Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður
- Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
- Safnmark
- KSS 68
- Titill
- Delta Kappa Gamma
- Tímabil
- 1975-2009
- Umfang
12 öskjur
- Tilvitnun
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 68. Delta Kappa Gamma. Einkaskjalasafn.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara
Delta Kappa Gamma, Alfa-deild
- Lífshlaup og æviatriði
The Delta Kappa Gamma Society International eru alþjóðasamtök kvenna í fræðslustörfum sem voru stofnuð af 12 konum í Austin í Texas 1929. Höfuðstöðvar samtakanna eru í Austin og þar er heimasíðu Delta Kappa Gamma Society International ritstýrt. Alþjóðasamtökin hafa nú landsdeildir í mörgum þjóðlöndum auk Bandaríkjanna.
Íslenska landsdeildin var stofnuð 7. nóvember árið 1975 með Alfa - deild í Reykjavík en landssambandið var stofnað 28. mars 1977. Íslenska landssambandið tilheyrir Evrópusvæði sem stofnað var 1998. Á Íslandi eru starfandi tólf deildir með u.þ.b. 317 félagskonum. Fimm eru á höfuðborgarsvæðinu og ein í hverjum landshluta nema á Norðurlandi þar sem þær eru tvær. Deildirnar starfa sjálfstætt og halda a.m.k. fjóra fundi á ári. Deildirnar mynda landssamband og er haldið landssambandsþing annað hvert ár á oddatölu og skiptast deildir á að halda þingið ásamt landssambandsstjórn. Nýjar deildir eru stofnaðar við hátíðlega athöfn og einnig eru nýir félagar teknir inn í starfandi deildir með viðhöfn. Konum er boðin þátttaka í Delta Kappa Gamma samtökunum. Þær sem ganga í samtökin hljóta full réttindi sem félagar í deild, landssambandi og alþjóðasamtökunum.
Hver deild starfar sjálfstætt og velur sér verkefni eftir áhuga og þörfum félaga í deildinni. Öll tengjast störfin markmiðum alþjóðasamtakanna.
- Varðveislusaga
Gögnin voru í fórum félagskvenna
- Um afhendingu
- Fyrstu gögnin voru afhent Kvennasögusafni 6. júní 1997 með nokkurri viðhöfn. sbr. bréf í öskju 11. Sigrún Klara Hannesdóttir, forseti Delta Kappa Gamma á Íslandi afhenti ásamt öðrum stjórnarkonum. Gögnin voru: Fundagerðabók landssambands 1977-1983, fundagerðabók landssambands 1985-1991 og fundagerðabók landssambands 1991-1995, skjöl forseta landsambands 1975-1995 og fréttabréf 1-24 (1975-1996). Safnið var þá sett í öskjur.
- Þann 17. okt. 2002 færði Margrét Harðardóttir safninu skjöl félagsins vegna áranna 1996-1999 og voru þau gögn sameinuð þeim sem fyrir voru.
- Þann 27. mars 2007 færði Sigrún Klara Hannesdóttir safninu skjöl vegna áranna 2000 og 2001.
- Þann 14. mars 2012 barst safninu enn viðbót.
Innihald og uppbygging
- Umfang og innihald
Safnið inniheldur ýmis gögn Delta Kappa Gamma: bréfasafn, erlend samskipti, fundagerðabækur og landsfundagögn.
- Grisjun
Engu var eytt
- Viðbætur
Von er á viðbótum
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not
- Safnið er opið
- Skilyrði er stjórna endurgerð
- Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
- Tungumál
- Íslenska
Tengt efni
- Tengt efni
KSS 69. Delta Kappa Gamma. Einkaskjalasafn.
KSS 84. Gammadeild Delta Kappa Gamma. Einkaskjalasafn.
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar
Auður Styrkársdóttir skrifaði lýsingu í júlí.
- Dagsetning lýsingar
- 18. júlí 2012
Skjalaskrá
A – Fundagerðabækur (öskjur 1-2)
B – Bréf (öskjur 3-8)
B1 Bréf, send (erlendis)
B2 Bréf, móttekin (erlend)
B3 Bréf ( innlend)
C – Landsfundir og þing (öskjur 9-11)
D – Annað efni (askja 12)
A – Fundargerðarbækur
Askja 1
- Gerðabók stjórnarfunda Alfa-deildar 1975-1982
- Fundargerðabók Alfa-deildar 1983-1989
- Fundargerðabók Alfa-deildar 1989-1996
Askja 2
- Fundargerðir landssambandsstjórnar og landsfunda 1977-1983
- Fundargerðir landssambandsstjórnar og landsfunda 1985-1991
- Fundargerðir landssambandsstjórnar, landssambandsþinga og framkvæmdaráðs 1991-1995
B Bréf
Askja 3
Bréf inn (erlend)
- 1975-1988
Askja 4
Bréf inn (erlend):
- 1989-1996
Askja 5
Bréf inn (erlend):
- 1997-1999
Askja 6
Bréf inn (erlend):
- 2000-2001
Askja 7
Bréf út (erlend):
- 1977-1999
Askja 8
Bréf innlend
C – Landsfundir og þing
Askja 9
- Landsfundur 1978
- Landssambandsþing 1979
- Aðalfundur landssambands 1981
- Landsfundur 1987
- Vorstefna að Hallormsstað 1990
- Landssambandsþing 1991
- Landssambandsþing 1993
- Landssambandsþing 1995
- Vorblót/vorþing 1996
- Landssambandsþing 1997
- Vorþing 1998
- Landssambandsþing 1999
- Landssambandsþing 2001
Askja 10
Stjórn landssambandsins og framkvæmdaráð-fundargerðir:
- 1989-2001
Askja 11
- Afhendingarbréf til Kvennasögusafns Íslands
- Ársskýrslur 1980, 1982, 1983, 1984 og 1986
- Ársskýrslur 1990, 1991 og 1992
- Ársskýrslur 1993 og 1994
- Ársskýrslur 1996 og 1997
- Ársskýrsla 1998
- Fréttabréf 1-24 (1979-1995)
- Félag kvenna í fræðslustörfum 20 ára (bæklingur, útg. 1997)
D – Annað efni
Askja 12
Ýmislegt:
- Heimsókn frá Illinois 1988
- Evrópusamstarf 1993-1995
- International speaker, umsókn 1996
- Alþjóðaþing 1996
- Gögn varðandi Alþjóðasamtökin 1981-1993
- Framkvæmdaáætlun 1995-1997
- Ýmis gögn frá 1990
- Athugasemdir við frv. til laga um fullorðinsfræðslu 1976
- Starfshópur um grunn- og framhaldsskóla 1981
- Athugasemdir við framkvæmdaáætlun menntamálaráðuneytis 1991
- Efni sent í fréttabréfið 1993
- Efni sent í haustblað 1994
- Í minnisbók Bókrúnar 1993
- Alfadeild 1982-1984
- Stofnun Þeta-deildar 1998
- Undirbúningur Eta-deildar 1997
- Inntökuathöfn nýrra félaga. Um samtökin (frá 1996). Skírteini
- Ýmsar nafnaskrár og félagatöl
- Nafnalisti sendur til Texas (1995-1997?)
- Söngur Delta Kappa Gamma, lag og ljóð Ingibjargar Þorbergs
- Merki samtakanna (ljósrit). Gríska stafrófið og framburður þess á ensku
- Nokkrar ódagsettar tilkynningar og eitt póstkort
- Útfarardagskrár Helgu Kristínar Möller og Helgu Gunnarsdóttur