Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

Tilkynningar

Lokað til 19. júní

Lokað vegna sumarleyfis starfsmanns Kvennasögusafns 12.-18. júní. Vegna útláns á lestrarsal má athuga hvort Íslandssafn geti aðstoðað: islandssafn (hjá) landsbokasafn.is   ljósmynd úr safni Þorbjargar Árnadóttur (tilvísun: KSS 74, ljósmynd 30)

Lesa meira : Lokað til 19. júní

Hvítabandið 130 ára!

Kvennasögusafn óskar Hvítabandinu hjartanlega til hamingju með 130 ára afmælið í dag! Í tilefni þessa merkilega afmælis hefur Kvennasögusafn myndað fyrstu fundargerðarbók félagsins sem og þær ljósmyndir sem fylgdu skjalasafni þess, sjá sérstaka undirsíðu. Við varðveitum stolt þessar gersemar Hvítabandsins, og fleiri til. Rúmlega 80 samtök kvenna varðveita skjalasöfn sín hjá Kvennasögusafni, hafið gjarnan samband…

Lesa meira : Hvítabandið 130 ára!

Vinurnar

Rakel Adolphsdóttir á Kvennasögusafni og Sigríður Jónsdóttir á Leikminjasafni skrifuðu um vinurnar Guðrúnu Jónasson og Gunnþórunni Halldórsdóttur fyrir tímarit Hinsegin daga. Það er margt sem leynist á Landsbókasafni og tengist þeim stöllum eins og kemur fram í greininni.

Lesa meira : Vinurnar

Sumarleyfi

Kvennasögusafn verður lokað frá 8.-19. júlí vegna sumarleyfis starfsmanns þess. Landsbókasafn (Þjóðarbókhlaðan) verður svo lokað frá 22. júlí og opnar aftur þriðjudaginn 6. ágúst. Sjáumst þá! Ljósmynd úr safni Kvennalistans.

Lesa meira : Sumarleyfi

Æviskrár þúsund íslenskra kvenna

Erna S. Egilsdóttir hefur tekið saman æviskrár 1.000 íslenskra kvenna og afhenti Kvennasögusafni það til varðveislu þann 14. nóvember. Æviskráin er flokkuð sem einkaskjalasafn Ernu og verður birt á vef Kvennasögusafn ásamt skjalaskrá þess.  Í starfshópi um verkið ásamt Ernu voru Gerður G. Óskarsdóttir, Katrín Kinga Jósefsdóttir og Helga Ólafsdóttir sem allar voru viðstaddar afhendinguna ásamt…

Lesa meira : Æviskrár þúsund íslenskra kvenna

Kallarðu þetta jafnrétti?

Fyrir 48 árum boðuðu konur hér á landi í fyrsta sinn til Kvennafrís þar sem 90% kvenna lögðu niður ólaunuð sem launuð störf til að sýna fram á mikilvægi framlags þeirra til samfélagsins. Alls hafa konur lagt niður vinnu í sex skipti til að mótmæla kynbundnu misrétti. Konur gengu fyrst út 1975, svo 1985, 2005,…

Lesa meira : Kallarðu þetta jafnrétti?

LGBTI ráðstefna í Reykjavík

Fagstjóri Kvennasögusafns sat ráðstefnu á vegum Samtakanna ‘78  sem var haldin í samvinnu við Forsætisráðuneytið og Norrænu ráðherranefndina.  Hátt í 100 fulltrúum frá öllum helstu samtökum hinsegin fólks á Norðurlöndum var boðið á ráðstefnuna sem fór fram 26. september á Fosshótel Reykjavík. Þar var meðal annars rætt um mikilvægi samstöðu kvennahreyfinga og hinsegin hreyfinga. Kvennasögusafn…

Lesa meira : LGBTI ráðstefna í Reykjavík

Sumarfrí

Kvennasögusafn Íslands er lokað til 10. ágúst.   Gögn varðveitt á Kvennasögusafni verða eftir sem áður aðgengileg í sumar til láns á lessal hjá Íslandssafni og þar má jafnframt afhenda einkaskjöl til varðveislu:  islandssafn (hjá) landsbokasafn.is, s. 525 5630.

Lesa meira : Sumarfrí

Nýsköpunarsjóður námsmanna: Kortlagning teikninga og myndnotkunar Rauðsokka

Karólína Rós Ólafsdóttir, skáld og fræðikona og Boaz Yosef Friedmam, myndlistamaður fengu styrk frá Nýsköpunarsjóði námsmanna til að vinna að rannsóknina „Kortlagning teikninga og myndnotkunar Rauðsokka“ í sumar undir handleiðslu Rakel Adolphsdóttur, fagstjóra Kvennasögusafns. Afurð verkefnisins verður stafrænni gagnabanki teikninga, myndrýni, viðtöl og sýningarkassi á 2.hæð Landsbókasafnsins í haust. Karólína og Boaz eru stofnendur Íslenska…

Lesa meira : Nýsköpunarsjóður námsmanna: Kortlagning teikninga og myndnotkunar Rauðsokka

Sumarfrí

Kvennasögusafn hefur farið í sumarfrí þar til 9. ágúst. Vinsamlegast hafið samband við Íslandssafn til að panta gögn til útláns eða til að afhenda einkaskjalasöfn. Ljósmynd úr einkaskjalasafni Láru Sigurbjörnsdóttur (KSS 72).

Lesa meira : Sumarfrí