Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

Sumarfrí 1. júlí – 4. ágúst 2026

Kvennasögusafn er lokað vegna sumarfrís starfsmanns þess frá miðvikudeginum 1. júlí og fram yfir verslunarmannahelgi. 

Gögn sem hafa verið pöntuð til afnota á lessal Landsbókasafns verða aðgengileg þar til Landsbókasafn lokar 20. júlí og fram yfir verslunarmannahelgi. Íslandssafn getur afgreitt flest gögn Kvennasögusafns á lessal eftir tilvikum, sendið tölvupóst á netfangið islandssafn (hjá) landsbokasafn.is til að spyrjast fyrir um það.

Ef þið viljið afhenda dagbækur, sendibréf og fleiri skjöl getið þið sent tölvupóst á netfangið kvennasogusafn (hjá) landsbokasafn.is og við höfum þá samband við ykkur eftir sumarfrí.

Hafið það gott í sumar!

 

—

Ýmis safnkostur Kvennasögusafns er aðgengilegur á stafrænu formi. Sem dæmi: 

—

Ljósmynd úr safni Kvenfélagsins Keðjunnar, félag eiginkvenna vélstjóra, en þær fóru gjarnan í skemmtiferðir víðs vegar um land. Tilvísun: KSS 41, ljósmynd 5.

KSS 041_00005