Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

Baráttusamtök fyrir sjálfsákvörðunarrétti kvenna til löglegrar fóstureyðingar (st. 1975). KSS 64.

Lýsandi samantekt

Varðveislustaður
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
Safnmark
KSS 64
Titill
Baráttusamtök fyrir sjálfsákvörðunarrétti kvenna til löglegra fóstureyðinga.
Tímabil
1974-
Umfang

Ein askja

Tilvitnun

Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 64. Baráttusamtök fyrir sjálfsákvörðunarrétti kvenna til löglegrar fóstureyðingar. Einkaskjalasafn.

(Lbs.-Hbs. Kvss.) KSS 64. Baráttusamtök fyrir sjálfsákvörðunarrétti kvenna til löglegrar fóstureyðingar. Einkaskjalasafn.

Samhengi

Nöfn skjalamyndara

Baráttusamtök fyrir sjálfsákvörðunarrétti kvenna til löglegra fóstureyðinga (st. 1975)

Lífshlaup og æviatriði

Samtökin voru stofnuð í kjölfar þess að ríkisstjórn lagði fram frv. til laga um fóstureyðingar í des. 1974 þar sem ekki var ákvæði um heimild til fóstureyðingar að ósk konu. Fylgismenn þess málstaðar gengust fyrir stofnun hinna þverpólitísku samtaka sem hér eru nefnd. Stofnfundur var haldinn á Hótel Sögu 24. mars 1975 og voru stofnfélagar 329. Samtökin hafa ekki verið lögð formlega niður.

Heimildir: Olga Guðrún Árnadóttir (ritstj.)(2011): Á rauðum sokkum. Og Þjóðviljinn 26. mars 1975, bls. 7.

Varðveislusaga

Gögnin voru í fórum Álfheiðar Ingadóttur (f. 1951).

Um afhendingu

Álfheiður Ingadóttir afhenti Kvennasögusafni Íslands gögnin 30. júní 2011

Innihald og uppbygging

Umfang og innihald

Safnið inniheldur stóra bók er geymir nöfn stofnfélaga, blaðaúrklippur, fréttatilkynningar, greinar og ljósrit af greinum.

Grisjun

Engu var eytt

Viðbætur

Ekki er von á viðbótum

Um aðgengi og not

Um aðgengi og not
Aðgangur er ótakmarkaður
Skilyrði er stjórna endurgerð
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
Tungumál
Íslenska

Tengt efni

Tengt efni

KSS 63. Rauðsokkahreyfingin. Einkaskjalasafn.

KSS 2019/14. Rauðsokkahreyfingin. Einkaskjalasafn.

Um lýsinguna

Athugasemdir skjalavarðar

Auður Styrkársdóttir raðaði og skrifaði lýsingu í nóvember 2011.

Dagsetning lýsingar
30. nóvember 2011

Skjalaskrá

Askja 1

– Forvitin rauð, janúar 1974

– Alþingistíðindi, 8. hefti 1974-75, umræður 27.-30. janúar

– Bréfsefni og merkt umslög samtakanna

– Bók er geymir nöfn stofnfélaga

-Ýmislegt viðvíkjandi stofnfundinum

– Fréttatilkynning um stofnfund

– Erindi Álfheiðar Ingadóttur í útvarp (þátturinn „Um daginn og veginn)

– Álfheiður Ingadóttir: Um hvað snýst málið? (handrit)

– Ræða flutt á stofnfundinum (Álfheiður Ingadóttir)

– Ræða um málið (etv erindi í útvarp). Óþekktur

– Blaðaúrklippur

– Athugasemdir Baráttusamtakanna

– Bréf til þingmanna (teikning og skrif aftaná)

– Tillaga til ályktunar frá stjórn Stúdentaráðs H.Í.

– Bréf til formanns heilbrigðis- og trygginganefndar n.d. Alþingis, 2. apríl 1975

– Bréf frá nefnd er endurskoðaði lög um fóstureyðingar, 30 jan. 1974

– Yfirlýsing kvenna sem hafa gengist undir fóstureyðingu, óundirritað