Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

Tilkynningar

Sumarfrí 1. júlí – 4. ágúst 2026

Kvennasögusafn er lokað vegna sumarfrís starfsmanns þess frá miðvikudeginum 1. júlí og fram yfir verslunarmannahelgi.  Gögn sem hafa verið pöntuð til afnota á lessal Landsbókasafns verða aðgengileg þar til Landsbókasafn lokar 20. júlí og fram yfir verslunarmannahelgi. Íslandssafn getur afgreitt flest gögn Kvennasögusafns á lessal eftir tilvikum, sendið tölvupóst á netfangið islandssafn (hjá) landsbokasafn.is til að…

Lesa meira : Sumarfrí 1. júlí – 4. ágúst 2026

KVENNASÖGU barsvar 9. mars!

Verið hjartanlega velkomin á KVENNASÖGU barsvar! Mánudaginn 9. mars kl. 20:00 á Stúdentakjallaranum. Kamilla Einarsdóttir og Kristín Svava Tómasdóttir munu athuga hversu mikið þú veist um mikilvægar konur, um spennandi leyndarmál og merkisverða atburði! Hristið kvennasögu staðreyndirnar fram úr ermunum til að vinna sögulega vinninga! 9. mars er einnig síðasti dagur afmælissýningar Kvennasögusafns VIÐ ERUM…

Lesa meira : KVENNASÖGU barsvar 9. mars!

Kvennaskólastúlkurnar. Nemendatal Kvennaskóla Húnvetninga 1879–1901.

Þórhildur Ísberg (f. 1925) hefur tekið saman upplýsingar um nemendur í Kvennaskóla Húnvetninga 1879-1901 og fjölskyldan hennar hefur tekið upplýsingarnar saman í bók sem er aðgengileg á Kvennasögusafni bæði rafrænt sem og í bókaformi. Þá hefur fjölskyldan einnig sett upp heimasíðu þar sem upplýsingar um nemendurna eru aðgengilegar. Elín Briem sá um aðalkennslu í skólanum…

Lesa meira : Kvennaskólastúlkurnar. Nemendatal Kvennaskóla Húnvetninga 1879–1901.

Takk! 24. október 2025

Við erum himinlifandi yfir hversu vel söguganga Kvennaárs 2025 tókst! Kröfuganga í gegnum söguna að útifundi Kvennaverkfallsins var stórkostleg hugmynd hjá framkvæmdastjórn Kvennaárs sem á heiðurinn að framkvæmd hennar. Fagstjóri Kvennasögusafns tilheyrir þeirri stjórn og var ánægð að geta lagt sitt að liði. Það var draumi líkast að sjá baráttusögu kvenna birtast svona ljóslifandi með…

Lesa meira : Takk! 24. október 2025

Úrklippubækur frá framboði Vigdísar Finnbogadóttur nú stafrænar

Nú er hægt að fletta úrklippubókum frá forsetaframboði Vigdísar Finnbogadóttur 1980 stafrænt.  Úrklippubækurnar voru gefnar Kvennasögusafni af Gerði Steinþórsdóttur og Sigríði Jónsdóttur 30. júní 1981. Anna Sigurðardóttir tók á móti gjöfinni á heimili sínu, Hjarðarhaga 26, þar sem Kvennasögusafn var til húsi fyrstu 20 starfsárin. Vigdís Finnbogadóttir var viðstödd og skartaði silkiklút með merki kvennaárs…

Lesa meira : Úrklippubækur frá framboði Vigdísar Finnbogadóttur nú stafrænar

Sumarfrí

Safnið lokar vegna sumarfrís starfsmanns þess 14. júlí til 5. ágúst en örvæntið ekki, hér er listi yfir skjöl sem hafa verið endurgerð stafræn og eru í opnum aðgangi sem þið getið flett á meðan: — Þá vitum við að það eru mörg að taka til í geymslum á sumrin og þá berast vonandi ný…

Lesa meira : Sumarfrí

Nýir titlar kvenna á vefnum bækur.is

Í tilefni af Kvennaári höfum við á Landsbókasafni gert átak í að fjölga verkum kvenna á vef okkar bækur.is.  Nú er hægt að lesa þar bækur Torfhildar Hólm, Guðrúnar Lárusdóttur, Bjargar C. Þorlákssonar og Bríetar Bjarnhéðinsdóttur svo dæmi séu nefnd.  Þá er nú hægt að lesa skýrslu um Kvennaárið 1975 sem og skýrslu kvennaársnefndar (1977).…

Lesa meira : Nýir titlar kvenna á vefnum bækur.is

Kvenréttindadagurinn 19. júní 2025

Í dag eru 110 ár frá því konur fengu kosningarétt til þingkosninga. Þann 19. júní 1915 undirritaði Kristján X. konungur lög um breytingu á stjórnarskrá Íslands sem m.a. færðu konum 40 ára og eldri kosningarétt til Alþingis. Nánar um kosningarétt kvenna á heimasíðu okkar og þróun kosningaréttar almennt á Vísindavefnum.—Við sjáumst víðsvegar um bæinn í dag…

Lesa meira : Kvenréttindadagurinn 19. júní 2025