Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

Uncategorized

Sumarfrí 1. júlí – 4. ágúst 2026

Kvennasögusafn er lokað vegna sumarfrís starfsmanns þess frá miðvikudeginum 1. júlí og fram yfir verslunarmannahelgi.  Gögn sem hafa verið pöntuð til afnota á lessal Landsbókasafns verða aðgengileg þar til Landsbókasafn lokar 20. júlí og fram yfir verslunarmannahelgi. Íslandssafn getur afgreitt flest gögn Kvennasögusafns á lessal eftir tilvikum, sendið tölvupóst á netfangið islandssafn (hjá) landsbokasafn.is til að…

Lesa meira : Sumarfrí 1. júlí – 4. ágúst 2026

Leiðsagnir um sýninguna VIÐ ERUM MARGAR

Verið velkomin í leiðsögn um 50 ára afmælissýningu Kvennasögusafns á lokadögum hennar í Þjóðarbókhlöðunni. Rakel Adolphsdóttir sýningarstjóri og Kristín Svava Tómasdóttir, textahöfundur sýningarinnar, segja frá fjölbreyttum hópi kvenna sem unnu ýmis konar störf á fyrri hluta 20. aldar, stofnuðu félagasamtök, buðu sig fram til þings og forseta ásamt því að taka þátt í kvennaverkföllum. Leiðsagnirnar…

Lesa meira : Leiðsagnir um sýninguna VIÐ ERUM MARGAR

KVENNASÖGU barsvar 9. mars!

Verið hjartanlega velkomin á KVENNASÖGU barsvar! Mánudaginn 9. mars kl. 20:00 á Stúdentakjallaranum. Kamilla Einarsdóttir og Kristín Svava Tómasdóttir munu athuga hversu mikið þú veist um mikilvægar konur, um spennandi leyndarmál og merkisverða atburði! Hristið kvennasögu staðreyndirnar fram úr ermunum til að vinna sögulega vinninga! 9. mars er einnig síðasti dagur afmælissýningar Kvennasögusafns VIÐ ERUM…

Lesa meira : KVENNASÖGU barsvar 9. mars!

Kvennaskólastúlkurnar. Nemendatal Kvennaskóla Húnvetninga 1879–1901.

Þórhildur Ísberg (f. 1925) hefur tekið saman upplýsingar um nemendur í Kvennaskóla Húnvetninga 1879-1901 og fjölskyldan hennar hefur tekið upplýsingarnar saman í bók sem er aðgengileg á Kvennasögusafni bæði rafrænt sem og í bókaformi. Þá hefur fjölskyldan einnig sett upp heimasíðu þar sem upplýsingar um nemendurna eru aðgengilegar. Elín Briem sá um aðalkennslu í skólanum…

Lesa meira : Kvennaskólastúlkurnar. Nemendatal Kvennaskóla Húnvetninga 1879–1901.

Afmælishátíð 5. des : Kvennasögusafn á tímamótum

Til að fagna 50 ára afmæli Kvennasögusafns er efnt til afmælishátíðar á afmælisdegi Önnu Sigurðardóttur, 5. desember. Þá verða fluttir örfyrirlestrar um fjölbreytt efni sem tengist bæði safninu og kvennasögu. Léttar veitingar að lokinni dagskrá.   Verið öll velkomin í fyrirlestrasal Þjóðarbókhlöðunnar, föstudaginn 5. desember kl. 13-16.   Dagskrá: Rektor Háskóla Íslands, Silja Bára Ómarsdóttir,…

Lesa meira : Afmælishátíð 5. des : Kvennasögusafn á tímamótum

Kjörgripur Landsbókasafns í nóvember

VIÐ ERUM MARGAR, 50 ára afmælissýning Kvennasögusafns, opnaði í Þjóðarbókhlöðunni þann 17. október 2025. Á sýningunni eru teknar fram 18 konur úr safnkosti Kvennasögusafns sem unnu margvísleg störf á 20. öldinni. Ein þeirra var Ingibjörg Guðlaugsdóttir (1887–1971) og eru skjöl hennar kjörgripur Landsbókasafns í nóvember. Ingibjörg fæddist að Sogni í Kjós. Hún var vinnukona í…

Lesa meira : Kjörgripur Landsbókasafns í nóvember

Takk! 24. október 2025

Við erum himinlifandi yfir hversu vel söguganga Kvennaárs 2025 tókst! Kröfuganga í gegnum söguna að útifundi Kvennaverkfallsins var stórkostleg hugmynd hjá framkvæmdastjórn Kvennaárs sem á heiðurinn að framkvæmd hennar. Fagstjóri Kvennasögusafns tilheyrir þeirri stjórn og var ánægð að geta lagt sitt að liði. Það var draumi líkast að sjá baráttusögu kvenna birtast svona ljóslifandi með…

Lesa meira : Takk! 24. október 2025

Dagskrá opnunar föstudaginn 17. október 2025, kl. 15

Velkomin á opnun sýningar í Þjóðarbókhlöðu 17. október, kl. 15. Dagskrá: Ljóðaflutningur: Stofnendur Laufeyjar, ungmennaráðs Kvenréttindafélags ÍslandsFundarstjórn: Rakel Adolphsdóttir, fagstjóri Kvennasögusafns Léttar veitingar að lokinni dagskrá—VIÐ ERUM MARGAR er sýning á safnkosti Kvennasögusafns Íslands, sem haldin er í tilefni af 50 ára afmæli safnsins. Þemu sýningarinnar eru félög, vinna og verkföll kvenna. Opnun hennar fer…

Lesa meira : Dagskrá opnunar föstudaginn 17. október 2025, kl. 15