Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

Anna Pjetursson (1845-1921), píanókennari. KSS 2021/18.

Lýsandi samantekt

Varðveislustaður
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
Safnmark
KSS 2021/18
Titill
Anna Pjetursson
Umfang

Ein askja

Samhengi

Nöfn skjalamyndara

Anna Pjetursson (1845-1921), píanókennari

Anna Sigríður Vigfúsdóttir Thorarensen Pjetursson

Lífshlaup og æviatriði

Anna Sigríður var fædd 6. mars 1845 og lést 6. júní 1921.

„[Hún] var fyrsta konan sem 1870

gerði píanókennslu að ævistarfi sínu. Hún er jafnframt talin vera fyrsta konan sem tók kennarapróf í söng- og píanókennslu. Anna fór ung að árum í fóstur hjá móðurbróður sínum, Sigurði Melsteð, og Ástríði, konu hans. Ástríður Melsteð var vel menntuð og spilaði á píanó. Hún mun hafa verið önnur tveggja kvenna hérlendis sem kenndi hljóðfæraslátt á þessum tíma. Anna lærði fyrst að spila á píanó hjá fóstru sinni og fékk síðan ókeypis tilsögn í að leika og kenna á píanó hjá Olufu Finsen. Anna var 15 ára þegar hún fékk til sín fyrstu nemendurna. Hún kenndi fyrst á heimili fósturforeldra sinna, en gerði kennsluna að aðalstarfi sínu er hún giftist Pjetri Pjeturssyni 1870. Anna fór til Kaupmannahafnar 1884 og tók kennarapróf í tónlist. Hún fór síðan aftur til Hafnar 1892 til að kynna sér nýjungar í kennslunni. Á sínum yngri árum lék hún oft á dansleikjum í Reykjavík. Anna tók virkan þátt í undirbúningi Kvennalistans í bæjarstjórnarkosningunum 1908 og var beðin um að gefa kost á sér, en fékkst ekki til þess. Hún kenndi fram á síðasta dag og frægt er orðið að í sextíu ár tók hún aðeins 50 aura fyrir kennslustundina þrátt fyrir að verðlag tæki miklum breytingum á þessu tímabili.“

Ártöl og áfangar í sögu íslenskra kvenna, bls. 81.

Um afhendingu

2. september 2021 Einar Matthíasson afthenti skjöl Önnu Sigríðar Vigfúsdóttur (1845-1921) sem starfaði sem píanókennari, fyrst kvenna á Íslandi. Afhending inniheldur bréfaskipti milli Önnu og sonar hennar Helga, minnisbók sem sýnir m.a. að hún kenndi á milli átta að morgni til níu að kvöldi, ræður o.fl. [KSS 2021/18]

Um aðgengi og not

Um aðgengi og not
Aðgangur er öllum heimill
Skilyrði er stjórna endurgerð
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
Tungumál
Íslenska

Tengt efni

Staðsetning frumrita

Upplýsingar um staðsetningu frumgerða sendibréf fylgdu ekki afhendingunni.

Um lýsinguna

Athugasemdir skjalavarðar

Rakel Adolphsdóttir skráði 7. ágúst 2025

 

Skjalaskrá

askja 1

örk 1

  • Húskveðja við jarðarför Önnu Sigríðar Pjetursson [handskrifað]
  • Eitt kort til Önnu frá nemendum hennar 6. mars 1905 [handskrifað]
  • Minnisbók [tekjur, listi yfir nemendur og fleira, illa farin]

örk 2:

  • Uppskrifuð bréf frá Önnu til Helga Péturssonar [afrit]

örk 3:

Ljósrit af bréfum Önnu Pjetursson til Helga Pjetursson [afrit]

örk 4:

Fálkinn 1942 þar skrifar Helgi sonur Önnu Sigríðar greinina „Ágætar formæður“

Bók: Helgi Ó. Þórarinsson, Smiðjustígur 5b : fjölskyldusaga, 2006. [til útláns á Landsbókasafni]