Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

Uncategorized

Merkisviðburðir 2011

100 ár 11 júlí 1911 –  Lög nr. 37 um rétt kvenna til embættisnáms, námsstyrks og embætta. 100 ár 30. júlí 1911 – Lög nr. 35 um stofnun háskóla. 70 ár 1941 – Menningar- og minningarsjóður kvenna stofnaður. 60 ár 1951 – Menningar- og friðarsamtök íslenskra kvenna stofnuð. 60 ár 1951 – Ársrit Kvenréttindafélags Íslands, 19. Júní, hefur göngu sína. 50 ár 29. mars 1961…

Lesa meira : Merkisviðburðir 2011

Kvennasafnið í Árósum 25 ára

Kvindemuseet var stofnað árið 1982, hélt sínar fyrstu sýningar 1984 og var árið 1991 viðurkennt af hinu opinbera sem landssafn á sínu sviði. Það er eitt af örfáum söfnum af þessu tagi og er orðið meiriháttar túristastaður. Kvennasögusafn mælir með skoðunarferð ef þið eigið leið til Árósa. Heimasíða kvindemuseet.

Lesa meira : Kvennasafnið í Árósum 25 ára

Með viljann að vopni

Listasafn Reykjavíkur hefur opnað á Kjarvalsstöðum sýningu sem helguð  er myndlistarkonum frá áratugnum 1970-1980, en tilkoma Rauðsokkahreyfingarinnar og kjör Vigdísar Finnbogadóttur ramma inn þennan athafnasama áratug í kvennabaráttunni á Íslandi. Safnaskottur: dagskrárveisla hér.

Lesa meira : Með viljann að vopni

Kvennabarátta og kristin trú

er heiti á greinasafni sem nýkomið er út og skoðar togstreitu gamalla kristinna gilda og nýrra hugmynda um lýðræði, þátttöku og viðurkenningu á konum sem fullgildum þjóðfélagsþegnum. Ritstjórar eru Arnfríður Guðmundsdóttir og Kristín Ástgeirsdóttir og auk þeirra skrifa í bókina Dagný Kristjánsdóttir, Erla Hulda Halldórsdóttir, Nína Leósdóttir og Sigríður Dúna Kristmundsdóttir. Kristnihátíðasjóður styrkti.

Lesa meira : Kvennabarátta og kristin trú

Kvennakraftur

27. júní 2005 afhentu kvennasamtök Alþingi listaverkið „Kvennakraftur“ eftir Koggu (Kolbrúnu Björgólfsdóttur) í tilefni af 90 ára afmæli kosningaréttar kvenna. Forseti Alþingis, Halldór Blöndal, veitti verkinu viðtöku fyrir hönd Alþingis. Fulltrúar UNIFEM, Kvenréttindafélags Íslands, Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum, KvenfélagasambandsÍslands, Samtaka um kvennaathvarf, Stígamóta, Kvennasögusafns Íslands, Kvennakirkjunnar og Feministafélags Íslands ásamt Halldóri Blöndal, forseta Alþingis…

Lesa meira : Kvennakraftur

Minningarathöfn í Hólavallakirkjugarði 18. júní 2005

Kvennasamtök gengust fyrir minningarathöfn í Hólavallakirkjugarði laugardaginn 18. júní 2005 til þess að minnast kosningaréttar íslenskra kvenna. Hallfríður Ólafsdóttir, flautuleikari, og Marta Guðrún Halldórsdóttir, söngkona, fluttu lög og borgarstjóri Reykjavíkur, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, flutti ávarp. Að því búnu var gengið að legstöðum neðangreindra baráttukvenna og blómsveigur lagður á þá (tölurnar fyrir aftan nöfnin vísa á grafreiti…

Lesa meira : Minningarathöfn í Hólavallakirkjugarði 18. júní 2005

Íslenskar kvennahreyfingar – innblástur, íhlutun, irringar

Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum stóð fyrir norrænu ráðstefnunni Kvennahreyfingar – Innblástur, íhlutun, irringar dagana 10. – 12. júní 2004 ásamt Kvennasögusafni og NIKK (Nordisk Institut for kvinne- og könnsforskning). Ráðstefnan fjallaði um norrænar kvennahreyfingar og áhrif þeirra á samfélög og menningu Norðurlanda og alþjóðasamfélagsins. Þetta var ráðstefna fyrir fræðinga, fulltrúa félagasamtaka og stjórnmálafulltrúa svo…

Lesa meira : Íslenskar kvennahreyfingar – innblástur, íhlutun, irringar