Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

Kvennafrí – upplýsingagjöf til erlendra fjölmiðla og rannsakenda

Árlega aðstoðar Kvennasögusafn tugi erlendra fjölmiðla og rannsakenda í heimildaöflun um kynjajafnrétti á Íslandi og kvennafrídagana. Nú var að birtast grein í femíníska vefritinu Ilda frá Suður-Kóreu: https://ildaro.com/9989

Það er mikilvægt að hægt sé að leita til traustrar stofnunnar og sérhæfðs starfsfólks sem hefur getu og þekkingu til að miðla sögu kvenna- og kynjajafnréttisbaráttu Íslands. Það er Kvennasögusafni bæði ljúft og skylt að geta orðið við öllum þeim fyrirspurnum sem berast varðandi kvennafrídagana. Hér eru skjalasöfn daganna varðveitt og á vefsíðu okkar hafa verið aðgengilegar upplýsingar um aðgerðirnar í áraraðir. 

kvennafri1975
Framkvæmdanefnd um kvennafrí gefur Kvennasögusafni skjöl sín árið 1976.
Kvennafri 24 okt - limmidi
Límmiði kvennafrís 1975 er meðal safngripa sem safnið varðveitir.