningin verður opnuð í anddyri Þjóðarbókhlöðu  kl. 17:00 þann 10. febrúar og stendur til föstudags 14. febrúar. Þar eru ljósmyndir úr safni Kvennasögusafns ásamt textaverkum og úrklippum. Einnig verður flutt hljóðverkið Og kona hans eftir Eirík Stephensen…

Lesa meira : Sýningaropnun: Og kona hans

Vigdís á safninu

Við getum varla beðið eftir lokaþættinum um Vigdísi Finnbogadóttur sem verður frumsýndur á sunnudagskvöld kl. 19:45 á RÚV. Það var sérstaklega ánægjulegt að sjá Perlu Fáfnisdóttur í upphafi þriðja þáttar ásamt ýmsu efni sem er varðveitt á Kvennasögusafni á bækistöðum Rauðsokkahreyfingarinnar. Það var mikill heiður að fá framleiðslulið þáttarins í rannsóknarheimsóknir á safnið. Til að…

Lesa meira : Vigdís á safninu

Kvennaár 2025 – Dagbækur kvenna

Dagbækur kvenna eru fágæti á skjalasöfnum landsins. Til að vekja athygli á þeim dagbókum kvenna sem leynist á Kvennasögusafni höfum við tekið yfir instagram reikning Landsbókasafns og birt dagbókarbrot kvenna á hverjum degi í janúar.   Við vonum að verkefnið verði til þess að dagbækur kvenna – hvort sem er ykkar sjálfrar, mömmu, ömmu, langömmu,…

Lesa meira : Kvennaár 2025 – Dagbækur kvenna

Kvennasögusafn 50 ára!

Kvennasögusafn er fimmtugt í dag! Það var stofnað 1. janúar 1975 af þremur konum: Önnu Sigurðardóttur, Elsu Miu Einarsdóttur og Svanlaugu Baldursdóttur. Það var stofnað á heimili Önnu, á fjórðu hæð í blokk á Hjarðarhaga 26 í Reykjavík og starfaði hún þar sem forstöðukona Kvennasögusafns í 20 ár. Kvennasögusafn spratt upp sem andsvar við hefðbundinni…

Lesa meira : Kvennasögusafn 50 ára!

Þakkir

Anna Sigurðardóttir fæddist 5. desember 1908. Hún stofnaði Kvennasögusafn heima hjá sér, ásamt Elsu Miu Einarsdóttur og Svanlaugu Baldursdóttur. Safnið opnaði svo formlega á Landsbókasafni 5. desember 1996, skömmu eftir andlát Önnu. Við höldum áfram að heiðra minningu hennar sem og allra þeirra sem komu að stofnun og framgangi Kvennasögusafns með því að halda á…

Lesa meira : Þakkir

Nýjar skjalaskrár á vefnum

Skráning á innihaldi skjalasafna sem hafa verið gefin Kvennasögusafni heldur áfram jafnt og þétt. Markmiðið er að hafa gagnsæi í safnkostinum og greiða áhugasömum aðgang að honum til rannsókna og innblásturs. Á heimasíður okkar má sjá heildarlista yfir birtar skjalaskrár. Hér er listi yfir það sem hefur ratað á heimasíðu okkar frá því við sendum…

Lesa meira : Nýjar skjalaskrár á vefnum

Styrkur: Nordic Gender Fund

Vekjum athygli á að frestur til að sækja um einstakan styrk á sviði kynjajafnréttisrannsókna rennur út á föstudaginn 15. nóvember kl. 14 á íslenskum tíma. Styrkurinn er í boði fyrir háskólastofnanir innan Norðurlandanna til að styrkja eða búa til rannsóknarinnviði á sviði kynjajafnréttismála. Á ensku:  The call for applications to the Nordic Gender Fund is…

Lesa meira : Styrkur: Nordic Gender Fund

Dagurinn sem Ísland stöðvaðist – bíó 24. október 2024

Við hlökkum til að horfa með ykkur á heimildamyndina „Dagurinn sem Ísland stöðvaðist” um Kvennafrídaginn 1975 eftir Pamelu Hogan og Hrafnhildi Gunnarsdóttur. Það hefur verið virkilega skemmtilegt að sjá myndina vera að veruleika og geta aðstoðað kvikmyndagerðarfólkið við heimildaöflun. Myndin verður frumsýnd á Íslandi í Bíó Paradís 24. október næstkomandi.  Á undan sýningunni munu 34 samtök…

Lesa meira : Dagurinn sem Ísland stöðvaðist – bíó 24. október 2024

Kveðja til landsþings Kvenfélagasambands Íslands

Kvennasögusafn Íslands sendir hugheilar kveðjur til landsfundar Kvenfélagasambands Íslands. Samband Kvennasögusafns og Kvenfélagasambandsins á sér langa sögu. Kvenfélagasambandið hefur átt einn þriggja fulltrúa í stjórn Kvennasögusafns síðan safnið opnaði á Landsbókasafni árið 1996. Þá voru samskipti mikil á meðan Kvennasögusafn var í heimahúsi Önnu Sigurðardóttur á Hjarðarhaga 26. Viðamikið skjalasafn Kvenfélagasambandsins er varðveitt á Kvennasögusafni…

Lesa meira : Kveðja til landsþings Kvenfélagasambands Íslands

Hálf öld liðin síðan kona var vígð prestur í fyrsta sinn á Íslandi

Fyrir hálfri öld í dag, 29. september, var Auður Eir Vilhjálmsdóttir vígð til prests, fyrst kvenna á Íslandi. Anna Sigurðardóttir, stofnandi Kvennasögusafns, óskaði Auði til hamingju á sama tíma og safnaði heimildum um tímamótin.   Auður Eir gaf svo síðar skjalasafn móðursystur sinnar, Þorbjargar Árnadóttur hjúkrunarfræðings, til Kvennasögsuafns sem er eitt umfangsmesta bréfasafn sem varðveitt…

Lesa meira : Hálf öld liðin síðan kona var vígð prestur í fyrsta sinn á Íslandi