Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
EN – English

Vilborg Harðardóttir (1935–2002), blaðakona og Rauðsokka. KSS 65.

Lýsandi samantekt

Varðveislustaður
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands.
Safnmark
KSS 65
Titill
Vilborg Harðardóttir
Tímabil
1970-1982
Umfang

Fjórar öskjur

Tilvitnun

Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Kvennasögusafn Íslands. KSS 65. Vilborg Harðardóttir (1935-2002). Einkaskjalasafn.

Samhengi

Nöfn skjalamyndara

Vilborg Harðardóttir (1935–2002)

Lífshlaup og æviatriði

sjá minningargreinar í Morgunblaðinu 23 ágúst 2002

Varðveislusaga

Mörður Árnason afhenti gögnin sem komu úr dánarbúi móður hans, Vilborgar Harðardóttur (1935-2002). Nokkur gögn er tilheyra sögu Rauðsokka eru flokkuð með KSS 63 (askja 23).

Um afhendingu

Afhending fór fram 14 maí 2014 á skrifstofu Kvennasögusafns

Innihald og uppbygging

Umfang og innihald

Safnið inniheldur fjórar öskjur. Fyrsta askjan geymir gögn varðandi fóstureyðingarmálið 1975, önnur askjan geymir gögn jafnréttisnefndar 1981-1983 og Vilborg var formaður fyrir, þriðja askjan geymir ýmis göng, m.a. ræður og greinar Vilborgar og gögn varðandi kvennaráðstefnum Sameinuðu þjóðanna 1975 og 1985. Fjórða askjan geymir nokkrar ljósmyndir.

Grisjun

Íslenskt efni á mjög sýruríkum pappír ljósritað og pappírnum eytt. Nokkur gögn er tilheyra sögu Rauðsokka eru flokkuð með KSS 63.

Viðbætur

Viðbóta er ekki von

Um aðgengi og not

Um aðgengi og not
Safnið er opið
Skilyrði er stjórna endurgerð
Notendur eru bundnir af ákvæðum laga um höfundarétt og persónuvernd
Tungumál
Íslenska, enska, norðurlandamál.

Tengt efni

Tengt efni

KSS 63. Rauðsokkahreyfingin. Einkaskjalasafn.

KSS 64. Baráttusamtök

KSS 146. Guðrún Ágústsdóttir. Einkaskjalasafn.

KSS 2018/15. Helga Sigurjónsdóttir. Einkaskjalasafn.

KSS 2019/14 Rauðsokkahreyfingin. Einkaskjalasafn.

Um lýsinguna

Athugasemdir skjalavarðar

Auður Styrkársdóttir skrifaði lýsingu í júní 2014 og setti á safnmark.

Dagsetning lýsingar
24. júní 2014

Skjalaskrá

Askja 1:
A Íslenskt efni:

  • Bréf til heilbrigðisráðherra frá konum sem gengist hafa undir fóstureyðingu (óundirritað);
  • bréf til allsherjarnefndar sameinaðs Alþingis, undirritað Pétur H.J. Jabobsson;
  • samantekt um núgildandi löggjöf íslenska um fóstureyðingar, afkynjanir og vananir;
  • frumvörp til laga; seminar um fóstureyðingarlöggjöf, lagadeild Háskóla Íslands; mikið talnaefni; útdráttur á löggjöf um fóstureyðingar á Norðurlöndunum og lög á Íslandi

B Erlent efni: ljósrit af greinum um fóstureyðingar, fóstureyðingarlöggjöf og rannsóknir.

Askja 2:
Efni tengt nefnd til þess að fjalla um jafnréttismál karla og kvenna, skipuð 3. apríl 1981. Vilborg Harðardóttir var formaður
     • Jafnréttislög á Norðurlöndum

  • Spurningar nefndarinnar og aðsend svör varðandi jafnréttislögin íslensku
  • Konur í sveitarstjórnum 1978-1982, listi
  • Úr könnun Kvennaársnefndar
  • Nokkur erindi nefndarinnar
  • Frumvarp til laga um jafnan rétt karla og kvenna, breytingar 1981
  • Fundagerðir 22 funda nefndarinnar, 21. apríl 1981-12. apríl 1983
  • Skipunarbréf ráðherra 3. apríl 1981

 

Askja 3:

  1. Alþýðubandalagið: Kvennafylkingin, kvennafélag Alþýðubandalagsins
    2. Alþýðubandalagið: ræður Vilborgar: um kvennaframboð, jafnrétti kynjanna, flokksskipulag sósíaliskrar hreyfingar; grundvöllur Abl. í málefnum fjölskyldunnar
  2. Grein eftir Barböru Robin ásamt bréfi, dags. 10 janúar 1974, fjallar um íslenskar konur
  3. Netið
  4. Greinar og ræður, Vilborg Harðardóttir:
  • Grein V.H. í jólablað Þjóðviljans 1967 –
  • Ræða haldin 1. maí, (án stundar og staðar) –
  • Erindi flutt á ráðstefnu ASÍ og BSRB 1975 –
  • Skálaræða (án stundar og staðar) –
  • Ræða flutt á fundi Kvenréttindafélags Íslands 24. okt. 2000 –
  • Uppkast að ræðu um jafnréttisnefndina sem V.H. var formaður fyrir 1981-1983
  1. Greinar og ræður, Vilborg Harðardóttir:
  • greinin – Fær leið? (án stundar og staðar)
  • Small is beautiful (án stundar og staðar)
  • Er kvótakerfi innan flokkanna leið til að fjölga konum í stjórnmálum (án stundar og staðar)
  1. Frásögn Vilborgar af ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Mexíkó 1975 – límmiðar
  2. Kvennaárið 1975: Bréf frá Gudrun Ekeflo á Aftonbladet í Stokkhólmi til V.H. 5 nóv. 1975 Dreifiblaðið „Hvers vegna kvennafrí?“ – Dreifiblaðið ”Hvorfor Kvindefridag?”
  3. Kvennaárið 1975: Ræður/greinar V.H. um kvennaárið
  4. Skýrsla á dönsku um kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn 1980
  5. Kvennaráðstefna S.Þ. 1980: Til undirbúningsnefndar frá ASÍ
  6. Kvennaráðstefna S.Þ. 1980: Ræða/skýrsla á íslensku og ensku
  7. Kvennaráðstefna S.Þ. 1980: Fréttatilkynning
  8. Samanburður V.H. á ráðstefnum S.Þ. 1975 og 1980
  9. Skýrsla undirbúningsnefndar Kvennaáratugsráðstefnu S.Þ. 1985

 

Askja 4:

Ljósmyndir

  • Mexíkó 1975
  • Frá Indlandsheimsókn 1985 [1 ljósmynd, úrklippur]
  • Nordisk Forum 1988