Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

SAGAN MENNDURTEKUR SIG // Vinnustofa fyrir konur af erlendum uppruna

Hvernig segjum við sögu kvenna af erlendum uppruna?

Kvennasögusafn býður konum af erlendum uppruna til vinnustofu laugardaginn 7. nóvember 2026, kl. 10:00-12:30 á Landsbókasafni, Þjóðarbókhlöðu, Arngrímsgötu 3. 

Mannkynssagan er einmitt það; hún snýst mestmegnis í kringum „mennina“ í „mannkyninu“. Þetta á sérstaklega við sögu kvenna af erlendum uppruna sem búa á Íslandi. Þær týnast oft, eru faldar og það er ekki talað um þær í sögubókunum. Á Íslandi hafa sögur erlendra kvenna verið sérstaklega faldar með þvingandi aðgerðum eins og að neyða innflytjendur til að skipta um nafn. Aðlögun frekar en inngilding. 

Hvaða áhrif hefur fortíðin á skilning okkar á nútímanum? Hvernig viljum við að sagan sé sögð og hvaða tækifæri höfum við til að segja söguna? Hvaða hlutverki gegnir söguleg þekking á tímum bakslags? Er hægt að misnota sögunna?

Vinnustofan er fyrir konur af erlendum uppruna, kvenkyns (trans og sís) og kynsegin innflytjendur, innflytjendur af annarri kynslóð, sagnfræðinga og aðra sérfræðinga í GLAM-geiranum (Galleries, Libraries, Archives og Museums). Vinnustofan verður á ensku, en þátttakendum er frjálst að tala íslensku og við gerum okkar besta til að vera sveigjanleg með önnur tungumál. 

Inga Auðbjörg Straumland stýrir stofunni sem byrjar á kynningu frá Rakel Adolphsdóttur, verkefnastjóra Kvennasögusafns, og Marion Poilvez, skjalaverði W.O.M.E.N.

Drykkir og léttar veitingar. Vinsamlegast boðið komu ykkar á Facebook svo við getum áætlað veitingar. 

Upplýsingar um aðgengi: https://landsbokasafn.is/adgengi-fyrir-fatlad-folk/