Lýsandi samantekt
- Varðveislustaður
- Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
- Safnmark
- KSS 133
- Titill
- Martha Þorleifsdóttir
- Tímabil
- 1933–1939, 2000
- Umfang
Ein askja
- Tilvitnun
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 133. Martha Þorleifsdóttir. Einkaskjalasafn.
Samhengi
- Nöfn skjalamyndara
Martha Þorleifsdóttir (1897–1984)
- Lífshlaup og æviatriði
Fædd 11. júní 1897 í Sólheimum. Látin 6. apríl 1984 í Reykjavík.
Eiginmaður var Guðmundur Gíslason (1893–1972), þau giftu sig 21. maí 1921. Börn þeirra: Guðmundur Karl (f. 1922) og Steinunn Svala (1924). Lærði saum. Vann við fiskvinnslu í Vestmannaeyjum. Vann hjá Föt h/f. eftir að hún flutti til Reykjavíkur líklega um 1946. Var félagi í Kommúnistaflokki Íslands, síðar Sósíalistaflokknum, og loks í Alþýðuandalaginu. Var ritari Verkakvennafélags í Vestmannaeyjum á kreppuárunum og ein af frumkvöðlum að stofnun barnaleikskóla í Eyjum. Lærði að mála og teikna á efri árum hjá Valgerði Briem. Heimild: Þjóðviljinn, 13. apríl 1964, bls. 12. Sjá einnig: http://www.heimaslod.is/index.php/Marta_%C3%9Eorleifsd%C3%B3ttir
- Varðveislusaga
Úr fórum ættmenna Mörthu.
- Um afhendingu
Anna Jónsdóttir, nágranni Mörthu, afhenti fyrir hönd fjölskyldu Mörthu 14. júní 2000.
Um aðgengi og not
- Um aðgengi og not
- Aðgangur er öllum heimill
- Skilyrði er stjórna endurgerð
- Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
- Tungumál
- Íslenska
Um lýsinguna
- Athugasemdir skjalavarðar
Auður Styrkársdóttir skráði. Rakel Adolphsdóttir sett á KSS safnmark og skráði rafrænt 19. júní 2017.
- Dagsetning lýsingar
- 19. júní 2017
Skjalaskrá
Askja 1
- Fundargerðarbók skemmtifélagsins Rún sem starfaði í Vestmannaeyjum. Bókin nær yfir tímabilið 1933-1939.
- Stimpill skemmtifélagsins Rún
- Æviágrip Mörthu, skrifað af Önnu Jónsdóttur