Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

Emilía Oktavía Biering (1908–2006), ljósmóðir. KSS 132.

Lýsandi samantekt

Varðveislustaður
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
Safnmark
KSS 132
Titill
Emilía Oktavía Biering
Tímabil
1933–1945
Umfang

Ein askja 

Tilvitnun

Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 132. Emilía Oktavía Biering. Einkaskjalasafn.

Samhengi

Nöfn skjalamyndara

Emilia Oktavía Biering (1908–2006), ljósmóðir

Lífshlaup og æviatriði

F. 3. október 1908 í Reykjavík. D. 25. nóvember 2006. Faðir: Moritz Wilhelm Biering (1877-1945). Móðir: Þorbjörg Biering Sæmundsdóttir (1886-1973). Lauk ljósmóðurprófi LMSÍ 30.09.1935. Ljósmóðir á Patreksfirði 1935-1945, flutti þá til Reykjavíkur. Vann þar hjúkrunarstörf í heimahúsum og tók sjúka og aldraða á heimili sitt í 30 ár. Starfrækti þar sitt eigið þjónustufyrirtæki. Emilía ritaði greinar um ýmiss konar efni í blöð og tímarit.

Maki I: Helgi Hálfdánarson, þeirra börn: Esther Biering (f. 1931, d. 1976), Rafn Biering (f. 1933). Maki II: Sigurjón Sigmundsson.

Heimildir: Ljósmæðratal 1984, bls. 99-100. Minningargreinar í Morgunblaðinu 4. desember 2006.

Varðveislusaga

Úr fórum ættmenna

Um afhendingu

Ásthildur Helgadóttir, tengdadóttir Emilíu, afhenti skjölin í febrúar 2007.

Um aðgengi og not

Um aðgengi og not
Aðgangur er öllum heimill
Skilyrði er stjórna endurgerð
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
Tungumál
Íslenska

Um lýsinguna

Athugasemdir skjalavarðar

Auður Styrkársdóttir skráði. Rakel Adolphsdóttir setti á safnmarkið KSS 132 í maí 2017 og skráði rafrænt.

Félagsskírteini hennar í Ljósmæðrafélagið var sýnt á sýningu um félagið 2019 í Landsbókasafni.

Dagsetning lýsingar
2. maí 2017

Skjalaskrá

askja 1

Skipunarbréf ljósmóður í Patreksfjarðarumdæmi, 1933

Vottorð vegna ljósmóðurstarfs í Patreksfjarðarhreppi, 1934

Bréf frá Auði Eiríksdóttur til ljósmóðurnema, dags, 18/12 1934

Félagsskírteini í Ljósmæðrafélagi Íslands, 1935

Kvittanir vegna greiðslu í lífeyrissjóð ljósmæðra, 1939-1945